Sýnir: Innlendar fréttir
11.042 fréttir fundust
Síða 101 af 221
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Bann við því að hylja andlit á almannafæri aftur á dagskráSjö þingmenn Miðflokksins hafa í annað sinn lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um að dómsmálaráðherra vinni lagaframvarp um bann við því að hylja andlit í opinberu rými og leggja það fyrir þingið ekki síðar en á næsta ári. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sækja veikan mann um borð í fiskiskipÞyrla Landhelgisgæslunnar er í sjúkraflugi en íslenskt fiskiskip hafði samband við stjórnstöð gæslunnar í morgun og óskaði eftir því að koma veikum manni undir læknishendur. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sprengingar hefjast í Garðabæ í dagVinna við borun og sprengingar vegna uppbyggingar í Arnarlandi í Garðabæ hefst í dag og mun standa næstu tvo mánuði. Ekki verður þó sprengt alla dagana yfir tímabilið. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrrVaraformaður utanríkisnefndar segir að nefndin hefði átt að vera upplýst fyrr um símtal Donalds Trump Bandaríkjaforseta og Bjarna Benediktssonar þáverandi forsætisráðherra sem átti sér stað haustið 2024 þar sem Trump viðraði hugmyndir um að Ísland yrði 51. ríki Bandaríkjanna. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfallAtkvæðagreiðsla á meðal flugvirkja sem starfa hjá Icelandair um boðun verkfallsaðgerða er sögð fara fram í dag. Kjaraviðræður á milli Flugvirkjafélagsins og Icelandair hafa staðið yfir að undanförnu. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Flugvirkjar Icelandair kjósa um verkfallsaðgerðirFélagsmenn Flugvirkjafélags Íslands FVFÍ sem starfa hjá Icelandair kjósa um boðun vinnustöðvunar í dag. Þetta kemur fram í pósti sem sendur var á félagsmenn í morgun. Viðræður FVFÍ, Samtaka atvinnulífsins og Icelandair um nýjan kjarasamning hafa staðið yfir síðan í nóvember 2025. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Kourani farinn úr landiMohamad Th. Jóhannessyni, áður Kourani, hefur verið veitt reynslulausn eftir að hafa afplánað einn þriðja af átta ára fangelsisdómi og honum hefur verið fylgt til Sýrlands. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Kourani vísað úr landiMohamad Th. Jóhannessyni, áður Kourani, hefur verið veitt reynslulausn eftir að hafa afplánað einn þriðja af átta ára fangelsisdómi og honum hefur verið fylgt til Sýrlands. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Flugvirkjar Icelandair greiða atkvæði um vinnustöðvunFlugvirkjar hjá Icelandair munu í dag og yfir helgina greiða atkvæði um vinnustöðvun. Formaður Flugvirkjafélagsins segir um neyðarúrræði að ræða, en flugvirkjar hafa verið kjarasamningslausir frá áramótum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hann er eflaust betri söngvariEiríkur Björn Björgvinsson, þingmaður Viðreisnar, og Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar-, og háskólaráðherra, ræddu um söng í umræðu um fjárlagafrumvarpið á Alþingi í morgun. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Kourani kominn til SýrlandsMohamad Thor Jóhannesson, sem áður hét Mohamad Kourani hefur lokið afplánun og var fluttur af landi brott á þriðjudag. Farið var með hann til heimalands síns, Sýrlands. Mohamad sætir endurkomubanni á Schengen-svæðið næstu 30 árin. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Nokkuð miklar áskoranir hjá Hafnarfjarðarbæ“Uppbygging Tækniskólans við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði er nú í uppnámi vegna áskorana hjá Hafnarfjarðarbæ við að útvega lóð fyrir skólann – þrátt fyrir margra ára aðdraganda og að undirritun varðandi framkvæmdina hafi farið fram árið 2024. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
50 ára skólaafmæli verður fagnað í dagNú er fagnað afmæli Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem er 50 ára um þessar mundir. Í dag, 11. september, er nemendum dagsins í dag svo og fyrri ára boðið til veislu. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Blaðlýs herja á Akureyringa í blíðviðriBlíðskaparveður var á Akureyri á þriðjudaginn og hiti fór í 18 stig. Vindur var hægur og Norðlendingar nutu góða veðursins. Mörgum leist þó ekki sem best á flugu sem var úti um allt. Hún sást víða á sveimi og virtist sérstaklega sækjast í að setjast á gula eða ljósa hluti. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Von um meiri tekjur á ferðamannNýjar og glæsilegar komu- og brottfararverslanir Ísland Duty Free á Keflavíkurflugveli voru vígðar með viðhöfn sl. miðvikudag. Verslanirnar eru reknar af þýska stórfyrirtækinu Gbr. Heinemann og lagði félagið milljarða íslenskra króna í endurbætur. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fimm mánuðir fyrir að tvíkjálkabrjóta sambýliskonu sínaKarlmaður hefur verið dæmdur í 5 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa kýlt sambýliskonu sína í andlitið þannig að hún tvíkjálkabrotnaði auk þess að hljóta mar í andliti, munni og munnholi. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Af hverju tekur allt svona langan tíma?Vegagerðin stóð fyrir ráðstefnunni Horfum fram á veginn þann 15. apríl 2026. Þar var fjallað um eina stærstu áskorun í innviðauppbyggingu á Íslandi, hvernig Vegagerðin tekst á við innviðaskuld, skipulagningu, stýringu og forgangsröðun framkvæmda og viðhalds á skilvirkan og sjálfbæran Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Segir lögreglu „einfaldlega giska“Ólafur Guðjónsson, verjandi Kareem M. M. Abufarhah, var harðorður í garð rannsóknar lögreglu á þætti skjólstæðings síns í málinu. Kareem er sakaður um að hafa ekið af afli á brotaþola með þeim afleiðingum að hann hlaut lífshættulega áverka. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Vilja að Ísland slíti tengslunum við ÍsraelBoðað hefur verið til Sniðgöngunnar 2026 á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri á laugardag til að sýna Palestínumönnum samstöðu og þrýsta á íslensk stjórnvöld um frekari aðgerðir gagnvart Ísrael. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Grjót á stærð við þvottavél féll á veginnGrjót féll á veginn um Kambaskriður, að því að talið er seint í nótt, og þurfti að hreinsa það af veginum í morgun. Austurfrétt greinir frá grjóthruninu. Þar er haft eftir Hinriki Þór Einarssyni, yfirverkstjóra hjá Vegagerðinni á Reyðarfirði, að stærstu tveir til þrír steinarnir hafi verið á stærð… Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Kennarar eru bara að kikna“„Við höfum verið að leggja áherslu á að jafna árangurinn, í stað þess að hafa jöfn tækifæri,“ segir Haukur. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Guðmundur Daði ráðinn forstjóriInnviðafélagið Göng og brú ohf. hefur ráðið Guðmund Daða Rúnarsson í starf forstjóra félagsins. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Farið fram á fimm ára fangelsi í HöfðatorgsmálinuÁkæruvaldið fer fram á fimm ára fangelsisdóm yfir hinum ákærðu í Höfðatorgsmálinu í dag. Þrír eru ákærðir fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg 17. mars. Málfutningur fer fram á lokadegi aðalmeðferðar í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Göng og brú ráða Guðmund Daða sem forstjóraGuðmundur Daði Rúnarsson hefur verið ráðinn forstjóri innviðafélagsins Ganga og brúar ohf. Fyrirtækið á að fjármagna framkvæmdir á samgöngumannvirkjum og taka að sér uppbyggingu innviða. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Milljónafarangurinn komst ekki lengra en LeifsstöðSamkvæmt ákæru tók maðurinn við samtals 27.040 bandaríkjadölum og 34.050 evrum í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum dagana 19. og 20. september 2025. Er því haldið fram að honum hafi ekki getað dulist að fjármunirnir væru ávinningur af refsiverðum brotum. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁÁsmundur Friðriksson, fyrrverandi alþingismaður og stjórnarmaður í framkvæmdastjórn SÁÁ, hefur sagt sig úr stjórninni. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hjónin hvergi sjáanleg en skuldin stendur eftirHjónin eru samkvæmt Þjóðskrá með skráð lögheimili í Bandaríkjunum en heimilisfang þeirra þar er óþekkt. Fram kemur að ítarlegar tilraunir hafi verið gerðar til að hafa uppi á þeim svo hægt væri að birta stefnuna með hefðbundnum hætti. Sú leit hafi hins vegar ekki borið árangur. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
„Erum ennþá með þannig samfélag að við viljum kenna ýmislegt“Aðalnámskrá grunnskóla er of viðamikil og viðfangsefnin of mörg, segir formaður Kennarasambands Íslands. Meðal aðgerða sem stjórnvöld hafa boðað, til að bregðast við neikvæðum niðurstöðum PISA-könnunarinnar, er að einfalda aðalnámskrána og leggja meiri áherslu á kennslu kjarnagreina. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fer fram á fimm ára dóm í HöfðatorgsmáliSilja Rán Arnarsdóttir, saksóknari í Höfðatorgsmálinu svokallaða, fór fram á fimm ára dóm í Höfðatorgsmálinu. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Bensín og biti urðu að dómsmáliFyrsti reikningurinn nam rúmum 443 þúsund krónum, annar rúmum 163 þúsund krónum og sá þriðji rúmum 33 þúsund krónum. Karlmaðurinn hefur greitt tvisvar inn á skuldina, samtals 145.810 krónur, og hefur verið tekið tillit til þeirra greiðslna við gerð dómkrafna. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Þriðjungur til í að skilja bílinn eftir heimaÞriðjungur fólks í Reykjavík er til í að hætta að aka sjálft til og frá vinnu og fara leiðar sinnar með strætó eða með öðru móti. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Stefnir í 67,5 milljarða halla í árÚtlit er fyrir að afkoma ríkissjóðs verði tæpum 40 milljörðum króna lakari en gert var ráð fyrir í fjárlögum yfirstandandi árs, en skv. nýframkomnu frumvarpi til fjárlaga stefnir í 67,5 milljarða halla á ríkissjóði í stað 28,1 milljarðs sem fjárlög gerðu ráð fyrir að yrði á þessu ári. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Vara við vanfjármögnunFjármála- og áhættustýringarsvið Reykjavíkurborgar segir að það stefni í mikinn halla á rekstri velferðarsviðs og kallar eftir aðgerðum til að bregðast við honum. Áframhaldandi vanfjármögnun þjónustu við fatlað fólk er sögð óásættanleg og ógna sjálfbærni í rekstri. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Aðhafast ekki vegna lögreglu sem skipaði manni að eyða myndbandsupptökuNefnd um eftirlit með störfum lögreglu hefur lokið skoðun sinni á atviki þar sem lögreglumaður skipaði manni að eyða upptöku af því þegar lögregla handtók mann í Reykjanesbæ í maí. Maðurinn brenndist illa. Hann hellti yfir sig eldfimum vökva. Lögreglumenn beittu rafbyssu á hann. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Guð og Jesús þurfa meira fjármagnTillögurnar byggja á vinnu starfshóps sem skipaður var árið 2024 af þáverandi dómsmálaráðherra til að endurskoða fyrirkomulag sóknargjalda. Hópurinn kynnti ráðherra tillögur sínar í byrjun árs með það að markmiði að bregðast við viðvarandi niðurskurði sóknargjalda undanfarin ár. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
„Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“Jón Þórðarson og Rikka Sigríksdóttir eru á leið til Svíþjóðar með dóttur sína í aðgerð. Dóttir þeirra fæddist eftir aðeins rúmlega hálfa meðgöngu og var rúmt hálft kíló þegar hún fæddist. Jón og Rikka eru bæði í fæðingarorlofi og eru á um helmingi lægri tekjum en venjulega. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Lagði álög og bölvun á fyrrverandi sambýliskonuMaðurinn var settur í sex mánaða nálgunarbann í maí en braut ítrekað gegn því. Meðal annars nálgaðist hann konuna á almannafæri, fór að heimili hennar og barna hennar og hafði samband við hana með ýmsum hætti. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Strætó, hjól og rafskútur freista bílstjóra borgarinnarNiðurstöður rannsóknarverkefnisins Tilraunaborgir (Pilot Cities Project), sem nýlega voru kynntar í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur, benda til þess að flokkun heimilisúrgangs sé orðin rótgróin venja meðal borgarbúa. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
„Ég mun gera allt til að þér verði stútað“Héraðsdómur Reykjavíkur kvað á mánudag upp dóm yfir manni sem var ákærður fyrir brot í nánu sambandi fyrir að hafa í rúma tvo mánuði fyrr á þessu ári ofsótt fyrrverandi sambýliskonu sína og ógnað lífi, heilsu og velferð konunnar og barna hennar. Maðurinn játaði sök og var því sakfelldur. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sigForstöðumaður Miðstöðvar slysavarna barna segir það algengt að leita þurfi með börn á bráðamóttöku eftir að þau hafi innbyrt nikótínpúða. Börn allt að níu ára prófi að stinga slíku upp í sig. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Telur að utanríkismálanefnd hefði átt að heyra fyrr af samtali Bjarna og TrumpSigurður Helgi Pálmason, varaformaður utanríkismálanefndar, telur að betra hefði verið ef nefndin hefði fengið að vita fyrr af símtali Donalds Trump til Bjarna Benediktssonar, þáverandi forsætisráðherra, stuttu fyrir alþingiskosningar 2024. Málið var fyrst rætt á síðasta fundi utanríkismálanefndar. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Minningarathöfn um Hönnuh JaneMinningar- og þakkarstund verður haldin í Áskirkju í Reykjavík á morgun vegna Hönnu Jane Large sem lést í bílslysinu við Krýsuvíkurveg 31. ágúst. Ása Björk Ólafsdóttir prestur sér um stundina sem fer fram á ensku. Hanna Jane var ein þriggja sem létust í bílslysinu. Hún var skiptinemi á Íslandi. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu ÞjóðmálaEigandi birtingarhúss sem bókaði auglýsingar fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna í síðasta mánuði segir að Áfram Ísland hafi ekki greitt fyrir auglýsingu í nafni hlaðvarpsins Þjóðmála. Auglýsing á RÚV hafi verið misskráð á kennitölu Áfram Íslands. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Deilt um afdrif ESB-umsóknarÞorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra vék sér hjá því að svara ítrekuðum spurningum stjórnarandstöðuþingmanna á Alþingi í gærkvöldi um stöðu aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu (ESB) frá 2009. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Kristrún ætlar að ræða við Trump um samskipti ríkjannaKristrún Frostadóttir forsætisráðherra ætlar að ræða samskipti Íslands og Bandaríkjanna við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, þegar hún hittir hann í New York síðar í mánuðinum. Hún segist gera þá kröfu að fólk virði fullveldi og sjálfstæði landsins. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Breytilegar áttirBreytilegar áttir leika um landsmenn í dag, allt frá golu upp í allhvassan vind vestan og norðvestan til þar sem verður hvassast þegar líður á daginn. Víða verður einhver væta nema helst á Norðaustur- og Austurlandi. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Innbrotsþjófurinn“ reyndist vera í vinnunniNokkrir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Tveir þeirra reyndust jafnframt hafa verið sviptir ökuréttindum. Annar ökumaður, sem einnig var grunaður um fíkniefnaakstur, var með piparúða á sér og var hann kærður fyrir brot á vopnalögum. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir