Sýnir: Innlendar fréttir
11.027 fréttir fundust
Síða 16 af 221
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Tveir enn í varðhaldi vegna manndráps á KársnesiRannsókn lögreglu á manndrápi pólsks karlmanns á Kársnesi í ágúst stendur enn yfir og teygir sig til að minnsta kosti þriggja landa. Tveir pólskir ríkisborgarar eru enn í gæsluvarðhaldi vegna málsins, sem hefur verið framlengt til 3. nóvember. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Mjög óheillavænleg þróun“Lyfjafræðingur segir stóraukna notkun geðrofslyfs við svefnleysi óheillaþróun. Lyfið geti valdið alvarlegum aukaverkunum, jafnvel í litlum skömmtum eins og hækkun á blóðfitu og blóðsykri. Hann telur að fólk geti orðið háð lyfinu og hvetur lækna til að hætta að ávísa því við svefnleysi. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálumBoðuð einföldun á jafnlaunareglum hefur aukið vinnu og kostnað fyrirtækja, að mati Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hún efast um að verið sé að fylgja vilja Alþingis og vill að ný framkvæmd Jafnréttisstofu verði sett á bið. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Gagnrýnir stjórnina fyrir verkleysi á AlþingiMjög lítið er að frétta af störfum Alþingis það sem af er þingvetri. Ríkisstjórnin hefur aðeins komið með rúmlega þrjátíu af þeim tæplega 160 málum í þingið sem boðuð eru á þingmálaskrá. Fyrrverandi ráðherra gagnrýndi þetta harðlega á Alþingi og skoraði á forseta þingsins að beita sér. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Nýtt félag á flugfraktmarkaðiTVG-Zimsen, dótturfélag Eimskips, og Kales Group B. V., alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í umboðsþjónustu fyrir flugfélög, hafa stofnað Kales Iceland. Félagið er sameiginlegt verkefni beggja aðila og mun starfa sem sjálfstæður umboðsaðili í sölu og þjónustu (GSSA) fraktflutninga fyrir… MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Óseldum nýjum íbúðum fjölgar um 85%Fullbúnum óseldum íbúðum hefur fjölgað um 85% á einu ári og rúmlega helmingur nýbygginga á höfuðborgarsvæðinu seldist undir ásettu verði í ágúst. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytastBirtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum virðast vera að breytast. Mun algengara er til að mynda að yngri konur en eldri séu beittar kyrkingartaki í kynlífi án samþykkis og kennari segir sláandi hversu útbreidd sú skoðun sé orðin að ofbeldi sé eðlilegur fylgifiskur kynlífs. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Veðrið næstu dagaAustlæg eða breytileg átt, víða 3-10 m/s. Austan 8-15 á Vestfjörðum seinnipartinn, en norðvestan 5-13 austanlands. Rigning eða slydda með köflum á láglendi og snjókoma inn til landsins, en þurrt að kalla á Suður- og Vesturlandi. Breytileg átt 3-8 á morgun. Fréttatíminn - Innlent Innlendar fréttir
Vilja öruggari samgöngur á öllum árstíðumMarkmiðið er að bæta öryggi, auka aðgengi og stuðla að auknum skilningi og virðingu milli ólíkra hópa vegfarenda. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Dæmt til að endurgreiða þrotabúi 53,2 milljónirHéraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Hegra fjárfestingar ehf. til að endurgreiða þrotabúi Bílaleigu Reykjavíkur ehf. rúmar 53,2 milljónir króna, auk vaxta, og greiða 900 þúsund krónur í málskostnað. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnarAf þeim tugum sem sagt var upp störfum hjá Reykjavíkurborg í hagræðingaraðgerðum hafa um það bil fimm verið ráðnir aftur. Þetta segir Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Kólumbíumenn enn í varðhaldi vegna kókaínsmyglsFimm kólumbískir ríkisborgarar, þar af þriggja manna fjölskylda, sitja enn í gæsluvarðahaldi lögreglunnar á Suðurnesjum vegna kókaínsmygls í tveimur málum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gegn 14 ára stúlkuHéraðsdómur Reykjavíkur sýknaði karlmann í síðustu viku af ákæru um kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku. Hann var ákærður fyrir að senda stúlkunni ítrekað kynferðisleg skilaboð og að hafa mælt sér mót við hana til að hafa við hana samræði eða önnur kynferðismök. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sýknaður eftir kynferðisleg Snapchat-samskipti við 14 ára stúlkuStúlkan greindi lögreglu frá því að maðurinn hefði sent henni myndir af sér. Á sumar myndanna var skrifaður texti með lýsingum á kynferðislegum athöfnum, svo sem "Hvernig eg kyssi þig, stryk þer, held fast i hári, strýk lærunum og gríp í þau, snerti þig utan frá, verður blaut í gegn áður en eg tek… Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Hellisheiðarvirkjun 20 ára í dagÍ dag eru slétt 20 ár liðin frá því að Hellisheiðarvirkjun var formlega gangsett en það gerðist á þessum degi árið 2006. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Helliheiðarvirkjun 20 ára í dagÍ dag eru slétt 20 ár liðin frá því að Hellisheiðarvirkjun var formlega gangsett en það gerðist á þessum degi árið 2006. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknaraÞingmenn vilja að sérstök rannsóknarnefnd kanni hvort réttindi sakborninga hafi verið virt við rannsókn mála eftir bankahrunið. Meðal annars verði farið yfir hleranir, handtökur og varðveislu rannsóknargagna hjá sérstökum saksóknara. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunniKarlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað þáverandi sambýliskonu sinni á heimili þeirra í janúar árið 2022, með því að hafa samræði við hana á meðan hún var meðvitundarlaus. Þá er hann sagður hafa útbúið myndskeið af nauðguninni. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hægt að loka Reykjanesbraut með fjarstýringuVegagerðin hefur tekið í notkun nýjan, fjarstýrðan lokunarbúnað á Reykjanesbraut til vesturs, við mislæg gatnamót skammt frá álverinu í Straumsvík. Með búnaðinum er hægt að loka brautinni með stuttum fyrirvara, sem styttir viðbragstíma og eykur öryggi bæði vegfaranda og viðbragðsaðila. Vegagerðin - Fréttir Innlendar fréttir
Vill láta rannsaka störf sérstaks saksóknara og fleiriNefndin mun einnig fara yfir störf annarra stofnana og embættismanna að því leyti sem þau tengjast rannsóknum sérstaks saksóknara en þar má til dæmis nefna lögregluna, embætti ríkissaksóknara, Fjármálaeftirlitið, Samkeppniseftirlitið og aðra réttarvörslu- og eftirlitsaðila. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Passamyndin nú óþörf hjá sýslumanniAllt að 40 þúsund umsækjendur um ökuskírteini gætu árlega komist hjá því að mæta til sýslumanns því nú hefur verið heimilað að nota ljósmynd úr gildu vegabréfi í stafrænum umsóknum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Smyrill í NorðurmýriÍbúar í Norðurmýri urðu varir við smyril í morgun. Ýr Jóhannsdóttir gekk fram á fuglinn á horni Gunnarsbrautar og Flókagötu á leið sinni til vinnu í morgun. „Ég hef aldrei séð svona fugl í hverfinu,“ segir hún. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Atvinnuleysi dróst samanAtvinnuleysi mældist 5,7 prósent í september en alls voru rúmlega fimmtán þúsund án atvinnu samkvæmt árstíðarleiðréttum niðurstöðum rannsóknar Hagstofunnar. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Ekki metnir að verðleikum“„Þessi vinna þarf að skila breytingum sem sjúkraliðar og sjúklingar finna fyrir. Við þurfum skýrari hlutverk, raunveruleg tækifæri til starfsþróunar og kerfi sem styðja við störf sjúkraliða. Tillögunum þarf síðan að fylgja eftir með skýrri ábyrgð og tímasettum aðgerðum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinumForysta Viðreisnar fær kaldar kveðjur í nýjum pistli Jóns Gnarr, sem lýsir sér sem hermanni sem hafi verið sendur óstuddur í tapaðan bardaga. Ábendingum hans um bágborið ástand herdeildarinnar hafi lítt verið sinnt og nú telji hann sér betur borgið utan hennar. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Eiríkur Rögnvaldsson varð lítið var við óeirðir í ParísEiríkur Rögnvaldsson, uppgjafaprófessor í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, segir að þrátt fyrir fréttir af miklum óeirðum í París hafi daglegt líf í borginni að mestu gengið sinn vanagang þegar hann dvaldi þar nýverið. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Skyrið er í sókn og hús stækkaðMikil aukning í framleiðslu og sölu á skyri ræður því að Mjólkursamsalan stækkar vinnslustöð sína á Selfossi. Búið er að steypa veggi og verið er að loka þekju 1.500 fermetra húss sem er sunnan við aðalbyggingu mjólkurbúsins. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitiðÁrásin átti sér stað á heimili parsins. Samkvæmt framburði konunnar sparkaði maðurinn upp hurð að svefnherbergi þar sem hún hafði læst sig inni. Hann réðst síðan á hana í rúminu, sló hana ítrekað í andlitið, reif í hár hennar, hélt fyrir munn hennar og nef og tók hana kyrkingartaki. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Kyrkti sambýliskonuna þar til hún óttaðist um líf sittÁrásin átti sér stað á heimili parsins. Samkvæmt framburði konunnar sparkaði maðurinn upp hurð að svefnherbergi þar sem hún hafði læst sig inni. Hann réðst síðan á hana í rúminu, sló hana ítrekað í andlitið, reif í hár hennar, hélt fyrir munn hennar og nef og tók hana kyrkingartaki. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Alls 137% munur á tilboðunumMikill munur var á þeim tveimur tilboðum sem bárust í byggingarrétt á lóðinni Hraunberg 1 í Breiðholti. Landslagnir ehf. áttu hæsta tilboðið í byggingarréttinn sem hljóðar upp á allt að 16 íbúðir. Það var upp á tæplega 123 milljónir króna. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Dæla eldsneyti til styrktar Bleiku slaufunniStarfsfólk Orkunnar tekur þátt í Bleika deginum en það mun í dag taka yfir eldsneytisdælurnar á Orkustöðinni við Dalveg í Kópavogi milli klukkan 11 og 14. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum samanSamtökin Norðurhjálp hafa aldrei náð að gefa jafn háar upphæðir til þeirra sem þurfa á aðstoð að halda og í ár. Ein af stofnendum samtakanna segir það sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Mokað allan liðlangan daginnFramkvæmdir við dýpkun í Hafnarfjarðarhöfn hafa staðið yfir frá í fyrravetur. Næsta sumar mun ný smábátahöfn líta dagsins ljós og breytir ásýnd hafnarsvæðisins. Nákvæmar mælingar liggja að baki slíkum verkefnum og áætlað er að um 50 þúsund rúmmetrum af jarðefni hafi verið mokað upp af hafsbotni. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ásgeir grípur til varna eftir Kveiksumfjöllun um ÖlgerðinaHann segir staði sína kaupa vörur af alls 14 drykkjarvörubirgjum og að búnaður frá Ölgerðinni sé einnig notaður undir vörur frá keppinautum fyrirtækisins. Á Röntgen séu meðal annars Peroni og náttúruvín á dælu og ein dæla ávallt frátekin fyrir smábrugghús. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Framlengja gæsluvarðhald yfir fjórum sakborningum í stórum fíkniefnamálumLandsréttur staðfesti á föstudag og mánudag þrjá úrskurði Héraðsdóms Reykjaness og einn úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um gæsluvarðhald yfir mönnum sem grunaðir eru um að eiga aðild að stórfelldu fíkniefnasmygli. Mennirnir tengjast þremur málum sem eru til rannsóknar eða fyrir dómstólum. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Mætir næst skipulagðari og betur vopnum búinnÍ pistlinum rekur Jón vegferð sína innan þingflokks Viðreisnar, sem lauk í síðustu viku með því að hann sagði sig úr þingflokknum, með samlíkingu úr hernaði. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til PortúgalUnnur Lilja Andrésdóttir hélt að hún myndi deyja í útskriftarferð sinni með FG til Portúgal fyrir tveimur árum og vill vekja athygli á því að ýmislegt geti komið upp í slíkum ferðum. Fimm menn réðust að henni á skemmtistað eitt kvöldið. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Nær einróma óánægja með útfærslu kvarðansUmsagnaraðilar um viðbótarákvæði við breytingar á aðalnámskrá varðandi einkunnakvarða í tíunda bekk grunnskóla virðast vera á nær einu máli um að breytingarnar séu ekki til þess fallnar að stuðla að markmiðum ráðherra um samræmi, aukið jafnræði milli nemenda og skýrleika einkunnanna þótt þau séu… MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og ÍslandsTil skoðunar er að hefja ferjusiglingar milli Aberdeen í Skotlandi og Seyðisfjarðar. Sveitarstjóri Múlaþings segir þó langt í að hugmyndin verði að veruleika gangi allt eftir. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómiEigandi jarðarinnar Óseyrar við Stöðvarfjörð segir allt ógirt land á Íslandi virðast hafa verið tekið einhvers konar eignarnámi með dómi í máli hans gegn Fjarðabyggð. Dómstóll taldi sveitarfélagið ekki hafa skyldu til að smala ágangsfé af jörðinni því féð hefði komið úr sameiginlegum bithaga. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hvalfjarðargöngum var lokað stutta stund vegna bilaðs bílsHvalfjarðargöngum var lokað á níunda tímanum vegna bilaðs bíls í göngunum. Búið er að opna þau aftur. Tilkynnt var um lokunina á vef Vegagerðarinnar klukkan 08:25. Hægt er að fylgjast með uppfærslum á vef Vegagerðarinnar. Fréttin hefur verið uppfærð. Frá Hvalfjarðargöngum. Mynd úr safni. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hvalfjarðargöng lokuðust stutta stund vegna bilaðs bílsHvalfjarðargöngum var lokað á níunda tímanum vegna bilaðs bíls í göngunum. Búið er að opna þau aftur Tilkynnt var um lokunina á vef Vegagerðarinnar klukkan 08:25. Hægt er að fylgjast með uppfærslum á vef Vegagerðarinnar. Fréttin hefur verið uppfærð. Frá Hvalfjarðargöngum. Mynd úr safni. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hvalfjarðargöng lokuð vegna bilaðs bílsHvalfjarðargöng eru lokuð vegna bilaðs bíls í göngunum. Tilkynnt var um lokunina á vef Vegagerðarinnar klukkan 08:25. Ekki er vitað hvenær göngin verða opnuð að nýju. Hægt er að fylgjast með uppfærslum á vef Vegagerðarinnar. Frá Hvalfjarðargöngum. Mynd úr safni. RÚV / Eva Björk Benediktsdóttir Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hvalfjarðargöng opin á nýjan leikLokað var fyrir umferð um Hvalfjarðargöng vegna bifreiðar sem bilaði í göngunum um klukkan átta í morgun. Klukkan 8.48 voru göngin opnuð að nýju. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Viðræður hafnar um ferju milli Seyðisfjarðar og AberdeenTil skoðunar er að koma á siglingum á milli borgarinnar Aberdeen í Skotlandi og Seyðisfjarðar. Sveitarfélagið á í viðræðum við hafnaryfirvöld þar í landi. „Þetta er nú hugmynd sem er lengi búin að vera fljótandi hér í þessu sveitarfélagi eða alveg síðan ferjan hætti að sigla á sínum tíma. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Átök um vindorkuver í NorðurþingiÁgreiningur er innan sveitarstjórnar Norðurþings um virkjanahugmyndir Hnotasteins á Hólaheiði, austan Kópaskers, þar sem áform eru uppi um að reisa 34-40 vindmyllur sem eru 150-200 metra háar og áætlað er að geti framleitt 190-200 megavött af raforku. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Víða hálka á höfuborgarsvæðinuÞað frysti á höfuðborgarsvæðinu í nótt og eflaust þurfa margir að taka fram rúðusköfuna áður en þeir halda út í morgunumferðina. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Víða hálka á vegumVegfarendur ættu að hafa varann á sér því víða er hálka eða snjóþekja á vegum úti. Einnig er hálka á vissum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Fram kemur á umferðarvef Vegagerðarinnar að hálka eða hálkublettir séu víða frá Vesturlandi um Norðurland, Austurland og Suðausturland. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir