Sýnir: Fréttir og undirflokka
23.562 fréttir fundust
Síða 77 af 472
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Allar auglýsingar verði á íslensku„Fátt sem ég hef lagt til á þingi hefur vakið viðlíka viðbrögð á meðal almennings enda held ég að þeir séu ófáir sem hafa fengið sig fullsadda á þessari þróun,“ segir Snorri Másson alþingismaður sem í gær mælti fyrir frumvarpi um breytingu á markaðssetningarlögum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fundað um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi.Fundurinn fer fram á mikilvægum tímapunkti. Á Alþingi liggja nú fyrir stór mál sem snerta ferðaþjónustuna með beinum hætti og geta haft veruleg áhrif á rekstrarskilyrði greinarinnar og atvinnulíf í Suðurkjördæmi. Víkurfréttir - Fréttir Héraðsfréttir
Á sjó eftir sex vikur í slipp„Það eru þrjú ár síðan við fórum síðast í slipp þannig að það var kominn tími á þetta,“ segir Helgi Aage Torfason, skipstjóri á netabátnum Kristrúnu RE. „Við þurftum að fara í gírinn hjá okkur og svo toppupptekt á annarri vélinni. “ MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Fékk nafnið VafiEins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þær kasti á haustin telst örugglega sjaldgæft. Það gerðist þó 23. september síðastliðinn þegar hryssan Maístjarna, eða Mæja eins og hún er alltaf kölluð, kastaði fallega bleikum hesti. Bændablaðið - Fréttir Bændur
Kallar eftir heiðarleika BandaríkjamannaVolodimír Selenskí, forseti Úkraínu, hvatti Bandaríkjamenn í morgun til að standa ekki með innrásarríkinu Rússlandi. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsóknÍ reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynjanna sem voru metin. Í rannsókninni sem var birt í vísindaritinu Science Direct eru eiginleikar 14 mismunandi hreinræktaðra hestakynja skoðaðir. Bændablaðið - Fréttir Bændur
Marktækt meiri kolefnisbinding í beittu landi en óbeittuNý rannsókn vísindamanna við Háskóla Íslands á Hólum, Háskóla Íslands og innlendar og erlendar samstarfstofnanir sýnir að marktækt meira kolefni mældist í jarðvegi í landi þar sem beit hefur verið samfelld en á svæðum sem hafa verið friðuð fyrir beit. Skessuhorn - Fréttir Héraðsfréttir
Hannes Pétursson sendir frá sér Hjá LeyningsvötnumSkagfirðingurinn, ljóðskáldið og fræðimaðurinn Hannes Pétursson (fæddur á Sauðárkróki í desember 1931) hefur verið meðal höfuðskálda þjóðarinnar í rúma sjö áratugi eða frá því að hann kvaddi sér hljóðs með Kvæðabók árið 1955. Feykir.is Héraðsfréttir
Aðsend grein: Þegar allir fallaÞegar stjórnvöld hækka skatta og álögur í hvert sinn sem einstaklingur eða fyrirtæki nær árangri eru skilaboðin skýr: Því meira sem þú leggur af mörkum, þeim mun meira verður tekið af þér. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“Jóhann K. Jóhannsson slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð segir tímabært að koma upp vindmælingastöð í miðbænum á Siglufirði. Það sé verulegt tjón víða í bænum vegna óveðursins í gær. Hviðumælingar sýndu að sterkasta hviðan sem fór yfir í gær var um 56 metrar á sekúndu. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hópur hershöfðingja leggst gegn því að aftöku verði streymtFyrrverandi hershöfðingjar og aðmírálar í bandaríska hernum þrýsta á hermálayfirvöld að hætta við að sýna opinberlega frá aftöku Nidal Hasans 3. desember. Alls skrifa 72 fyrrverandi, háttsettir starfsmenn hersins undir og segja fyrirhugað streymi frá aftökunni vera villimannslega misbeitingu valds. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Gáfu byggingadeild VMA þakdúkaFyrirtækið Alfa Byggingalausnir ehf. hafa fært byggingadeild Verkmenntaskólans á Akureyri nokkrar gerðir af þakdúkum sem fyrirtækið selur. Þakdúkana mun byggingadeild […] Kaffið.is - Fréttir Héraðsfréttir
Óveðrið ógnaði báti í höfninniBátur var við það að slitna upp í höfninni á Skagaströnd rétt fyrir miðnætti í gær. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýniNorskur jarðgangasérfræðingur sem lagði mat á borkjarna úr rannsóknarholum á Heimaey og á Landeyjarsandi í tengslum við möguleg jarðgöng til Vestmannaeyja segir kjarnana mun betri en hann hafi búist við. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Aldarafmæli Huppu á Kluftum og VestfirðirÞann 3.nóvember 2026 verður haldin ráðstefna á Flúðum í Hrunamannahreppi í tilefni 100 ára afmælis Huppu á Kluftum og hefst kl 11 og stendur til 17. Huppa er í dag þekkt sem einstakur kynbótagripur í nautgriparækt í heiminum. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Vill sjö nýja lögreglumenn til starfaPáley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, fer fram á 154 milljónir króna til að fjölga lögreglumönnum í embættinu um sjö […] Kaffið.is - Fréttir Héraðsfréttir
Hvellurinn á Siglufirði meiri en búist var viðTalsverð vinna er framundan næstu daga, einkum á Siglufirði, eftir óveðrið sem gekk yfir í gær. Þetta segir Hermann Karlsson aðalvarðstjóri í aðgerðastjórn á Norðurlandi eystra. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sumarið gekk vel, var annasamt og skemmtilegt | BRYNJAR MORGANÍþróttagarpur Feykis að þessu sinni er Brynjar Morgan Brynjarsson en hann er fæddur í janúar á því góða ári 2012. Hefur búið á Skagfirðingabraut-inni á Sauðárkróki frá því daginn áður en hann kom í heiminn en þá fluttu foreldrar hans allt sitt hafurtask á Krókinn. Feykir.is Héraðsfréttir
28 fórust þegar þak skóla hrundiÞak skóla í pakistönsku borginni Peshawar hrundi í dag með þeim afleiðingum að tugir festust undir brakinu. 27 nemendur og einn kennari létust. Yfir 30 til viðbótar slösuðust og eru sex þeirra í lífshættu. Talsmaður almannavarna sagði að óttast væri að fleiri börn væru föst í rústum skólans. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Óttast um málsvörn ÍslandsSigríður Á. Andersen þingflokksformaður Miðflokksins telur ekkert benda til þess að ríkisstjórnin undirbúi málsvörn Íslands gegn Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) vegna bókunar 35. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Gervigreindin bætist núna viðTæknin býður núna upp á að láta hugbúnað fylgjast með og jafnvel láta hann alfarið um að stjórna fóðrun eldisfisks. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í TiranaTugþúsundir námsmanna flykktust út á götur Tírana, höfuðborgar Albaníu, í gær til að mótmæla enn á ný. Mótmælin urðu ofbeldisfull og var kveikt í stjórnarráðsbyggingu og tveimur bönkum. Samkvæmt frétt Guardian eru 23 lögreglumenn slasaðir og sex mótmælendur. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst varNorski jarðgangasérfræðingurinn Eivind Grøv telur niðurstöður kjarnaborana á Heimaey og í Landeyjasandi lofa góðu fyrir áframhaldandi rannsóknir á Eyjagöngum. Enn er unnið að úrvinnslu hafsbotnsrannsókna sem eiga að varpa frekara ljósi á jarðlög á gangaleiðinni. Eyjafréttir Héraðsfréttir
Óvissustigi aflétt í SúðavíkurhlíðÓvissustigi vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð hefur verið aflétt að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar en lýst var yfir snjóflóðahættu í hlíðinni í gærkvöld. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Einkaleyfaráðgjafi til liðs við Drift EAIngólfur Pálsson, evrópskur einkaleyfafulltrúi hjá danska fyrirtækinu Dragsted Partners A/S, hefur gengið til liðs við hóp sérfræðinga Driftar EA á Akureyri, sem nefnist Driftarar. Með aðkomu hans fá frumkvöðlar aukinn aðgang að sérfræðiþekkingu á ei... Akureyri.net - Fréttir Héraðsfréttir
Skaplegt veður eftir hádegi: Lægðargangur fram undanVeðrið er hægt og bítandi að ganga niður eftir að afar djúp og kröpp lægð gekk yfir landið í gær og olli talsverðum usla. Veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir að eftir hádegi í dag verði komið skaplegt veður á nær öllu landinu. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Trump tilkynnir olíuleit á Grænlandi sem enginn kannast viðDonald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í nýrri færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social að olíuleit hæfist brátt á Grænlandi. Hann staðhæfði jafnframt að hvergi annars staðar í heiminum sé jafn mikla olíu að finna. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Óvissustigi aflétt í SúðavíkurhlíðÓvissustigi á veginum um Súðavíkurhlíð var aflétt klukkan hálf átta í morgun. Óvissustigi hafði verið lýst yfir vegna hættu á snjóflóðum í snjókomunni sem fylgdi óveðri gærdagsins og næturinnar. Súðavíkurhlíð. Mynd úr safni. Vegagerðin Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á SiglufirðiJón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir vel hafa gengið hjá björgunarsveitarfólki um land allt í gær þrátt fyrir annríki. Óveður gekk yfir landið og voru björgunarsveitir kallaðar út víða um land, til dæmis vegna gróðurhúss sem fauk á Hellu. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Alvotech og Veritas hætta við HólmsheiðiTvö af þeim fimm fyrirtækjum sem höfðu fengið lóðavilyrði fyrir lóð á Hólmsheiði fyrir tveimur árum hafa fallið frá uppbyggingu þar, en þrjú fyrirtæki stefna á að hefja uppbyggingu fljótlega eftir að lóðirnar verða byggingarhæfar á næsta ári. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundiAð minnsta kosti tuttugu og sjö nemendur og einn kennari eru látnir eftir að þak skóla í borginni Peshawar í Pakistan hrundi. Fleiri nemendur eru slasaðir og þá er óttast að einhverjir séu enn þá fastir í rústum byggingarinnar. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Enginn virðisaukaskattur af laxveiðiSigurjón Þórðarson, alþm. greinir frá því að fjárlaganefnd Alþingis hafi nýlega fengið minnisblað um um virðisaukaskattsgreiðslur af sölu veiðileyfa í laxveiðiám. Hann segir að það hafi komið á óvart í svörunum hve mikill vilji er að túlka undanþáguákvæðið rúmt. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
Hafnfirðingar mótmæla nýju tímabundnu hverfiFjölmenni var á íbúafundi á Ásvöllum í Hafnarfirði á þriðjudagskvöld um fyrirhugaðar tímabundnar 260 íbúðir við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg. Hafnarfjarðarbær gerði samning við Styrkás fasteignir í síðasta mánuði um uppbyggingu á tímabundnu starfsmannahverfi. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Átta látnir af völdum hitabeltisstormsins RakelarAð minnsta kosti átta eru látnir í Mexíkó eftir að hitabeltisstormurinn Rachel reið yfir strendur landsins við Kyrrahafið. Frá því í síðustu viku hefur stormurinn valdið sérstaklega miklum rigningum og flóðum í ríkinu Baja California sem á landamæri að Bandaríkjunum. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
KPMG opnar fyrir umsóknir um samfélagsstyrkiKPMG hefur tekið upp skýrara og markvissara fyrirkomulag við veitingu samfélagsstyrkja á landsbyggðinni. Markmiðið er að tryggja að stuðningur félagsins […] Kaffið.is - Fréttir Héraðsfréttir
Hríðarveður norðanlands og víða vetrarfærðAllhvöss eða hvöss norðvestanátt er víða um landið þrátt fyrir að veðrið hafi róast mjög frá því sem gekk á í gær. Hríðarveður er norðanlands. Tvær gular viðvaranir eru í gildi vegna hríðarveðurs, önnur á Norðurlandi eystra til klukkan tíu og hin á Austurlandi að Glettingi til klukkan ellefu. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nóttVeður setti jafnframt svip sinn á verkefni lögreglu í gærkvöldi og nótt. Farið var í nokkur útköll vegna veðurs, en nánari upplýsingar um eðli þeirra komu ekki fram í dagbók lögreglu. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Síldarvinnslan selur Samherja uppsjávarskipið Bjarna ÓlafssonSíldarvinnslan hefur selt Samherja uppsjávarskipið Bjarna Ólafsson. Skipið, sem smíðað var árið 1999, hefur verið verkefnalaust síðan það var sett á sölu í upphafi árs 2024. Frá þessu greina fyrirtækin á vefsíðum sínum. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Veðrið að ganga niður og tíðindalítið í nóttVeðrið sem gengið hefur yfir landið síðasta sólarhringinn er nú smám saman að ganga niður en gular viðvaranir verða þó í gildi fram undir hádegi. Birgir Örn Höskuldsson veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir í samtali við fréttastofu að spár hafi gengið eftir. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Vetrarfærð víða um landVetrarfærð er víða um land, helst á Norðurlandi og á Vestfjörðum en einnig víða á fjallvegum, svo sem á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigiGular viðvaranir eru enn í gildi á Ströndum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Austurlandi. Veðurfræðingur segir veðrið að mestu leyti hafa gengið eftir en verið verra á sumum stöðum en spár gerðu ráð fyrir. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Cappuccinos for owners, puppuccinos for pupsVisitors to a café in Kópavogur vary in how well-behaved they are, but all are equally welcome, whether they walk on two legs or four. At Dýrheimar café, owners bring along their best friends. RUV - Fréttir á Ensku News In English