Sýnir: Sjávarútvegur
647 fréttir fundust
Síða 6 af 13
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Skipstjórnarmenn hefja kynningarátakFélag skipstjórnarmanna hefur hafið átak til að auka sýnileika stéttarinnar. Nýtt kynningarmyndband er sagt fyrsta skrefið í markvissari kynningu á félaginu og störfum skipstjórnarmanna. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Bæjarstjórinn fór með í síldartúrGóður gestur var með í síldartúr Beitis NK að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Með í för var Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri í Fjarðabyggð. Beitir landaði 600 tonnum af síld í Neskaupstað í gær. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Farsæll hóf túrinn á Flákakanti„Maður er bara hálf feginn að þessi túr sé búinn,“ sagði Guðmundur Kristján Snorrason, skipstjóri Farsæls SH 30, sem kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun með rúmlega 60 tonna afla. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Yfir 7.000 tonn unnin til söltunarÞað sem af er ári hafa yfir sjö þúsund tonn af hráefni verið unnin til söltunar hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum, sem er meira en unnið var á öllu síðasta ári. Haldið var upp á með kökukaffi. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Óvæntur gestur náðist á myndbandHeldur betur hljóp á snærið hjá vísindamönnum norsku hafrannsóknastofnunarinnar (Havforskningsinstituttet) á Svalbarða nýverið. Þeir voru þar við rannsóknir með hópi nemenda frá Menntasetri Svalbarða (UNIS) og norska norðurslóðaháskólanum UiT. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Heildarafli í ágúst 71 þúsund tonnLandaður fiskafli í ágúst 2026 var 71 þúsund tonn, 33 prósentum minni en í ágúst árið á undan, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Segja að marglyttum hafi fækkaðÞrátt fyrir ágang marglyttu á eldissvæðum Kaldvíkur í Reyðarfirði eru horfur félagsins um slátrun á þessu ári óbreyttar, eða um 17 þúsund tonn. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallar. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Landaði síld á Eskifirði í morgunSíldarvertíð er hafin hjá Samherja með komu Vilhelms Þorsteinssonar EA-11 til Eskifjarðar með um 950 tonn af síld í morgun. Á vef útgerðarinnar segir að þetta sé fyrsti farmur skipsins á nýhafinni síldarvertíð. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Hafa lokið kolmunnaveiðum í biliBjarni Ólafsson AK kom með fullfermi af kolmunna til Neskaupstaðar í morgun. Farmurinn, alls 1.700 tonn, fer til framleiðslu á mjöli og lýsi, að því er segir á vef Síldarvinnslunnar, en að undanförnu hafi afli skipsins að mestu verið frystur. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Fyrsta haustbrælan stóð stutt yfirÞorskur var uppistaða aflans sem Drangey SK 2 kom með til löndunar á Sauðárkróki í morgun, eða vel ríflega fjórir fimmtu hlutar aflans. Alls var 123 tonnum landað og af því um 107 tonnum af þorski. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Góð makrílvertíð en minni en áðurMakrílvertíð er lokið hjá Síldarvinnslunni. Oddur Einarsson, yfirverkstjóri í fiskiðjuveri fyrirtækisins í Neskaupstað, segir vertíðina hafa verið góða, en ekki eins stóra og undanfarin ár. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Kimi í notkun hjá VinnslustöðinniLokaúttekt á hinu nýja vinnsluhúsi Vinnslustöðvarinnar í Kima í Vestmannaeyjum fer fram í þessum mánuði. Um er að ræða nýtt sex þúsund fermetra stórt sérhæft vinnsluhús, þar sem ný hreinsistöð og innvigtunarbúnaður voru á meðal stærstu verkþátta. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Ekki verður spáð um ágengar tegundirFramandi sjávartegundir geta verið ógn við líffræðilegan fjölbreytileika í hafinu og valdið miklu efnahagslegu tjóni. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
„Þetta hefur gengið vel og verðið er rosalega hátt“Í sumar var stunduð strandveiði fram í ágúst, nokkrum vikum lengur en í fyrra, og verð var hátt. Ragnar segir strandveiðimenn njóta þess að landa þegar framboð sé minna. Fiskifréttir - Markaðir Sjávarútvegur
Fækkun hringsiglinga blasir viðÓstöðugleiki og ófyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi skemmtiferðaskipa á Íslandi á árunum 2023 til 2025 er nú að skila sér af fullum þunga í samdrætti á landsvísu. Þetta segir Sigurður Jökull Ólafsson, framkvæmdastjóri Cruise Iceland MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Viskí til bjargar villtum stofnumHliðarafurð frá skoskum viskíframleiðendum virðist henta vel til að rækta þörunga sem nýta má sem uppsprettu omega-3 fitusýra. Fólkið sem stendur að verkefninu hefur áhyggjur af álagi á stofna sem notaðir eru í fiskolíugerð. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Vildi sjá magntölur í janúarÞótt meira umstang fylgi þjónustu við smærri báta skipta strandveiðar miklu máli fyrir þær hafnir sem veita þeim veiðum þjónustu. Þetta segir Stefán Pétur Viðarsson, yfirhafnarvörður í Bolungarvík. Hvergi er meira umleikis í þjónustu við þær veiðar en þar. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Nudd og hundleiðinlegt veðurEyjaskipin, Vestmannaey VE og Bergey VE, halda aftur til veiða síðar í dag eftir að hafa landað afla sínum í Eyjum. Vestmannaey landaði í Grindavík á sunnudag og landar í Eyjum í dag, en Bergey landaði í Eyjum í gær. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Telur að farið sé á svig við lögSamtök smærri útgerða beindu síðastliðinn vetur kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna dráttar á birtingu reglugerðar um ráðstöfun aflaheimilda í félagslega hluta fiskveiðistjórnunarkerfisins. Kvörtunin er enn á borði umboðsmanns, að sögn formanns samtakanna. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Telja hvalshræið ekki meðArnar HU 1, frystitogari Fisk Seafood, er á heimleið og hefur löndun við Sauðárkrókshöfn á morgun. Á vef útgerðarinnar segir að heildarverðmæti veiðiferðarinnar nemi um 340 milljónum króna. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Hoppandi kátir með upphaf vertíðarSíldarvertíð er hafin segir á vef Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Þangað kom Börkur NK í morgun með tólfhundruð tonn af „gullfallegri síld“. Vinnsla hófst þá þegar í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Þorskhausar skipuðu áður stærri sessSú var tíðin að þorskhausar skipuðu mun stærri sess í menningu Íslendinga. Áki Ásgeirsson herðir hausa heima hjá sér og hyggst stofna strandmenningarmiðstöð í Garðinum. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Síldarvertíð hafin - Börkur með gullfallega síld„Það má alveg segja að hann hafi gengið eins og í sögu. Við fengum aflann í þremur holum í Seyðisfjarðardýpinu. Þegar við lukum veiðum voru 23 mílur í Norðfjarðarhorn þannig að það má alveg segja að þessi síld hafi fengist við bæjardyrnar. Fiskifréttir - Í brúnni Sjávarútvegur
Bæta þarf skráningu á gerð veiðarfæraAukinna rannsókna er þörf á því hvort þróun veiðarfæra við botnfiskveiðar hafi valdið meira eða minna raski á sjávarbotninum. Þetta kemur fram í nýrri umfjöllun á vef Hafrannsóknastofnunar. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Hálfgerð ördeyða á HalamiðumKristján skipstjóri segir það sérstaka í stöðunni að nær landi er allt fullt af fiski. „Flotinn hefur verið að rúnta hérna á Halanum. Ufsinn hefur sýnt sig í ágætu magni ef menn hitta á hann. En glugginn er bara frá birtingu á morgnana og fram yfir hádegi. Þorskur er í mjög litlu magni. Fiskifréttir - Í brúnni Sjávarútvegur
Man myrkrið þegar skipin fóruBubbi segir að reynsla hans af vertíðavinnu á yngri árum hafi tvímælalaust fært honum þá hörku og dugnað sem fleyttu honum áfram þegar hann fór að fóta sig á nýju sviði. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Eins ferskur fiskur og kostur erMargt bendir til að þorskveiðar með gildrum geti hentað á Íslandi. Í Noregi er greitt hærra verð fyrir fisk sem veiddur er með þessum hætti. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Botnveiðarfæri skila um 24 milljóna tonna afla á áriEitt skortir þó á við skráningu í afladagbækur á Íslandi. Í gagnasöfnun um veiðar er skráð hvaða veiðarfæri er notað í grófum dráttum, en ekki hvernig það er útbúið. Fiskifréttir - Hafrannsóknir Sjávarútvegur
Fyrsta áfanga að ljúka hjá First WaterFirst Water og Ístak hafa undirritað samning um framkvæmdir á athafnasvæði First Water í Þorlákshöfn. Ljúka á fyrsta áfanga landeldisverkefnis félagsins og tvöfalda árlega framleiðslugetu First Water. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Makrílvertíð lokið og hugað að síldBeitir NK kom til Neskaupstaðar í morgun með 180 tonn af makríl úr norskri lögsögu. Líklega er það síðasti markrílfarmurinn á vertíðinni sem þangað kemur. Börkur NK hélt til síldveiða í gær. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Eru að byrja á norsk-íslensku síldinniTímamót urðu um helgina þegar Hákon ÞH 250 frá Grenivík, kom í fyrsta sinn inn á Eyjafjörð. Skipið kom til landsins síðla árs 2024, en landar alla jafna afla sínum á Höfn á Hornafirði. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
„Algjört rof“ milli fólks og sjávarútvegsBubbi segir að nú vaxi kynslóðir úr grasi sem hafi lítinn sem enga tengingu við sjávarútveg eða hvaða þýðingu hann hefur haft fyrir þjóðina. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Þrjú skip Fisk Seafood með 291 tonnRíflega 290 tonna afla var í dag landað úr þremur skipum Fisk Seafood. Tvö komu með afla sinn til Grundarfjarðar og eitt landaði á Sauðárkróki. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Ennþá sumartíð fyrir austanÍsfisktogarinn Birtingur NK hélt á ný til veiða í gærkvöldi eftir að hafa landað 90 tonnum í heimahöfn í Neskaupstað. Skipstjórinn, Einar Ólafur Ágústsson, telur fiskgegnd koma til með að aukast með haustinu. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Góður afli í Litladýpi„Fiskiríið hér eystra um þessar mundir er í rólegri kantinum fyrir minn smekk en þó eru menn að hitta í eitthvað annað slagið. Menn reyna reglulega við ýsuna með takmörkuðum árangri. Fiskurinn sem fæst er hins vegar ágætur og hentar örugglega vel í vinnsluna. Fiskifréttir - Í brúnni Sjávarútvegur
Skýr rammi styðji við sjálfbærni„Þari er undirstaða lífs og líffræðilegrar fjölbreytni í hafi, ekki aðeins á Íslandi heldur líka um allan heim,“ segir Jamie Lee, sem ræktar þara á línum við Steingrímsfjörð á Ströndum. Hún hefur kallað eftir ramma um atvinnugreinina, en fyrir helgi boðaði ráðherra frumvarp um stórþörungaræktun. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Íslenskur þari og hefðir Hong KongVið Steingrímsfjörð á Ströndum ræktar hugsjónakonan Jamie Lee þara á línum. Hún sér fyrir sér að slík ræktungæti síðar meir orðið að búbót fyrir smábátasjómenn en hvetur þó til þess að sjálfbærni sé höfð að leiðarljósi. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Ný Hafbjörg væntanleg næsta sumarNýtt björgunarskip, sem er í smíðum í Finnlandi, kemur til Neskaupstaðar í júní á næsta ári. „Skipið fær nafnið Hafbjörg og leysir núverandi Hafbjörgu af hólmi en hún hefur svo sannarlega skilað sínu með miklum sóma,“ segir á vef Síldarvinnslunnar. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Útflutningsverðmæti eldisafurða rýkur uppÞegar horft er til framleiðsluáætlana fiskeldisfyrirtækja má ætla að heildarframleiðsla í fiskeldi á landi og í sjó geti slagað upp í 80 þúsund tonn (óslægt) á árinu. Til samanburðar var framleiðslan 64,4 þúsund tonn í fyrra. Fiskifréttir - Fiskeldi Sjávarútvegur
Metár í vændum hjá fiskeldinuAlls er útflutningsverðmæti eldisafurða komið í 40,8 milljarða króna á fyrstu sjö mánuðum ársins og hafa aldrei verið meiri á þessum tíma árs. Á þetta er bent í umfjöllun Radarsins, mælaborðs sjávarútvegsins. Greint er frá því að útflutningsverðmæti í júlí hafi numið 4,8 milljörðum króna. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Ekki á vísan að róa við spágerðinaSjávarútvegurinn vegur þungt í hagtölum á Íslandi, en við mat á stærðum og horfum er meðal annars horft til skörunar fiskveiðiársins og almanaksársins, aflabragða, gengisþróunar og markaðsaðstæðna. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Fengu Freyju í heimsókn á miðunumÞað bar þó til tíðinda í þessum túr að þeir fengu heimsókn, sem gerist nú ekki oft úti á ballarhafi, en þegar þeir voru staddir á Reykjarfjarðarál kom varðskipið Freyja í heimsókn, en skipið var þar við reglubundið eftirlit. Fiskifréttir - Í brúnni Sjávarútvegur
Skýr munur milli tegunda á grunnum þangsvæðumÍ rannsókninni eru tekin saman gögn úr strandnótaveiðum á Vestfjörðum og víðar á Norðvesturlandi á árunum 2015–2021. Alls byggir greinin á um 4.000 ungum þorskum og ufsum. Fiskifréttir - Hafrannsóknir Sjávarútvegur
Beint heim að skrifa þá næstu„Um leið og þessu er lokið dríf ég mig heim að skrifa um 200 mílurnar,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur og fyrrverandi forseti Íslands, við gesti í hófi sem haldið var síðdegis á þriðjudag í tilefni af útgáfu bókar hans, Vald hinna veiku. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Segir veiðina hafa verið blettóttaÍsfisktogarinn Bergey VE landaði í Grindavík á mánudag og landar í Vestmannaeyjum í dag. Þá landaði systurskip Bergeyjar, Vestmannaey VE, í Eyjum í gær. Skipstjórar skipanna segja að dræmur gangur hafi verið í veiðunum. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Ræða möguleika þörungaræktarRáðstefnan „Gull á grunnsævi“ fer fram í Breið nýsköpunarsetri á Akranesi síðdegis í dag. Umfjöllunarefni hennar eru þróun og tækifæri sem tengd eru ræktun stórþörunga hér við land. Þeir eru sagðir verðmæt en vannýtt auðlind Íslands. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Norsk laxahrogn senn til Vestmannaeyja„Umsagnirnar fela ekki í sér andstöðu við fyrirhugaðan innflutning, en í þeim er lögð áhersla á að innflutningi lifandi erfðaefnis geti fylgt áhætta vegna sjúkdóma og mögulegrar erfðablöndunar við villta laxastofna. Fiskifréttir - Fiskeldi Sjávarútvegur
Leiðangursskip flýja VSK-kerfiðUppbygging í þágu skemmtiferðaskipa gagnast líka annarri starfsemi. Blikur eru á lofti varðandi komur hluta skemmtiferðaskipa og gæti það boðað tekjumissi fyrir hafnir á landsbyggðinni. Framkvæmdastjóri Cruise Iceland kallar eftir fyrirsjáanlegri og bættri umgjörð. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Dómsdagsspárnar stóðust ekkiMat Landssambands smábátasjómanna (LS) á mögulegu umfangi strandveiða gekk eftir á þessu ári, að sögn Kjartans Páls Sveinssonar, formanns LS. Það sýni að svartsýnisspár um mögulega ofveiði hafi ekki átt við nein rök að styðjast. MBL 200 mílur Sjávarútvegur
Fagna nýju kvótaári með löngu og keilu„Við fengum aflann í fimm og hálfri lögn. Það var byrjað við Surtsey á Stórahrauni, síðan var haldið á Holtshraun austan við Eyjar, þá var haldið í Háfadýpið og endað á Landsuðurhrauni. Fiskifréttir - Í brúnni Sjávarútvegur