Sýnir: Sjávarútvegur
647 fréttir fundust
Síða 5 af 13
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Eyborg EA seld til Suður-AfríkuFrystitogarinn Eyborg EA 59 sem gerður var út frá Hrísey hefur verið seldur til Algoa Fishing í Suður-Afríku þar sem honum verður breytt í humarveiðiskip. Allur togbúnaður verður fjarlægður ásamt búnaði til frystingar. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Lönduðu samtals 236 tonnum í morgunÞrjú skipa Fisk Seafood komu til löndunar í morgun með samtals 236 tonna afla. Sigurborg SH 2 og Farsæll SH 30 komu með 133 tonn til Grundarfjarðar og Drangey SK 2 með 103 tonna afla til Sauðárkróks. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Ríflega milljarði minni tekjurÁætlað er að samfélagslegar tekjur af farþegum skemmtiferðaskipa sem koma til hafna Ísafjarðarbæjar verði ríflega milljarði króna minni árið 2027 en þær voru árið 2024, miðað við áætlaðar tekjur af hverjum farþega MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Kista sem bætir við sig gulliFram kom á ráðstefnu um möguleika stórþörungaræktar í byrjun mánaðar að regnskógarnir væru hreint ekki lungu jarðar. Sjávarþörungar stæðu undir 80 prósentum af súrefnisframleiðslu plánetunnar. Á Íslandi eru sagðar einstaklega góðar aðstæður, í sjó og á landi, til að rækta og nýta þörunga. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Erum sjötti stærsti útflytjandinnÁ síðasta ári var Ísland sjötti stærsti útflytjandi atlantshafslax í heiminum, samkvæmt nýrri samantekt á vef Salmon Business. Útflutningur héðan er sagður hafa numið um 46.500 tonnum og vísað til þess að hér hafi framleiðsla aukist hröðum skrefum síðustu ár og numið tæplega 59 þúsund tonnum 2025 MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Vill ekki sand í tannhjól frumvarpsNý lög um lagareldi náðu ekki fram að ganga fyrir þinglok í vor. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segist ekki koma fram með málið aftur nema að hægt verði að afgreiða það í fullri sátt. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Jökull liggur enn skakkur við höfninaBáturinn Jökull liggur enn skakkur við Hafnarfjarðarhöfn, en greint var frá því fyrir tveimur vikum að hann hefði sokkið á sama stað í höfninni í þriðja skiptið. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Hefja samstarf um öruggari hafnirAlda Öryggi og Faxaflóahafnir hafa undirritað þjónustu- og þróunarsamning um notkun og aðlögun stafræna öryggisstjórnunarkerfisins Öldu fyrir þjónustubáta Faxaflóahafna. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Kynntu starfsemina á StarfamessuLoðnuvinnslan og Síldarvinnslan voru í hópi fyrirtækja sem tóku þátt í Starfamessu Austurlands sem fram fór í Íþróttahúsinu í Neskaupstað í gær. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Kaldvík boðar til hluthafafundarKaldvík hefur tilkynnt hluthöfum um að boðað sé til aukahluthafafundar félagsins 8. október næstkomandi. Austur Holding, stærsti hluthafi félagsins, fer fram á að Stig Wærnes komi í stað Martins Lein Staveli í stjórn Kaldvíkur. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Síldin færir sig seint frá landinuLeiðindabræla einkenndi megnið af síðustu veiðiferð Beitis NK sem kom í gær til Neskaupstaðar með þúsund tonn af síld. Núna er unnið úr afla Barkar NK og svo fær starfsfólk fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar helgarfrí. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Síldin enn of nálægt landiÞað má ekki toga fyrir innan 12 mílurnar og síldin virðist færa sig seint frá landinu. Við sáum ekkert sérstaklega mikið á veiðisvæðinu en það eru hins vegar fallegustu torfur fyrir innan 12 mílurnar. Aflann fengum við í fimm holum og fengust frá 100 og upp í 300 tonn í holi. Fiskifréttir - Í brúnni Sjávarútvegur
