Sýnir: Fréttir og undirflokka
23.551 fréttir fundust
Síða 46 af 472
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Zelensky vill funda með Trump og PútínVolodymyr Zelensky Úkraínuforseti segist reiðubúinn að setjast til viðræðna með forsetum Bandaríkjanna og Rússlands um stríðið í Úkraínu. Þetta sagði hann á blaðamannafundi í Osló síðdegis, þar sem hann hefur setið á fundum fyrst með Steve Witkoff, erindreka Bandaríkjastjórnar, og svo… Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Björgunarskipið Sigurvin dró 475 tonna fiskiskip til hafnarÁhöfn björgunarskipsins Sigurvins frá Siglufirði var kölluð út í morgun, þriðjudaginn 20. október, eftir að fiskiskipið Hildur SH 777 fékk veiðarfæri í skrúfuna og varð aflvana. Trölli.is - Fréttir Héraðsfréttir
Vilja Fjölskyldu- og húsdýragarðinum útvistaðTekist var á um tillögu meirihlutans í borginni í dag um að skoða útvistun Fjölskyldu- og húsdýragarðsins sem kostar borgina nær hálfan milljarð króna á ári eins og staðan er í dag. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ekki náð að endurheimta allar 160 milljónirnarRannsókn lögreglu á fjársvikamáli þar sem um 160 milljónum króna var komið undan úr Arion banka er á lokastigi. Lögreglu hefur ekki tekist að endurheimta allar milljónirnar, en þó stærstan hluta þeirra. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Bílstjóri sakaður um að nauðga konu með fötlunMaður hefur verið ákærður fyrir nauðgun og, fyrir að beita konu með fötlun kynferðisofbeldi á heimili hennar. Ákærði er sagður hafa notfært sér yfirburði gagnvart henni í tvígang snemma árs 2023. Héraðssaksóknari höfðar málið fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunniReykjavíkurborg skoðar að hafa aðeins einn inngang opinn í grunnskólum á ákveðnum tímum skóladagsins og stýra betur hverjir komast inn. Borgarstjóri greindi frá þessu þegar hún svaraði fyrirspurn um öryggi í skólum og frásagnir af kennurum sem hefðu orðið fyrir ofbeldi. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sinna ekki eftirliti ef leyfi vantarÞað er mat Félags fósturforeldra að upp undir 100 börn séu í svokallaðri bráðavistun á vegum barnaverndar, en ekki er sama eftirlit með þeim og öðrum börnum í fósturkerfinu og njóta fósturforeldrarnir ekki sama stuðnings og réttinda og aðrir fósturforeldrar. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ætla að stórefla lögreglu fyrir næstu mótmæliSebastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, hét því í dag að kalla til gríðarmikið lið lögreglu næstu helgi, þegar næstu mótmæli í landinu eru fyrirhuguð. Hann mátti þola mjög harða gagnrýni í franska þinginu í dag vegna óeirðanna sem geisað hafa undanfarið og náðu hámarki á laugardag. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Björgunarskipið Sigurvin dró aflvana fiskiskip til hafnarÁhöfn björgunarskipsins Sigurvins var kölluð út til að aðstoða 475 tonna fiskiskip, Hildi SH 777, sem fékk veiðarfæri í skrúfuna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg. Hildur var miðja vegu milli Siglufjarðar og Grímseyjar þegar hún fékk veiðifærin í skrúfuna. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Björguðu Hildi eftir hrakfarir á sjóÍ morgun var áhöfn björgunarskipsins Sigurvins kölluð út vegna 475 tonna fiskiskips, Hildar SH777, sem hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna og varð í kjölfarið aflvana. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Höfðar mál vegna tolla TrumpsStór bandarískur matvælainnflytjandi höfðaði í dag mál til að fá hnekkt tollum sem Donald Trump Bandaríkjaforseti lagði á tilteknar kanadískar vörur eftir að viðskiptaviðræður sigldu í strand fyrr á árinu. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Sigurvin kallaður út vegna HildarBjörgunarskipið Sigurvin var kallað út í morgun vegna 475 tonna fiskiskips að nafni Hildur sem hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna og varð í kjölfarið aflvana. Skipið var statt um miðja vegu milli Siglufjarðar og Grímseyjar. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Dýrkeypt fyrir samfélagið að fjárfesta ekki í fangelsismálumUppbygging nýs öryggisfangelsis hófst með formlegum hætti í dag þegar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tók fyrstu skóflustungu að fangelsinu við Stóra-Hraun ásamt fangelsismálastjóra og bæjarstjóra Árborgar. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
BBC boðar lokanir og fækkun starfaBreska ríkisútvarpið BBC tilkynnti í dag að störfum yrði fækkað um rúmlega 100 á fréttasviði og sjónvarpsrásunum BBC Three og BBC Scotland lokað í vor. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Vantar fangelsi eins og þettaÞorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra er hæstánægð með að fyrstu skóflustungurnar hafi verið teknar að nýju öryggisfangelsi að Stóra-Hrauni í dag. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Kemur að því að þolinmæðin þrýtur“Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir þann fjölda kynferðisafbrotadóma sem Landsréttur hefur snúið í sýknudóm gefa tilefni til að rannsaka dómstigið sérstaklega. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkatakiKarlmaður hefur verið dæmdur til 3,5 ára fangelsisvistar fyrir gróft ofbeldi í garð sambýliskonu sinnar. Hann var ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að hafa tekið konuna kyrkingartaki en dómurinn taldi ekki sannað að hann hefði haft ásetning til þess að myrða konuna. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Dæmdir manndrápsmenn gætu fengið að annast fatlað fólkFólk sem hefur verið dæmt fyrir manndráp eða alvarlegar líkamsárásir gæti fengið að annast fatlað fólk samkvæmt frumvarpsdrögum Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Einhverfusamtökin gagnrýna áformin og telja nauðsynlegt að meta áhrif þeirra á öryggi þjónustunotenda. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Rope rescue teams to search for remains of Lúðvík PéturssonThe Police Commissioner in the Suðurnes region has decided to send rescue personnel down into the fissure in Grindavík where Lúðvík Pétursson fell to his death while working in the Hóp neighbourhood in January 2024. The aim is to recover his remains. MBL Fréttir á Ensku News In English
Tók 45 mínútur að vara íbúa við gasmengunÞað tók 45 mínútur að koma viðvörun um gasmengun til íbúa í Eyjafirði í eldgosinu í Holuhrauni, að sögn Víðis Reynissonar, þingmanns Samfylkingarinnar. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Hann bara hætti ekki“Kona sem sakar breska grínistann og leikarann Russell Brand um kynferðisbrot lýsti meintri árás hans sem ofsafenginni og ofbeldisfullri þegar hún bar vitni fyrir dómi í London í dag. Hún sagði Brand hafa þrýst sér upp að vegg, þuklað á líkama sínum og kysst sig harkalega án samþykkis. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Dæmdur fyrir hrottalega árás á sambýliskonuHéraðsdómur Vesturlands dæmdi í gær karlmann í þriggja ára og sex mánaða fangelsi fyrir stórfellt brot í nánu sambandi og alvarlega líkamsárás gegn sambýliskonu sinni. Maðurinn sló konuna ítrekað og tók hana kyrkingartaki. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hrunamannahreppur er sveitarfélag ársins 2026Sveitarfélag ársins er árleg viðurkenning sem byggir á starfsánægju og starfsumhverfi starfsfólks sveitarfélaga. Gallup framkvæmir könnunina og Mannauðssjóðurinn Hekla kemur líka að verkefninu. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
„Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segist döpur að hafa misst Jón Gnarr úr þingflokki Viðreisnar og vonar að hann snúi til baka. Hún segir þingflokkinn og forystu flokksins taka gagnrýni hans til greina. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Héraðssýningar á Vesturlandi – MýrahrúturinnAð kvöldi 17. október var þriðja héraðssýningin á Vesturlandi haldin í Mýrdal, eins og á síðasta ári, í frábærri aðstöðu í glæsilegum fjárhúsum. Þarna var framundan mikil barátta margra öflugra lambhrúta um Mýrahrútinn, sem er steinskjöldur sem eigandi besta hrútsins fær þann heiður að varðveita… Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Greiða leið að 100 milljóna manna markaðiNær allur núverandi útflutningur EFTA-ríkjanna til Víetnams verður tollfrjáls við gildistöku nýs fríverslunarsamnings eða í áföngum eftir hana. Samningurinn er meðal annars mikilvægur fyrir útflutning sjávarafurða, en þær voru um 93% af vöruútflutningi Íslands til Víetnams í fyrra. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Ræddi umdeildan dóm á AlþingiSamþykki í kynlífi er ekki það sama og samþykki fyrir ofbeldi. Íslenskt samfélag verður að horfast í augu við aukið ofbeldi gegn konum og börnum að mati þingmanns. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Keppa við sjálfa sig – samkeppni á tímum lífeyrissjóðaLífeyrissjóðir landsmanna eiga stóran og jafnvel langstærstan hlut í fyrirtækjum í Kauphöllinni. Þetta gerir öðrum fjárfestum kleift að komast yfir mikil völd í stórum fyrirtækjum fyrir tiltölulega lítinn pening. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Nýjar rannsóknir á fæðuvali loðnuLoðna hefur lagað fæðuval sitt að breyttum skilyrðum og étur líka á hrygningargöngu sinni, ólíkt því sem áður var talið. Þetta er kemur fram í tveimur nýjum greinum eftir vísindamenn Hafrannsóknastofnunar. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Telur frávísun eðlilega kröfu í málarekstri ESA„Ég myndi álíta að það væri eðlileg krafa. Í raun og veru er verið að fara inn á stjórnskipunarrétt Íslands með þessu móti,“ segir Tryggvi Axelsson, fyrrverandi lögfræðingur lagadeildar EFTA, í samtali við Morgunblaðið en hann starfaði hjá deildinni í hálft fjórða ár. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Héraðssýningarnar á Vesturlandi haustið 2026 – Snæfellsnes vestan girðingarÖnnur héraðssýningin á Vesturlandi haustið 2026 var sýningin vestan girðingar á Snæfellsnesi. Nokkur ár eru síðan bændur í sýslunni austan girðingar sögðu sig úr lögum við þetta áratuga sýningahald á starfssvæði búnaðarsambandsins sem áður spannaði sýsluna alla. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Sjóvá bótaskylt eftir fall í fiskvinnsluHéraðsdómur Reykjavíkur hefur viðurkennt bótaskyldu Sjóvár-Almennra trygginga vegna vinnuslyss starfsmanns Vísis í Grindavík í mars 2023. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Undirbúa ljósmyndasýningu VitansLjósmyndasýning Vitans, félags áhugaljósmyndara á Akranesi, verður opnuð klukkan 18 fimmtudaginn 22. október á Innnesvegi 1 á Akranesi (við hliðina á Kallabakaríi) og verður opin til kl. 21. Boðið verður upp á veitingar. Sýningin verður opin virka daga frá kl. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
„Elliði vinnur þá skítavinnu að venja okkur við rasisma“„Á myndinni er hópur ungra manna. Á myndinni er hópur ungra manna með dökka húð. Á myndinni er hópur manna sem klæðast tísku ungra manna. Á myndinni er hópur manna sem má alveg mótmæla,“ skrifar hann og bætir við: „Á myndinni er engin sönnun um neitt illt. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í OslóVolodýmýr Selenskí, forseti Úkraína, ásamt evrópskum bandamönnum fundar nú með fulltrúa Bandaríkjastjórnar í Osló í skugga áframhaldandi harðra árása Rússa á landið. Bandaríkjastjórn hefur nálgast verulega stjórnvöld í Kreml að undanförnu. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Fyrsta skóflustunga tekin að nýju fangelsi á Stóra-HrauniFyrr í dag var fyrsta skóflustungan að nýju öryggisfangelsi á Stóra-Hrauni við Eyrarbakka var tekin. Fangelsið verður fyrsta öryggisfangelsið hér á landi og mun hafa rými fyrir allt að 128 fanga þegar uppbyggingu þess verður lokið. DFS.is - Fréttir Héraðsfréttir
Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir framÞað skýtur skökku við að heilbrigðisráðherra afskrifi Litla spítalann í fjölmiðlum á meðan erindi aðstandenda hans er enn til skoðunar hjá Sjúkratryggingum Íslands, að mati Rósu Guðbjartsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Lögreglan rannsakar sprengjuhótanir sem enn eru að berastSprengjuhótanir hafa borist ýmsum ríkisstofnunum og fyrirtækjum að undanförnu. Sprengjusveit sérsveitar var kölluð út í síðustu viku vegna hótana sem bárust forsætis- og dómsmálaráðuneytinu í tölvupósti. Sambærilegur tölvupóstur var sendur víða. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Nemanja Đurišić er kominn í Tindastól!„Við erum gríðarlega ánægð að tilkynna að Nemanja Đurišić hefur gengið til liðs við Tindastól,“ segir í rilkynningu á Facebook-síðu körfuknattleiksdeildar Tindastóls sem birt var í hádeginu. Nemanja er 2,03 m hár framherji með mikla reynslu. Feykir.is Héraðsfréttir
Jens myndi frekar kjósa Bjössa á mjólkurbílnumJens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi ríkisstjórnina á Alþingi í dag fyrir að innheimta tugi milljarða króna meira af ökutækjaeigendum en hún hygðist verja til samgangna. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysisÞorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir mikilvægt að fangelsið að Stóra-Hrauni fái að rísa því að á Íslandi hafi aldrei verið hannað eða byggt fangelsi sem er öryggisfangelsi. Hún segir Íslendinga eftirbáta annarra Norðurlanda. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Þórunn í síldar- og sjórannsóknumRannsóknaskipið Þórunn Þórðardóttir fór til síldar- og sjórannsókna þann 12. október og gert er ráð fyrir rúmlega þriggja vikna leiðangri kringum landið. Sjórannsóknir munu fara fram á föstum sniðum sem heimsótt eru 3-4 sinnum á ári í rannsóknaleiðöngrum stofnunarinnar til að rannsaka eðlis- og… BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Níu handteknir eftir röð ofbeldisfullra göturána á TenerifeAf þeim sem voru handteknir eru sjö yngri en 18 ára en tveir fullorðnir. Að loknum handtökum voru hinir grunuðu leiddir fyrir viðeigandi dómsyfirvöld, sem ákváðu að vista fimm unglinganna á unglingaúrræði þar sem þeir verða í gæslu. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir