Sýnir: Fréttir og undirflokka
23.538 fréttir fundust
Síða 14 af 471
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Lúga brotnaði og skipið sökk á 19 mínútumLúga brotnaði á skipinu Jökli ÞH og 19 mínútum síðar var skipið sokkið. Í millitíðinni hafði áhöfnin komið sér í flotgalla. Þeir sem lengst voru í sjónum voru þar í fimm og hálfa klukkustund. Þrír fórust en 14 var bjargað. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sökk eftir að lúga brotnaðiSkipstjórinn á Jökli hafði samband við Landhelgisgæsluna skömmu eftir klukkan fimm í gær. Þá sagði hann að lúga hefði brotnað aftan á skipinu og leki hefði komið að því. Þá báðu starfsmenn stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar áhöfnina um að fara í flotgalla. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Blaðamaður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendiherra ÍslandsBlaðamaðurinn óskaði 15. apríl eftir öllum upplýsingum um fundinn. Ráðuneytið afmarkaði beiðnina við tölvupóstinn og synjaði henni 30. apríl. Það taldi póstinn vera vinnugagn og sagði að afhending hans gæti grafið undan trausti í samskiptum Íslands við önnur ríki. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Gulu gulræturnar skiluðu Píeta samtökunum veglegum styrkVerkefnið fór af stað í septembermánuði, sem er tileinkaður vitundarvakningu um geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir undir merkjum Guls september. Gulu gulræturnar féllu því einstaklega vel að málefninu. Sunnlenska - Fréttir Héraðsfréttir
Ennisrakaðir halda útgáfutónleika í AlþýðuhúsinuHljómsveitin El Puerco Ennisrakaðir heldur útgáfutónleika í Alþýðuhúsinu í Vestmannaeyjum föstudaginn 27. nóvember í tilefni af útgáfu plötunnar Casa del Publico. Húsið opnar klukkan 20.00 og tónleikarnir hefjast klukkan 20.30. Á plötunni eru 15 lög. Eyjafréttir Héraðsfréttir
Endurnýjaðir samningar við íþróttafélöginÁ þriðjudag var undirritaður endurnýjaður samstarfssamningur milli Akureyrarbæjar og Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA) um rekstur og starfsemi ÍBA út árið 2029. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Heimsbyggðin bregst við slysinuFjöldi erlendra miðla hafa fjallað um voveiflegt sjóslys sem varð 60 sjómílum austan við Íslandsstrendur. Þrír létust og fjórtán var bjargað þegar að Jökull ÞH sökk seinnipartinn í gær. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Óttast olíumengun við IbizaSpænsk stjórnvöld vinna nú að því að koma í veg fyrir hugsanleg umhverfisspjöll í Miðjarðarhafi eftir að tankskip, sem flutti allt að 7.000 tonn af dísilolíu, sökk við spænsku eyjuna Ibiza í nótt. Einn skipverji lést. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Eftirlit með smábátum og breytingum á þeimSamgöngustofa tekur þeim ábendingum alvarlega sem undanfarna daga hafa komið fram um eftirlit með íslenskum plastbátum undir 15 metrum. Samgöngustofa telur mikilvægt að skýra hvernig eftirlit með smábátum fer fram, hver ber ábyrgð á hverjum þætti þess og hvernig brugðist er við þegar frávik koma í… BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Jólabókaflóðið tókst frábærlega – myndasyrpaSkólabókasafn Grunnskóla Grundarfjarðar, í samvinnu við leshópinn Köttur út í mýri, stóð fyrir árlegu jólabókaflóði í Samkomuhúsi Grundarfjarðar í gær. Þar mættu rithöfundarnir Arndís Þórarinsdóttir, Felix Bergsson, Vilhelm Anton Jónsson og Yrsa Þöll Gylfadóttir en heiðursgestur var rithöfundurinn… Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Beint streymi: UMFÍ og ÍSÍ kynna skýrsluna Raddir ungs fólksKostnaður við íþróttaiðkun, æfingatímar, of snemmbær afreksvæðing og gæði þjálfunar eru meðal þess sem ungmenni á aldrinum 15–25 ára segja að þurfi að breytast í íþrótta- og æskulýðsstarfi á Íslandi. Þetta kemur fram í skýrslunni Raddir ungs fólks. Beint streymi verður af fundinum á Vísi. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Missti heimsmetið í eyrnalengd en vann nýtt með halanumFrost sagði í samtali við sjónvarpsstöðina WGXA að henni hefði síðar dottið í hug að hali Hope gæti einnig verið á heimsmælikvarða. Hún lagði því til við Guinness að stofnaður yrði nýr metflokkur. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Átta vaxtarsvæði og takmörk á fjölda vindorkuvera sem hægt er að tengjaLandsnet hefur skilgreint átta vaxtarsvæði þar sem eftirspurn er eftir orku og tækifæri eru til orkuöflunar. Þá gerir Landsnet ekki ráð fyrir að tengja fleiri en 3-4 vindorkuver við flutningskerfið á næstu 10-15 árum, mun færri en áform eru um. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hetjurnar okkar - Þetta eru áhafnirnar sem stóðu að björguninniLandhelgisgæslan hefur sent frá sér myndir af áhöfnununum sem tóku þátt í björguninni í gær. Þrír sjómenn létust og Flugvélin TF-Sif var fyrst á vettvang um kl. 20 og fann mennina. Þyrlan TF-Gró var komin á vettvang kl. 21:15. Um svipað leyti komu skipin Svanur EA og Harðbakur á vettvang. DV Fréttir Fréttir
Daði Már svarar spurningum um LandsvirkjunStjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis heldur opinn fund miðvikudaginn 2. desember til að fjalla um verklag fjármála- og efnahagsráðherra í tengslum við málefni Landsvirkjunar. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Skipið sökk á ógnarhraðaSamkvæmt heimildum Vísis liðu aðeins um tíu mínútur frá því að neyðarboð um leka barst frá skipstjóranum þangað til hann tilkynnti að skipið væri á leiðinni niður og skipverjar væru að yfirgefa það. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Stækkun fyrirhuguð hjá Höfða Lodge við SkæluSveitarstjórn Grýtubakkahrepps hefur samþykkt breytingu á Aðalskipulagi Grýtubakkahrepps vegna verslunar- og þjónustusvæðis við Skælu. Með breytingunni verður heimilt heildarbyggingarmagn á svæðinu aukið úr 7.000 fermetrum í 8.100 fermetra til að skapa svigrúm fyrir fyrirhugaða stækkun Höfða Lodge. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Höfði Lodge við SkæluSveitarstjórn Grýtubakkahrepps hefur samþykkt breytingu á Aðalskipulagi Grýtubakkahrepps vegna verslunar- og þjónustusvæðis við Skælu. Með breytingunni verður heimilt heildarbyggingarmagn á svæðinu aukið úr 7.000 fermetrum í 8.100 fermetra til að skapa svigrúm fyrir fyrirhugaða stækkun Höfða Lodge. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Situr fyrir svörum um LandsvirkjunarmáliðStjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur boðað til opins fundar miðvikudaginn 2. desember til að fjalla um verklag fjármála- og efnahagsráðherra í tengslum við málefni Landsvirkjunar. Ráðherra verður gestur á fundinum. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Islandia i Polska pogrążone w żałobieWe wczorajszej katastrofie morskiej, w której u wschodnich wybrzeży Islandii zatonął statek Jökull ÞH, zginęły trzy osoby. RUV - Fréttir á Pólsku Fréttir á pólsku
Slight fall in inflation to 5.8%International airfares, clothing, and footwear fell in price. The cost of living in owner-occupied housing increased. RUV - Fréttir á Ensku News In English
Eitt af þremur verstu sjóslysum aldarinnarSjóslysið í gær er meðal mannskæðustu sjóslysa við Ísland á þessari öld. Þrír fórust í sjóslysi 2001 og jafn margir 2012. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Áhöfnin sem vann björgunarafrekiðSexmenningarnir sem voru um borð í TF-Gró sem framkvæmdu mikið björgunarafrek þegar þeir komu áhöfn af Jökli SH um borð. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Samúðarkveðja frá NorðurþingiSveitarstjórn og starfsfólk Norðurþings vottar fjölskyldum og ástvinum þeirra þriggja skipverja Jökuls ÞH sem fórust sína innilegustu samúð. Hugur okkar allra er hjá áhöfninni, fjölskyldum hennar, ástvinum, starfsfólki og eigendum GPG Seafood ehf. í kjölfar hins hörmulega sjóslyss sem varð í gær. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Þingmenn risu úr sætum og þingfundi frestaðAlþingismenn risu úr sætum sínum við upphaf þingfundar í dag vegna sjóslyssins í gær þar sem þrír fórust. Þingfundi var í kjölfarið frestað. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Siglingar Herjólfs falla niður síðdegisSiglingar Herjólfs síðdegis í dag falla niður vegna veðurs og sjólags. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Farþegar sem áttu bókað eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu félagsins til að færa bókun sína. Eyjafréttir Héraðsfréttir
Málmhlutur í CornyInnnes og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar hafa innkallað pakka með Corny 0% Added sugar Chocolate Multi 20 gramma orkustykkjum. Þetta gerðu þau eftir að málmhlutir fundust í vörunni. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sex óhöpp Jökuls fyrir skipsskaðannFiskiskipið Jökull sem sökk austur af landinu í gær hafði tvívegis strandað frá því það kom til landsins árið 2021. Þá hafði komið upp eldur um borð og nokkrum sinnum verið greint frá bilunum. Skipið var þrjátíu ára gamalt en hafði verið endurnýjað að hluta á síðustu árum. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Innkalla eitt þekktasta orkustykki landsinsMatvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Corny 0% Added sugar Chocolate Multi pack 6x20g sem Innnes ehf. flytur inn vegna málmhluta sem fannst í vöru. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar innkalla vöruna. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Gjaldtaka vegna fiskeldis í sjó árið 2027Fiskistofa hefur reiknað út gjald vegna fiskeldis í sjó fyrir árið 2027. Er það 42,70 kr á hvert kíló slátraðs lax og 21,35 kr á hvert kíló slátraðs regnbogasilungs. Þetta kemur fram í tilkynningu þar sem Fiskistofa kveðst leggja gjaldið á tvisvar sinnum á ári, 15. ágúst vegna tímabilsins 1. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Þyrla á Akureyri hefði stytt tímann verulegaTvær af þremur þyrlum Landhelgisgæslunnar voru óflughæfar í gær þegar neyðarkallið kom frá Jökli. Staðsetning þyrlu á Akureyrarflugvelli hefði stytt flugtíma þyrlu á slysstaðinn verulega. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á JökliHún þakkaði fyrir hönd Alþingis öllum sem komu að björguninni á landi, sjó og í lofti. Eydís sagði yfirvegun, fagmennsku og ósérhlífni hafa einkennt störf björgunarfólks í gær og í nótt. Hún nefndi sérstaklega sjómenn á skipum úti fyrir Austurlandi sem lögðu björgunarfólki lið. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Kerfi borgarinnar enn óaðgengileg eftir netárásUnnið er að því að greina hvert markmið tölvuþrjóta sem réðust á kerfi Reykjavíkurborgar var. Enn eru sum þjónustukerfi borgarinnar óaðgengileg. Almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi vegna stöðu mála. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Rússneska sendiráðið harðort í garð Þorgerðar Katrínar – segir ummæli hennar byggð á órökstuddum vangaveltumRússneska sendiráðið á Íslandi hefur sent frá sér harðorða yfirlýsingu vegna ummæla Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um meint áform Rússa um að koma kjarnorkuvopnum fyrir í geimnum. Sendiráðið hafnar ásökununum og segir fréttaflutninginn lið í áróðursherferð gegn Rússlandi. Frettin - Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Úrgangsgámar í Melahverfi um helginaDagana 27.–30. nóvember verða gámar fyrir timbur og grófan úrgang til urðunar staðsettir á grenndarstöðinni í Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Um tímabundna ráðstöfun er að ræða á meðan unnið er að framtíðarlausn í úrgangsmálum sveitarfélagsins. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
„Austfirskt samfélag er harmi slegið“„Landið okkar er lítið og samfélögin samofin. Atburðir sem þessir snerta okkur mörg, óháð því hvort við tengjumst þeim sem í hlut eiga. Það er eðlilegt að finna fyrir margvíslegum tilfinningum í kjölfar slíkra atburða. Öll eru því hvött til að huga vel að sjálfum sér og sínum nánustu. Austurfrétt - Fréttir Héraðsfréttir
Ný barnaverndarlög samþykkt á AlþingiAlþingi samþykkti ný heildarlög um barnavernd að kvöldi mánudagsins 23. nóvember. Mennta- og barnamálaráðuneytið segir þetta stærstu endurskoðun barnaverndarlöggjafar í meira en tuttugu ár. Nýju lögin leysa af hólmi barnaverndarlög nr. 80/2002 og taka gildi 1. apríl 2027. Tígull.is Héraðsfréttir
● ESB hótar Búlgaríu milljónasekt og gagnrýnir ríkisfjármál UngverjalandsFramkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur varað Búlgaríu og Ungverjaland við alvarlegum brotum á fjármálareglum sambandsins. Búlgaría á yfir höfði sér sekt sem getur numið allt að 23 milljónum evra og bæði ríkin gætu misst aðgang að hluta fjárveitinga ESB. Útvarp Saga Innlendar fréttir