Dýpkað fyrir smábátahöfnDýpkunarframkvæmdir standa nú yfir í Hafnarfjarðarhöfn þar sem gert er ráð fyrir nýrri smábátahöfn. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Á sigurbraut með sög fyrir ígulker„Við urðum dálítið hissa, en við vorum virkilega ánægð með þetta og tæknifólkið okkar er himinlifandi,“ segir Gunnar Bragason, sérfræðingur í öryggis- og gæðamálum hjá Mikra sem vann til verðlauna á IceFish-sýningunni sem lauk í gær á þriðja degi. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Opið bréf sagt árás á landshlutanaOpið bréf matreiðslumanna um sniðgöngu á sjókvíaeldislaxi er árás á Austfirði og Vestfirði. Það er mat Ragnars Sigurðssonar, formanns bæjarráðs Fjarðabyggðar. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Þrír togarar landa í Neskaupstað í dagFátítt er að þrír togarar komi til löndunar í Neskaupstað sama daginn. Í dag koma þangað hins vegar ísfisktogararnir Birtingur NK, Bergey VE og Vestmannaey VE, að því er segir á vef Síldarvinnslunnar. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Vonast til að safna 1,7 milljónum evraNýsköpunarfyrirtækið MAGNEA lýkur í vikunni fundarlotu með vísisjóðum eftir að hafa farið í gegnum viðskiptahraðalinn Startup Supernova. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Kappar á sjó verðlaunaðirÆvistarf var í fyrsta sinn verðlaunað við afhendingu Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldisverðlaunanna í ár. Verðlaunin hlutu Örn Pálsson og Arthur Bogason, fyrrverandi framkvæmdastjóri og fyrrverandi formaður Landssambands smábátaeigenda MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Seldu fyrir rúmar 400 milljónir í SíldarvinnslunniHraunlón ehf., félag í meirihlutaeigu Gunnþórs Ingvarssonar, forstjóra Síldarvinnslunnar, seldi í gær hlutabréf í útgerðinni fyrir rúmlega 400 milljónir króna, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Línuskip Vísis hafa gert það gottLínuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa gert það gott að undanförnu, að því er segir á vef Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Línuskipin gera það gott fyrir austanAðalsteinn Rúnar Friðþjófsson, skipstjóri á Sighvati, var einnig sáttur við veiðina. „Við fengum aflann í þremur og hálfri lögn í Bakkaflóanum. Þarna var síld og fiskurinn liggur í henni. Það er mikil ferð á þessu, stundum sést mikið en eftir stuttan tíma lítið sem ekkert. Fiskifréttir - Í brúnni Sjávarútvegur
Stórbætt aðstaða við AkraneshöfnFramkvæmdum við Aðalhafnargarð á Akranesi er lokið, að því er fram kemur í tilkynningu frá Faxaflóahöfnum. Hafnarbakkinn var lengdur um 100 metra og er nú 225 metrar. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Var í ágætiskroppi á GrunnkantiFarsæll SH 30 kom til löndunar í Grundarfirði í gærmorgun með um 56 tonna afla. Um borð voru 18 tonn af ýsu, um 15 tonn af þorski, um 8 tonn af karfa, og minna af öðru. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Skipting byggðaaðgerðaFimm af sex þáttum byggðaaðgerða hafa verið birtir í reglugerð. Aðgerðirnar ná til 7 tegunda; þorsk, ýsu, ufsa, steinbít, gullkarfa, keilu og löngu. Töflur hér að neðan sýna samanburð á magni [Tonn] hverrar tegundar í óslægðu eftir flokkum fyrir yfirstandandi fiskveiðiár, borið saman við nýliðið… Landssamband smábátaeigenda Sjávarútvegur
Síldarvertíðin sögð vera veisla„Ég held að allir hljóti að vera afar ánægðir með þessa síldarvertíð hingað til. Þetta er bara veisla,“ segir Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóri á Berki NK, sem kom með 1.550 tonn af síld til Neskaupstaðar á mánudagsmorgun. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Þróa saman nýja tækni fyrir landeldiKAPP og Thor Salmon hafa gert með sér nýsköpunar- og þróunarsamning um sameiginlega þróun nýrrar tækni fyrir landeldi. Skrifað var undir samninginn á Íslensku sjávarútvegssýningunni í dag. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
„Þetta er bara veisla"Staðreyndin er sú að þessi síldarvertíð getur ekki verið mikið þægilegri. Það tekur okkur tvo til þrjá tíma að sigla á miðin og síldin sem fæst er sannkölluð eðalsíld sem hentar örugglega í alla staði vel til vinnslu. Fiskifréttir - Í brúnni Sjávarútvegur
Sjávarútvegssýningin hefst í dagÍ dag hefst Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin og ráðstefnan Icefish í Smáranum í Kópavogi og stendur í þrjá daga. Dagskránni í dag lýkur með afhendingu Íslensku sjávarútvegsverðlaunanna 2026. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Segir að síldin sé besta beitanVeiðar hafa gengið afskaplega vel hjá krókaaflamarksbátnum Fjölni GK sem róið hefur frá Neskaupstað frá því snemma í ágústmánuði. Skipstjórinn á Fjölni gerir ráð fyrir að halda sig fyrir austan út nóvember. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Niðursoðinn makríll í Evrópu án makrílsBreskir smásalar taka ekki áhættuna að bjóða viðskiptavinum sínum raunverulegan makríl. Þetta hefur líka verið þróunin í Evrópu þar sem verslanir hafa tekið makríl úr sölu. Fiskifréttir - Erlent Sjávarútvegur
Sjávarútvegssýningin – frímiðar fyrir félagsmenn LSLS verður með bás á sjávarútvegssýningunni dagana 22., 23. og 24. september. Við hvetjum gesti sýningarinnar til að kíkja við, kynna sér starfsemi LS og hitta okkur á staðnum. Veitingar verða í boði á básnum. Félagsmenn LS fá frían aðgang með því að skrá sig á https://icefish.is/is/entry-badges. Landssamband smábátaeigenda Sjávarútvegur
Skráðu eitur sem aldrei var í firðinumMistök við úrvinnslu gagna leiddu til þess að efnafræðilegt ástand sjávar í Seyðisfirði var skráð sem slæmt í vatnavefsjá undir lok ágúst síðastliðins. Skráningin hefur nú verið leiðrétt. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Hvalveiðum hætt eftir 93 langreyðarHvalur hf. hefur lokið hvalveiðum þetta árið og verða skip félagsins ekki send aftur til veiða. Ákvörðunin var tekin vegna slæmrar veðurspár fyrir næstu viku. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Fjögur þúsund tonn komin í vinnsluSíldarvertíðin hefur til þessa gengið vel að sögn Geirs Sigurpáls Hlöðverssonar, rekstrarstjóra fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Þar hefur fiskiðjuverið nú tekið á móti fjögur þúsund tonnum af síld. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Mikið verðmæti í ónýttum gögnum í norsku laxeldiAð sögn salmonbusiness.com leggja vísindamennirnir til að kerfið verði þróað í áföngum, byrjað verði á sameiginlegum stöðlum og innviðum áður en bætt verði við öruggum leiðum til gagnamiðlunar og þjónustu á borð við ákvarðanastuðning, viðvaranir og sjálfvirka skýrslugjöf. Fiskifréttir - Erlent Sjávarútvegur
Vilja bæta 200 tonnum við línuívilnunLandssamband smábátaeigenda hvetur innviðaráðherra bréf til að bæta 200 tonnum af þorski við línuívilnun. Vonbrigði séu að bara 300 tonnum hafi verið úthlutað í nýútgefinni reglugerð. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
LS kallar eftir auknum heimildum til línuívilnunarLandssamband smábátaeigenda (LS) hefur sent Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra bréf þar sem sambandið hvetur hann til að bæta 200 tonnum af þorski við línuívilnun. Landssamband smábátaeigenda Sjávarútvegur
Góður gangur í síldarvinnslu„Við höfum tekið á móti 4.000 tonnum að meðtöldum aflanum sem nú er verið að vinna úr Beiti. Síldin er virkilega flott og meðalstærðin er um 360 grömm. Hingað til höfum við heilfryst síldina ásamt því að framleiða samflök og þetta hefur í reynd gengið eins og í sögu,” sagði Geir Sigurpáll. Fiskifréttir - Í brúnni Sjávarútvegur
Komu saman fyrir makrílviðræðulotuÍ dag lýkur viðræðulotu um makrílveiðar sem hófst í Lundúnum í gær. Áður en formlegur samningafundur sendinefnda vegna makríls hófst var fundur á miðvikudag með fulltrúum iðnaðarins í Evrópusambandinu, Færeyjum, Íslandi, Noregi og Bretlandi. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Matorka stöðvar vinnslu tímabundið og 15 sagt uppAð sögn Árna eru markaðsaðstæður góðar um þessar mundir. „Það er mikil eftirspurn eftir bleikju. Og einmitt til þess að geta verið með nægilega mikið magn erum við að vinna í þessum viðhaldsverkefnum," segir Árni sem kveður frekari vinnslustöðvanir síðar ekki í sjónmáli þó að stöðvunin nú sé… Fiskifréttir - Fiskeldi Sjávarútvegur
Með umhverfisábyrgð í verkfærakistunniTil skoðunar er hvort lög um umhverfisábyrgð eigi við um slysasleppingar í sjókvíaeldi. Þetta kom fram í máli Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra, á Alþingi í gær. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Vilja sérlög um landeldi í forgangLandeldisdeild Bændasamtaka Íslands (BÍ) hefur óskað eftir því við atvinnuvegaráðherra og forsætisráðherra að vinna við mótun sérstakrar lagaumgjarðar fyrir landeldi verði sett í forgang af hálfu stjórnvalda. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Ýsan er búin að vera mjög erfiðLjósafell SU 70 hélt aftur til veiða í gærkvöldi eftir að hafa landað rúmum 120 tonnum af afla á Fáskrúðsfirði. Kristján Gísli Gunnarsson, skipstjóri Ljósafells, að svolítið þurfi að hafa fyrir veiðunum. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Vilja einfalda regluverk um fiskeldiFiskistofa Noregs vill einfalda stjórnsýslu í fiskeldi og gera hana fyrirsjáanlegri. Yfirlýsingin er sögð hluti af nýrri stefnu um greinina sem nái til ársins 2030 og var kynnt í byrjun vikunnar. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Veiðivonin sögð mest fyrir austanVeiðin hefur verið góð hjá línuskipum Vísis, Páli Jónssyni GK og Sighvati GK, sem bæði hafa verið að veiðum austur af landinu að undanförnu. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Landeldi án lagaramma - 600 milljarða fjárfestingaráformUm þessar mundir standa yfir, eða eru í undirbúningi, umfangsmikil landeldisverkefni á vegum Samherja Fiskeldis, First Water, Laxeyjar og Thor Salmon, samtals að fjárhæð 500-600 milljarðar króna. Fiskifréttir - Fiskeldi Sjávarútvegur
Undirbúa mögulegan fiskidauða í eldiHluti af viðbúnaði vegna hugsanlegra áhrifa El Niño-veðurfyrirbrigðisins í Síle felur í sér æfingar vegna mögulegs fjöldadauða eldislaxa. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Ísfisktogararnir landa fyrir austanBergey VE landaði nánast fullfermi í Neskaupstað í gærmorgun. Ragnar Waage Pálmason skipstjóri segir þó víða mjög rólegt hjá togurum um þessar mundir. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Aflamagn dregst saman um 1.210 tonnEyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur undirritað reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða. Um er að ræða svokallaðan 5,3 prósenta hlut sem ráðstafað er til félagslegra þátta. MBL 200 mílur Sjávarútvegur