Sýnir: Innlendar fréttir
11.027 fréttir fundust
Síða 19 af 221
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Grunuð um að hafa misnotað rafræn skilríki karlaMálið vakti mikla athygli árið 2023 þegar konan sat í tólf vikur í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu. Samkvæmt gæsluvarðhaldsúrskurði Landsréttar voru þá til rannsóknar meint brot gegn ellefu karlmönnum að fjárhæð um 25 milljónir króna. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Leikskóli opnar aftur á DrangsnesiLeikskóli hefur opnað aftur á Drangsnesi eftir sjö ára hlé. Þrjú börn eru í aðlögun á leikskóladeildinni sem er í húsnæði Grunnskólans á Drangsnesi. Í Kaldrananeshreppi eru átta börn undir sex ára aldri og Finnur Ólafsson, oddviti í Kaldrananeshreppi, segir opnun leikskóladeildarinnar svar við… Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Mjög góður árangur hjartaaðgerðaKransæðahjáveituaðgerðum hefur fækkað umtalsvert á síðustu tveimur áratugum og eru þær nú helmingi færri hér en í Svíþjóð. Þá er langtímaárangur af slíkum aðgerðum talinn afar góður hér á landi. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Segir alhæfingar Hannesar um mótmælin í Frakklandi „bara bull til að blekkja“Hjálmtýr Heiðdal, formaður félagsins Ísland-Palestína, gagnrýnir Hannes Hólmstein Gissurarson harðlega fyrir ummæli hans um mótmæli og óeirðir í Frakklandi. Í Facebook-færslu sem hann nefnir „Alhæfingar Hannesar Hólmsteins“ segir Hjálmtýr prófessorinn reyna að telja fólki trú um að… Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Ráðuneytið keypti áfengi af SantéFjármálaráðuneytið keypti áfengi af áfengisbirgjanum Santé tvisvar á árunum 2018 og 2019. Fyrirtækið starfrækir í dag áfengisnetverslun sem var opnuð árið 2021 en hefur selt áfengi lengur. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
78 fangelsisdómar fyrndust í fyrraFjöldi fangelsisdóma sem fyrnast án þess að þeim sé fullnægt hefur meira en tvöfaldast á síðustu tíu árum. Alls fyrndust 78 dómar í fyrra, en þeir voru 38 fyrir tíu árum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hlutabréf í Alvotech hækka í verðiVerð hlutabréfa í Alvotech hefur hækkað um sjö prósent í morgun. Þetta gerist eftir að fyrirtækið tilkynnti um samþykki Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA) á nýrri aðferð við framleiðslu á Simlandi. Simlandi er hliðstæða við líftæknilyfið Humira. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Stórkostlegt að sjá umskiptin í KínaJakob Frímann Magnússon segir það hafa verið magnað að sjá hvílíkar breytingar hafi orðið í kínversku samfélagi síðan hann heimsótti Kína með Stuðmönnum fyrir 40 árum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Stjórnvöld viðurkenndu að skilyrði bryti gegn EES-reglumÍ síðari auglýsingunni var meðal annars gerð krafa um að umsækjendur rækju flugskóla þar sem bæði bóklegur og verklegur hluti námsins væri í boði hér á landi. Fyrirtækið taldi skilyrðið fela í sér ólögmæta mismunun og brjóta gegn grunnreglum EES-samningsins. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Málverkið af Bjarna ekki uppiAldrei kom til umræðu, í tengslum við gerð söguhorns í Höfða, að setja upp sömu listaverk í því rými á jarðhæð hússins, þar sem fundir Ronalds Reagans forseta Bandaríkjanna og Mikhails Gorbatsjofs leiðtoga Sovétríkjanna voru haldnir fyrir 40 árum, þar með talið myndina af Bjarna heitnum… MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Stór skip lóna úti fyrir JökulfjörðumSkip á vegum bandaríska sjóhersins dvelja um þessar mundir við Jökulfirði á Vestfjörðum. Um er að ræða systurskipin HOS Red Rock og HOS Red Dawn, 89 metra löng og rúm 3.900 brúttótonn að stærð. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, segir óheftan straum innflytjenda, sérstaklega múslima, „valda skaða“. Ummælin lét hann falla í tengslum við mótmæla- og óeirðaöldu sem gengur nú yfir Frakkland. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Við áttum okkur alveg á hvaða gæði við erum með í höndunum“Reykjavíkurborg er í mikilli innviðaskuld og miðað við fjárhagsáætlun næsta árs er erfitt að halda við eignum hennar. Borgarstjórn átti sig þó á þeim gæðum sem hún er með í höndunum varðandi Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Þetta segir Björg Magnúsdóttir, forseti Borgarstjórnar. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Gunnar Lárus bætti Íslandsmetið í bakgarðshlaupiÍslandsmetið í bakgarðshlaupi er fallið. Gunnar Lárus Karlsson kom í mark á heimsmeistaramóti landsliða eftir 69 hringi í Elliðaárdal nú klukkan 8.44. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árinGuðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir embætti landlæknis nú vinna að því að endurmeta fyrirkomulag bólusetninga vegna RS-veiru næstu árin. Virkni bóluefnisins dvíni eftir um fimm til sex mánuði og því sé best að gefa það meðan á faraldri stendur eða í aðdraganda hans. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Varað við hálku á SuðurnesjumLögreglan á Suðurnesjum varar við hálku í umdæminu en eitthvað hefur verið um umferðaróhöpp að því er fram kemur í færslu lögreglunnar á Facebook. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hansKarlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir þrjú ofbeldisbrot í Bolungarvík og á Ísafirði. Helmingur dómsins er skilorðsbundinn. Maðurinn kýldi barþjón og dyravörð og veittist að systkinum. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Halldór Ingi enn ófundinnLögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni, 43 ára, og óskar eftir upplýsingum um ferðir hans eða dvalarstað. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Brikk í Hafnarfirði lokað eftir að eldur kom upp í gærEldur kviknaði í potti í bakaríi Brikk á Norðurbakka í Hafnarfirði. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna eldsins undir kvöld í gær. Slökkvistarf gekk vel. Bakaríið verður lokað um óákveðinn tíma að því er segir í færslu á samfélagsmiðlum fyrirtækisins. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Segir vínauglýsingar kolólöglegarÁrni Guðmundsson, formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum, segir engan vafa leika á að áfengisauglýsingar eins og þær sem sendar hafi verið í markpósti frá netversluninni Heimkaup, sem Morgunblaðið fjallaði um í síðustu viku, séu ólöglegar. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tekur sæti Maríu sem er í fríi í VíetnamEdit Ómarsdóttir tók í gær sæti á Alþingi í fyrsta sinn. Hún skipaði 2. sæti á lista Viðreisnar í Norðausturkjördæmi í kosningunum 2024. Oddvitinn er í fríi í Víetnam. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Rólegur vindur víðast hvarÚtlit er fyrir tiltölulega hægan vind um mestallt land. Það er helst austast sem vindurinn nær einhverjum krafti og verður á bilinu 8-13 metrar á sekúndu. Þar verður líka mesta vætutíðin en annars staðar verða dálitlar skúrir eða slydduél. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Rafskútuslys endaði með fíkniefnagrunÍ miðborg Reykjavíkur var tilkynnt um líkamsárás. Meiðsli voru minniháttar en gerandinn var ókunnur þegar dagbókin var tekin saman. Þá var maður í annarlegu ástandi handtekinn í miðborginni vegna gruns um fíkniefnamisferli og vistaður í fangageymslu. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmiNæstum tvöfalt fleiri fá geðrofslyf nú en fyrir tíu árum. Aukningin er sérstaklega mikil meðal eldra fólks. Geðlæknir segir lyfið í vaxandi mæli notað við svefnleysi í stað hefðbundinna svefn- og róandi lyfja. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Brikk lokað í óákveðinn tímaSlökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í 109 verkefnum síðastliðinn sólarhring. Í tveimur þeirra voru kallaðir til dælubílar en rest voru boðanir á sjúkrabíla. 26 boðanir voru á forgangi. Eldur kviknaði í húsnæði Brikk við Norðurbakka í Hafnarfirði. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Eldur kom upp hjá Brikk í HafnarfirðiBakaríið Brikk við Norðurbakka í Hafnarfirði er lokað um óákveðinn tíma eftir að eldur kviknaði í húsnæðinu í gærkvöld. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Skakkur á rafskútuKeyrt var á mann sem ók um á rafskútu í hverfi 105 í Reykjavík í gær eða í nótt. Minnháttar meiðsli urðu á manninum sem ók rafskútunni en hann er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Snjókoma til fjalla austantilÍ dag verður sunnan 8-13 m/s austast á landinu en annars verður vindur hægari. Austantil verður rigning eða slydda og snjókoma til fjalla en annars dálitlar skúrir eða slydduél. Það styttir víða upp um tíma í kvöld. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Líkamsárás og fíkniefnamisferliRafhlaupahjól og bifreið rákust saman í Hlíðarhverfinu í gærkvöld eða í nótt. Meiðsli urðu minni háttar en ökumaður rafhlaupahjólsins er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Geiranum hent undir vagninnEinar Bárðarson framkvæmdastjóri SVEIT segir að í síðustu kjarasamningum fyrir tveimur árum hafi veitingageiranum verið hent undir vagninn, eins og hann orðar það. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Biðu svara í meira en ár„Mér brá einkum við það að svo virðist sem engin áætlun sé til staðar um hvernig nota megi útgjöld til málaflokksins til að raunverulega bæta varnir landsins og auka öryggi landsmanna. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Kom vel undan faraldrinumAlþjóðleg gögn sýna að Ísland hafi komið vel undan Covid-19-faraldrinum. Heildardánartíðni hérlendis var lág, sóttvarnaaðgerðir voru vægari en annars staðar og bólusetningarþátttaka mikil. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Eignuðust hreinlega nýtt líf“Tvenn ungmenni, þolandi og gerandi, hafa að sögn Kristínar Skjaldardóttur, félagsráðgjafa og sérfræðings í uppbyggilegri réttvísi, fengið nýtt tækifæri í lífinu eftir að hafa farið í gegnum sáttaferli hér á landi. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Yrði Reykjavík höfuðborg Norðurlanda?Gunnar Wetterberg, sænskur sagnfræðingur, rithöfundur og fyrrverandi sendierindreki, heimsótti Ísland í síðustu viku og viðraði hugmyndir sínar, sem hann gaf út á bók árið 2010, um eitt norrænt sambandsríki. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Forsetinn fagnaði 80 árunum með stælMikil veisla fór fram hjá Hrútafélaginu svokallaða síðastliðið föstudagskvöld en þar er um að ræða félagsskap innan hins þekkta karlakórs Fóstbræðra. Matreiðslumaðurinn kunni Lárus Loftsson stóð fyrir veislunni í tilefni af áttræðisafmæli sínu fyrr í mánuðinum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Gott dæmi um að það er ekki verið að lækna rétt mein“Í síðustu viku var greint frá því að Litli spítalinn ehf. hafi tekið á leigu neðstu hæðir Háaleitisbrautar 68, sem voru áður að hluta höfuðstöðvar Landsvirkjunar. Ætlunin er að reka margþætta heilbrigðisþjónustu. Þar á meðal er svokölluð smáslysamóttaka, millistig bráðamóttöku og Læknavaktarinnar. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sendiherra Íslands ómyrkur í máli um árásir RússaSex létust í árásinni, þar á meðal eins árs gömul stúlka og önnur sem var ellefu ára að sögn Selenskís. Fjórtán til viðbótar særðust og þar með talin sex börn. Friðrik fordæmir árásina afdráttarlaust. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Vilja undirgöng á breiðari vegiFremur en að brýr séu byggðar vill Suðurnesjabær að útbúin verði undirgöng undir Reykjanesbraut, þar sem hana á að tvöfalda frá Njarðvík að hringtorgi á Miðnesheiði þar sem ekið er að Flugstöð Leifs Eiríkssonar. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við PalestínuStuðningur Íslands við Úkraínu nam 20,4 milljörðum króna frá upphafi allsherjarinnrásar Rússlands í febrúar 2022 til september síðastliðins. Framlög og samningar um stuðning við Palestínu nema samtals um 1,76 milljörðum samkvæmt samantekt á fjárhæðum í skýrslu forsætisráðherra um framkvæmd ályktana… Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í EyjumSjálfkeyrandi bíla mætti prófa í almenningssamgöngum í Vestmannaeyjum, að mati Sigríðar Andersen, þingmanns Miðflokksins. Innviðaráðherra tekur vel í hugmyndina og segir slíkar tilraunir á Heimaey koma vel til greina. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Minnka magn Klaka um hálfan lítraGosfélagið, sem framleiðir Klaka og Klaka Djúsí, hefur ákveðið að hætta framleiðslu á tveggja lítra flöskum og bjóða þess í stað upp á 1,5 lítra flöskur. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Brugðust illa við svörum Ingu SælandStjórnarnandstaðan sakaði Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra um dónaskap þegar hún var beðin um að útskýra nýtt einkunnakerfi í grunnskóla á þingi í dag. Í vor verður nemendum í 10. bekk grunnskóla gefin einkunn í tölustöfum í stað bókstafa áður. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Stærri þotur innanlands vegna veðurofsa helgarinnarAlls var 35 flugferðum aflýst á laugardag og sunnudag að því er kemur fram í svari Isavia við fyrirspurn mbl.is. Þar eru fleiri flugvellir undir eins og á Vopnafirði, Þórshöfn, Grímsey, Bíldudal og Ísafirði auk þess sem flug féll niður milli Qarqortoq í Grænlandi og Reykjavíkur. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Breiðþota í innanlandsflugið vegna veðurofsa helgarinnarAlls var 35 flugferðum aflýst á laugardag og sunnudag að því er kemur fram í svari Isavia við fyrirspurn mbl.is. Þar eru fleiri flugvellir undir eins og á Vopnafirði, Þórshöfn, Grímsey, Bíldudal og Ísafirði auk þess sem flug féll niður milli Qarqortoq í Grænlandi og Reykjavíkur. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Edit tekur sæti á AlþingiEdit Ómarsdóttir, varaþingmaður Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi, tók sæti á Alþingi í dag í fyrsta sinn. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir