Sýnir: Innlendar fréttir
11.025 fréttir fundust
Síða 6 af 221
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Lofar nýrri þyrlu á þessu kjörtímabiliKristrún Frostadóttir forsætisráðherra heitir því að flýta undirbúningi og tryggja fjármagn til kaupa á fjórðu björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar á yfirstandandi kjörtímabili. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Samstöðin finnur mikinn hlýhug„Við finnum mikinn hlýhug, margir hafa tvöfaldað áskriftargjald sitt, aðrir hafa reitt fram eingreiðslu til Samstöðvarinnar. Það gefur okkur aukinn … Samstöðin - Fréttir Innlendar fréttir
Netárás á 1984 árás á fullveldi íslensku þjóðarinnarFélagið Ísland-Palestína segir tölvuárás sem gerð var á nethýsingarfyrirtækið 1984 hafa verið árás á fullveldi Íslands, tæknilega innviði og almenna borgara. Félagið telur Ísraelsríki standa að árásinni. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Lokaði fyrir færslur eftir 140 milljóna millifærsluMálið á rætur að rekja til þess að greiðsla að fjárhæð 997.500 Bandaríkjadalir, sem þá jafngilti tæpum 140 milljónum króna, barst inn á gjaldeyrisreikning félagsins í september árið 2022. Greiðslan var að mati bankans í ósamræmi við áður gefnar upplýsingar um mánaðarlega veltu félagsins. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Bókin er í sókn„Aldrei hafa fleiri sótt Bókahátíð í Hörpu en um síðustu helgi. Alls lögðu 10.500 gestir leið sína á hátíðina í ár, sem er 25% fjölgun frá fyrra ári þegar þáverandi aðsóknarmet var slegið,“ segir Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri… MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
● Hífibúnaður björgunarþyrlunnar bilaður nokkrum dögum fyrir sjóslysiðArnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræddu í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu í dag, við Árna Loga Sigurbjörnsson, íbúa í Öxarfirði, og hlustendur um stöðu björgunarbúnaðar Landhelgisgæslunnar eftir sjóslysið þegar Jökull ÞH 299 sökk undan Langanesi. 3 skipverjar fórust en 14 var bjargað. Útvarp Saga Innlendar fréttir
„Litli bróðir minn er á lífi“„Bróðir minn var um borð í Jökli ÞH sem sökk í gær. Í margar klukkustundir vissum við ekki hvort hann væri lífs eða liðinn. Það er erfitt að lýsa þeirri tilfinningu að bíða eftir fréttum sem geta á einu augnabliki breytt lífi manns að eilífu,“ segir Eva í færslunni. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Geimstöðin hans Olgeirs komin á endastöð á SkógumOlgeir Engilbertsson, bóndi í Nefsholti í Rangárþingi ytra, yfirgefur hér Geimstöðina, þekktan trússbíl sem hann ók um Landmannaafrétt í rúm 40 ár. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tökum fimmtu þyrluna til skoðunar straxVið eigum að geta sameinast um að tvær björgunarþyrlur með áhöfn séu tilbúnar til útkalls nánast allan ársins hring. Stjórnvöld ættu að láta meta strax hvað fimmta þyrlan myndi bæta viðbúnaðinn og hvað þyrfti í áhafnir, viðhald og aðstöðu til að standa undir honum. Fréttatíminn - Innlent Innlendar fréttir
Fékk SMS úr óþekktu númeri: „Er lifandi, ég elska ykkur bæði“Foreldrar Markúsar Más Eldjárn Arnórssonar, 22 ára sjómanns, biðu í örvæntingu heima í Hafnarfirði í gærkvöldi og reyndu allt til að komast yfir frekari upplýsingar um Markús, sem hafði verið um borð í togaranum Jökli ÞE 299 sem sökk austur af landinu. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Skoða bjórsölu í BláfjöllumSamstarfsnefnd skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins kannar hvort heimilt sé að selja bjór í Bláfjöllum. Þorvaldur Daníelsson formaður nefndarinnar segir málið tengjast hugmyndum um að bjóða út rekstur veitingasölunnar í fjallinu. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Rúmlega tvö hundruð seldar á árinuRúmlega 200 íbúðir hafa selst á þéttingarreitum nærri miðborg Reykjavíkur frá síðustu áramótum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Þakklátur fyrir að hafa skilað öllum heimÞyrluflugstjóri Landhelgisgæslunnar er þakklátur fyrir að hafa skilað öllum skipverjum Jökuls ÞH heim. Hann hefði þó viljað skila öllum heilum heim. Þrír fórust í skipsskaða en 14 lifðu. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
● Öryggi sjómanna ekki nægilega tryggtArnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræddu við Árna Loga Sigurbjörnsson, íbúa í Öxarfirði í Norður- þingeyjarsýslu, í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu í dag, um öryggi sjómanna og stöðu Landhelgisgæslunnar eftir sjóslysið þegar Jökull ÞH 299 sökk undan Langanesi. Útvarp Saga Innlendar fréttir
Fjölskylda skipstjórans sendir þakkarkveðjuFjölskylda skipstjóra Jökuls ÞH hefur sent frá sér þakkarkveðju til allra þeirra sem komu að björgunaraðgerðunum þegar skipið sökk úti fyrir Austurlandi. Fjölskyldan þakkar viðbragðsaðilum fyrir hugrekki, fagmennsku og æðruleysi við afar erfiðar aðstæður. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Þakkarkveðja frá fjölskyldu skipstjóransFjölskylda skipstjórans á Jökli ÞH 299, Kristins Hrannars Hjaltasonar, hefur sent út yfirlýsingu þar sem þau þakka fyrir vel unnin störf í ótrúlega erfiðum aðstæðum. Kristinn var einn þeirra sautján sem voru um borð í fiskiskipinu þegar það sökk í gær og þrír fórust. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Kýldi konu fyrirvaralaust í andlitiðLandsréttur þyngdi í dag refsingu manns sem sakfelldur var fyrir að kýla konu, sem hann æfði hnefaleika með, í andlitið fyrir utan skemmtistað. Taldi dómstóllinn árásina hættulega og að gögn málsins bæru ekki annað með sér en að hún hefði verið með öllu tilefnislaus. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ölfus reiknar með 823 milljóna afgangiBæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss hefur samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun fyrir 2028–2030. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
● Norðurlönd og Eystrasaltsríki vilja ekki vera háð stórum tæknifyrirtækjumNorðurlöndin og Eystrasaltsríkin hafa samþykkt sameiginlega yfirlýsingu um að efla stafrænt sjálfstæði ríkjanna. Ríkin telja sig orðin of háð fáeinum stórum tæknifyrirtækjum og vilja styrkja eigin stafræna innviði, auka öryggi sæstrengja og efla samstarf um kaup á skýjaþjónustu. Útvarp Saga Innlendar fréttir
Sautján skipverjar í sjávarháskaVeðrið á vettvangi er slæmt og ölduhæð er mikil. Landhelgisgæslan og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar voru kallaðar út og samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð. Fréttatíminn - Innlent Innlendar fréttir
Flugstjórinn: „Áhöfnin sett í skelfilega aðstöðu“„Við erum bara nokkuð brött, náttúrulega lúin, en með blendnar tilfinningar. Það að koma allir heim en ekki allir heilir, því miður,“ segir Jens Sigurðsson, flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni, sem stýrði þyrlunni TF-GRÓ í björgunarleiðangrinum vegna Jökuls í gærkvöldi. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Allt að 66% verðmunur á milli verslanaSé neytandinn einungis að horfa til verðs er yfirleitt hægt að velja hagkvæmari kost með því að velja samanburðarvöru innan sömu verslunar. Sem dæmi má nefna að með því að velja hveitið í Bónus frá Euroshopper samanborið við Kornax er sparnaðurinn 26,4% eða um 96 kr. Sambærileg dæmi má finna t.d. Fréttatíminn - Innlent Innlendar fréttir
Systurskip Jökuls sökk fyrir rúmum tuttugu árumSysturskip Jökuls ÞH, sem byggt var sama ár og Jökull, sökk í Barentshafi fyrir rúmum tuttugu árum en rannsókn á slysinu leiddi í ljós að sjór hafi komist í lestina í gegnum lúgu. Þá fórst skip við Færeyjar árið 2024 við svipaðar kringumstæður og voru þegar Jökull sökk í gær. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fjölmenni á bænastund á HúsavíkFjölmenni var á bænastund í Húsavíkurkirkju síðdegis í dag þar sem þeirra þriggja sem létust þegar fiskiskipið Jökull ÞH sökk austur af landinu í gær. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Þið gáfuð mér bróður minn aftur“Systur tveggja sjómanna sem voru um borð í Jökli ÞH 299 sem sökk úti austan landsins í gær lýsa þakklæti í garð Landhelgisgæslunnar. Báðar segja þær hug sinn hjá aðstandendum þeirra þriggja sjómanna sem fórust í slysinu. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Aðeins ein tilkynning um skriðu þrátt fyrir úrhellisrigningu eystraÞrátt fyrir úrhellisrigningu hefur Veðurstofu ekki borist nema ein tilkynning um skriðuföll á Austurlandi. Vegurinn um Fagradal er lokaður vegna aurskriðu. Skriðusérfræðingur Veðurstofu hvetur fólk þar til að halda sig heima í kvöld og nótt. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Árekstur vörubíls og fólksbíls: „Mjög alvarlegt“„Þetta er mjög alvarlegt slys,“ segir Einar Sveinn Jónsson, slökkviliðsstjóri í Grindavík, í samtali við mbl.is. Mikill viðbúnaður er á vettvangi og segir Einar að allt sé gert sem hægt er að gera. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tíðinda að vænta af SundabrautHljótt hefur verið um Sundabrautarverkefnið á undanförnum mánuðum en á næstunni gæti dregið til tíðinda því von er á ákvörðun um það hvaða leið verður valin til að þvera Kleppsvík. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Óbein eign ekki á hagsmunaskráÚtgerðarfélagið Sleppa ehf., sem er að meirihluta í eigu Sigurjóns Þórðarsonar, þingmanns Flokks fólksins og formanns fjárlaganefndar Alþingis, á eignarhluti í öðrum félögum sem bókfærðir eru á rúmlega 7,1 milljón króna. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hætta á að flæði að Hringveginum við VíkLíkur eru á sjávarflóðum í kvöld og fyrramálið og er fólk hvatt til að fylgjast vel með ölduspám og sjávarfallaspá. Hætta er á að sjór flæði að Hringveginum ef spár ganga eftir. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Erfitt að slíta tengingu og fljúga burtJens Þór Sigurðarson, flugstjóri um borð í TF-SIF, segir ljóst að Landhelgisgæslan þurfi fimm þyrlur til að geta haldið úti tveimur. Það hafi verið erfið ákvörðun að láta slíta tengingu við hluta áhafnar Jökuls ÞH, sem sökk í gær, til þess að geta flogið burt og létt á þyrlunni. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
„Bróðir minn var um borð í skipinu sem sökk“„Lífið er dýrmætt og svona atburðir minna okkur svo sannarlega á hversu mikilvægt það er að hugsa vel um fólkið okkar og njóta samverunnar með því. “ MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Nýr vefur Fréttatímans kominn í loftiðFréttatíminn hefur opnað nýjan vef með endurhannaðri forsíðu. Þar er auðveldara að sjá hvað ber helst til tíðinda, finna nýjustu fréttirnar og fletta upp… Fréttatíminn - Innlent Innlendar fréttir
Hífði sextán upp: „Ég er þreyttur, rosalega þreyttur“„Ég er þreyttur, rosalega þreyttur,“ segir Elvar Már Sigurðsson sigmaður hjá TF-Gró sem lýsti mögnuðu björgunafreki og aðstæðum í gærkvöldi þegar 17 skipverjum af Jökli SH voru hífðir um borð í þyrluna. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Krýsuvíkurvegi lokað vegna umferðarslyssKrýsuvíkurvegi og Suðurstrandarvegi hefur verið lokað að stórum hluta vegna umferðarslyss á Suðurstrandarvegi. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Missa tekjurnar við nýjan útreikningBæjarráð Hveragerðis gerir alvarlegar athugasemdir við tæknilega útfærslu reiknilíkans í frumvarpi innviðaráðherra um fasteignaskatt á orkumannvirki, en frumvarpinu, verði það að lögum, er ætlað að tryggja að skatttekjur skili sér til þeirra nærsamfélaga sem bera umhverfis-, sjónræn og… MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Vegurinn um Fagradal lokaður vegna aurskriðuVegurinn um Fagradal er lokaður eftir að aurskriða féll yfir hann laust fyrir klukkan fimm. Á umferðin.is segir að unnið sé að opnun. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
● Nístandi sorg í sjávarbyggðunum á Norðausturlandi eftir að Jökull sökkArnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræddu við Árna Loga Sigurbjörnsson, íbúa í Öxarfirði í N-þingeyjarsýslu, í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu í dag, um viðbrögð íbúa á Norðausturlandi við sjóslysinu þegar Jökull ÞH 299 sökk undan Langanesi. 3 skipverjar fórust en 14 var bjargað. Útvarp Saga Innlendar fréttir
Flugmaður á TF-GRÓ lýsir björgunaraðgerðunumUm fjórum klukkustundum eftir neyðartilkynninguna frá fiskiskipinu Jökli ÞH mætti TF-GRÓ, þyrla Landhelgisgæslunnar, á svæðið. Flugmaður sem var ein þeirra sex sem voru í áhöfninni um borð í TF-GRÓ í gær við björgunina segist aldrei hafa efast um að þyrlusveitin myndi brjóta reglur til að komast á… Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Flugmenn skora á stjórnvöld í kjölfar slyssins„Það er ólíðandi að áhöfn björgunarþyrlu skuli sett í þá stöðu að þurfa að brjóta reglur um eigið öryggi til að bjarga skipsáhöfn í lífsháska. “ MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Andlát: Ingvar JónssonKnattspyrnumarkvörðurinn Ingvar Jónsson er látinn, 37 ára að aldri. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ótrúlegt lán að allt hafi gengið uppÞyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni segir það algjöra heppni að ekki hafi farið verr í björgunaraðgerðum þegar skipið Jökull ÞH fórst austur fyrir landi. Það sé bráðnauðsynlegt að bæta stöðu mála hjá Landhelgisgæslunni. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir