Sýnir: Innlendar fréttir
11.040 fréttir fundust
Síða 117 af 221
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Enginn andvígur hvalveiðumAtvinnuvegaráðherra boðar frumvarp um hvalveiðar í haust og hefur sagt óbreytta stöðu ekki inni í myndinni. Þingmenn sem mættu í Pallborðið í gær voru beðnir um að taka afstöðu til veiðanna og sagðist enginn þeirra vera andvígur þeim. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Skordýr í hádegisverði í sex skólumÍ dag fundust skordýr í hádegisverði frá Skólamat ehf. í sex skólum – þar af fjórum leikskólum Reykjavíkurborgar. Skordýrin fundust í hrísgrjónum frá Garra sem notuð voru í matargerð. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Vestmannaeyjabær mátti ekki segja kennara upp fyrirvaralaustInnviðaráðuneytið úrskurðaði í ágúst að Vestmannaeyjabæ hefði verið óheimilt að reka grunnskólakennara fyrirvaralaust í fyrra. Kennarinn kærði þessa ákvörðun bæjarins. Ráðuneytið komst að þeirri niðurstöðu að sveitarfélagið hefði ekki gætt nægilega að meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Norræna blaðamannasambandið áhyggjufullt yfir þróun á ÍslandiNorræna blaðamannasambandið (NJF) lýsir þungum áhyggjum af stöðu blaðamennsku og fréttamilða á Íslandi. Í yfirlýsingunni frá sambandinu segir að um áratugaskeið hafi Ísland verið meðal fremstu ríkja í fjölmiðlafrelsi; stöðu sem byggði á sterkri vernd tjáningarfrelsis og skilningi á… Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Segja vinnu- og hvíldartíma flugmanna innan markaIcelandair segir kjarasamning sinn við FÍA ganga í mörgum tilfellum lengra en reglugerðir hvað varðar hvíld. Þá séu vinnustundir áhafna félagsins ávallt undir þeim fjölda sem reglugerðir heimila. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Banna innfluttar dýraafurðir frá BrasilíuBann við innflutningi dýraafurða frá Brasilíu tók gildi í byrjun september. Notkun sýklalyfja í landbúnaði samræmist ekki ESB-löggjöf. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
1,5 gráðu hlýnun orðin óumflýjanlegEkki er lengur talið raunhæft að koma í veg fyrir að hnattræn hlýnun fari yfir 1,5°C til lengri tíma. Engu að síður er enn hægt að hafa áhrif á hversu alvarleg og víðtæk áhrif loftslagsbreytingar verða. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Skordýr í súpu skólabarnaSkordýr fundust í kjötsúpu sem Skólamatur sendi frá sér til sex leik- og grunnskóla í hádeginu í dag. Fyrirtækið segir um frávik í aðkeyptu hráefni frá fyrirtækinu Garra að ræða. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Lenti í bleytu og fór þvert yfir veginnTildrög umferðaróhappsins sem varð fyrir norðan fyrr í dag voru sú að ökumaður jepplings var að koma inn á hringveginn af Víkurskarðsvegi þegar eitthvað fór úrskeiðis. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sérsveitin kölluð til á AkureyriLögreglan á Akureyri óskaði eftir hjálp sérsveitar ríkislögreglustjóra við lögregluaðgerð að íbúðarhúsi við Engimýri á Akureyri rétt eftir klukkan eitt í dag. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginuSkordýr fundust í skólamat sem borinn var fram fyrir börn í leikskólum í Breiðholti í Reykjavík í dag. Skólamatur, sem útbjó matinn, segir tilkynningar vegna málsins hafa borist frá sex skólum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Allir eru einhvers konar „nörd“Bókasafni Hafnarfjarðar verður breytt í fimm ólíka ævintýraheima um helgina þegar búninga- og leikjahátíðin Heimar og himingeimar fer þar fram. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sérsveitaraðgerð við heimahús á AkureyriLögreglan á Norðurlandi eystra og sérsveit Ríkislögreglustjóra voru kallaðar að heimahúsi við Engimýri á Akureyri á öðrum tímanum í dag. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sextíu milljónir í langþráðar viðgerðir í BreiðdalsskólaEftir áralanga bið eru viðgerðir hafnar á leik- og grunnskólanum á Breiðdalsvík. Vatnsskemmdir urðu á húsinu vegna leka. Skólahald verður fært til meðan á framkvæmdum stendur. Skólarnir á Breiðdalsvík og á Stöðvarfirði voru sameinaðir 2018 vegna fækkunar barna. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sérsveitin kölluð að heimahúsi á AkureyriLögreglan á Norðurlandi eystra var kölluð að íbúðarhúsi við Engimýri á Akureyri um klukkan hálf tvö í dag. Sérsveit ríkislögreglustjóra fór einnig á vettvang. Málið er enn í vinnslu og lögregla gefur hvorki upp hvort einhverjir séu í haldi né hvers vegna lögregla þarfnaðist liðsinnis… Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ljósastaurar settir niður á nýjan leikNú er unnið að því að setja á nýjan leik niður ljósastaura sem teknir voru upp vegna flutninga á vindmyllum frá Þorlákshöfn að Vaðölduveri sem er á hraun- og sandsléttu austan Þjórsár, sunnan við Sultartangastíflu MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ókeypis klukkutími kveikir deilur í RáðhúsinuHeiða Björg Hilmisdóttir og Pétur Marteinsson, fulltrúar Samfylkingarinnar, sögðu að breytingar á skiltum myndu kosta yfir 40 milljónir króna auk þess sem borgin yrði fyrir tekjutapi. Þau töldu jafnframt hættu á minni nýtingu bílastæðahúsa. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Ný áskriftarkort og breytingar á akstursleiðumVegagerðin vekur athygli á breytingum á vöruframboði áskriftarkorta og breytingum á fimm af 26 akstursleiðum landsbyggðarvagna sem starfræktar eru í leiðarkerfi landsbyggðarstrætó um land allt. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Treyjudagurinn: Mynduðu hring í kringum ÖldutúnsskólaTreyjudagurinn er í dag. Þetta er í fyrsta skipti á Íslandi sem haldið er formlega upp á hann. Fólk er hvatt til að klæðast uppáhalds íþróttatreyju sinni til að sýna samstöðu og stuðning við börn sem glíma við krabbamein og fjölskyldur þeirra. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Umferðaróhapp á VíkurskarðsvegiBifreið var ekið á vegrið á Víkurskarðsvegi, við afleggjarann að Víkurskarði. Viðbragðsaðilar eru á vettvangi. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundiðAnna Lilja Ragnarsdóttir hefur verið sett sem sýslumaður á Suðurlandi og Sæunn Magnúsdóttir sett sem sýslumaður í Vestmannaeyjum frá og með 22. ágúst 2026. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Nýtt nafn á félagið er til umræðuLagt verður til á aðalfundi Skógræktarfélags Íslands (SÍ), sem haldinn verður um helgina, að nafni þess verði breytt svo betur endurspeglist að þetta séu landssamtök. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sýslumenn á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum skipaðir tímabundiðAnna Lilja Ragnarsdóttir hefur verið sett sem sýslumaður á Suðurlandi og Sæunn Magnúsdóttir sem sýslumaður í Vestmannaeyjum. Setningarnar tóku gildi 22. ágúst og gilda til 31. desember 2026. Greint er frá þessu á vef Stjórnarráðs Íslands. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Geta ekki boðið börnum í greiningu án húsnæðisStarfsemi Ráðgjafar- og greiningarstöðvar hefur verið verulega takmörkuð í að verða mánuð eftir að mygla greindist í húsnæði starfseminnar í byrjun ágúst. 790 börn með alvarlegar þroskaskerðingar eru á biðlista eftir þjónustu hjá stöðinni, þar af 770 á biðlista eftir greiningu. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍFinnbjörn A. Hermannsson ætlar ekki að bjóða sig aftur fram sem forseta Alþýðusambands Íslands. Nú taki ný verkefni við eftir áratuga kjarabaráttu. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Við troðum marvaða hvern dag“Ritstjórar á héraðsmiðlum segja reksturinn erfiðan. Þeir gagnrýna að hið opinbera versli sífellt fleiri auglýsingar á samfélagsmiðlum. „Við troðum marvaða hvern dag. Þetta er bara hark,“ segir Gunnar Gunnarsson, ritstjóri Austurfréttar og Austurgluggans. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Gefa ekkert upp um svör Íslands til TrumpsÍslensk yfirvöld upplýsa ekki um svör sín til Bandaríkjanna vegna spurningalista sem bandarísk stjórnvöld sendu á ríkisstjórnir annarra ríkja Atlantshafsbandalagsins nýlega. Spurningarnar snúa meðal annars að afstöðu stjórnvalda til utanríkisstefnu Bandaríkjanna. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Norður-Víkingi lokiðVarnaræfingunni Norður-Víkingi 2026 lauk í vikunni en æfingin er að jafnaði haldin annað hvert ár hér á landi. Varnir Íslands voru æfðar með aðgerðum á sjó, landi og í lofti ásamt varnaráætlunum og viðbragði Atlantshafsbandalagsins, undir stjórn herstjórnarinnar í Norfolk. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt SamfylkingunaKratinn, upplýsingavettvangur þingflokks Samfylkingarinnar, telur að þjóðaratkvæðagreiðslan um aðildarviðræður við Evrópusambandið hafi styrkt stöðu flokksins. Í greiningu sem send var félagsmönnum er fylgistap nokkurra flokka sett í samhengi við afstöðu þeirra til viðræðnanna. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Grænmetissmakk og messa á uppskeruhátíð á FlúðumGarðyrkjubændur keppast nú við að ná útiræktaða grænmetinu sínu í hús og þeir garðyrkjubændur sem eru með ræktunina í upphituðum gróðurhúsum eru stöðugt að tína uppskeruna af plöntunum. Á morgun verður haldin sérstök uppskeruhátíð á Flúðum og næsta nágrenni þar sem allir eru velkomnir að mæta. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Hreinlegast“ að afturkalla umsókninaSigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins, segir langskynsamlegast fyrir ríkisstjórnina að draga aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu formlega til baka. Hún segir óásættanlegt að óvissa ríki um réttaráhrif umsóknarinnar og telur að ríkisstjórnin verði að fylgja niðurstöðu… MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hugsi yfir framlagi KristrúnarAnnar hlaðvarpsstjórnanda breska hlaðvarpsins Rest is Politics veltir því upp hvort skortur á forystu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra hafi orðið til þess að ekki tókst að fá meirihluta Íslendinga til þess að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslu síðustu helgi. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallaraBæjarráð Hafnarfjarðarbæjar hefur samþykkt að fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara og sameiginlegra bifreiðageymslna. Markmiðið er að bílastæði færist í auknum mæli neðanjarðar. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tveggja flokka ÍslandVinstri grænir er sá flokkur, sögu sinnar vegna, sem ætti helst möguleika að komast á þing. Formaður flokksins, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, skaut sig í fótinn er hún gekk til liðs við já-hreyfinguna. Þrír fyrri formenn flokksins, Svandís, Kata Jak. og Steingrímur J. voru allir í nei-fylkingunni. Frettin - Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Dómsmálaráðherra ræður tvær konur til viðbótar sem sýslumennSetningar Önnu Lilju og Sæunnar gilda til 31. desember 2026. Þær taka mið af þeim breytingum sem fram undan eru og er ætlað að tryggja stöðugleika og samfellu í stjórnun og starfsemi embættanna tveggja fram að 1. janúar 2027 þegar sýslumannsembættin sameinast í eitt embætti. Fréttatíminn - Innlent Innlendar fréttir
Næstum allar ábendingarnar um Áfram ÍslandNæstum tuttugu ábendingar og kvartanir hafa borist til Persónuverndar vegna símhringinga og skilaboða í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna. Forstjóri Persónuverndar segir allar nema eina snúa að Áfram Íslandi. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Spursmál: Ráðast þarf í enn frekari hagræðinguGrípa þarf til enn frekari aðhaldsaðgerða hjá Reykjavíkurborg að sögn Hildar Björnsdóttur borgarstjóra sem er gestur Spursmála að þessu sinni. Hallareksturinn nam 4,6 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ráðast þarf í enn frekari hagræðinguGrípa þarf til enn frekari aðhaldsaðgerða hjá Reykjavíkurborg að sögn Hildar Björnsdóttur borgarstjóra sem er gestur Spursmála að þessu sinni. Hallareksturinn nam 4,6 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Finnbjörn kveður á komandi þingi ASÍFinnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi setu sem forseti sambandsins á komandi þingi ASÍ í næsta mánuði. Finnbjörn segist kominn á eftirlaunaaldur og að hann telji þá eðlilegt að hætta og að láta nýjan forseta taka við. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ólíklegt er að Blöndulón fyllist þetta sumarMiðlunarstaðan lóna Landsvirkjunar á hálendinu er góð þrátt fyrir lakara innrennsli í lónin en gerist og gengur í meðalári. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Telja of dýrt að gera upp aldargamalt húsSveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar telur ekki forsvaranlegt að ráðast í umfangsmiklar endurbætur á gamla Þinghúsinu miðað við núverandi forsendur. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Djúp sorg á Írlandi eftir banaslys Hönnuh á KrýsuvíkurvegiSorg ríkir á Írlandi eftir að hin átján ára gamla Hannah Jane Large, lést í hinu hörmulega umferðarslysi á Krýsuvíkurvegi aðfaranótt mánudags. Hannah var búsett í bænum Greystones í Wicklow-sýslu, en hún var ein þriggja ungmenna sem létust þegar bifreið þeirra fór út af veginum suður af Reykjavík. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Nýtt Kvennaathvarf í ReykjavíkSamtök um Kvennaathvarf opnuðu í gær nýtt kvennaathvarf í Reykjavík eftir margra ára undirbúning. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“Forstjóri ÞG Verks fagnar því að nýr meirihluti Reykjavíkurborgar hafi dregið úr kvöðum á íbúðauppbyggingu. Breytingarnar muni ekki hafa afgerandi áhrif á erfiðan byggingarmarkað til skemmri tíma en geti auðveldað verktökum að byggja minni og ódýrari íbúðir sem eftirspurn sé eftir. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hagtölur þjóðarinnar færðar yfir BorgartúniðHagstofan mun í dag flytja starfsemi sína úr Borgartúni 21a þar sem stofnunin hefur verið til húsa í 23 ár. Leiðin liggur ská yfir hringtorgið fyrir framan núverandi húsnæði og í Borgartún 26 í rými þar sem dómsmálaráðuneytið og matvælaráðuneytið voru til húsa. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ók á 190 km. hraða - Svipting og há sektÖkumaður stöðvaður fyrir of hraðan akstur en sá ók á 190 km/klst þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Ökumaður var fluttur á lögreglustöð þar sem hann var sviptur ökuréttindum vegna málsins. Fréttatíminn - Innlent Innlendar fréttir
Anna Lilja fær eftirsótt embættiUndanfarna mánuði hefur dómsmálaráðuneytið unnið að undirbúningi sameiningarinnar í samstarfi við sýslumannsembætti landsins. Um er að ræða umfangsmikla stjórnsýslubreytingu og er undirbúningnum ætlað að tryggja farsæla yfirfærslu þegar nýtt embætti tekur formlega til starfa um áramótin. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
RÚV eigi ekki að „bítast um molana“Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, segir að sú þróun að Ríkisútvarpið sæki sér aukið fjármagn í gegnum endurgreiðslukerfi kvikmynda verði skoðuð við gerð nýs þjónustusamnings stofnunarinnar. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir