Sýnir: Íþróttir og undirflokka
10.990 fréttir fundust
Síða 108 af 220
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Sögulegt mark hjá ComoKróatinn Martin Baturina skrifaði sig í sögubækurnar er hann kom Como í 1-0 gegn RB Leipzig í Meistaradeildinni í kvöld. Fótbolti.net Fotbolti.net
Róbert Frosti alvarlega meiddurRóbert Frosi Þorkelsson, leikmaður GAIS í Svíþjóð, verður ekki meira með á tímabilinu eftir að hafa slitið krossband á æfingu með liðinu á þriðjudag. Fótbolti.net Fotbolti.net
Krefst þess að Tottenham rifti samningi sínum - Vill fara frítt heimRicharlison vill að Tottenham rifti samningi hans svo hann geti gengið til liðs við Vasco í Brasilíu á frjálsri sölu. Samkvæmt Globo er hinn 29 ára gamli Brasilíumaður afar ósáttur eftir að Roberto De Zerbi skildi hann eftir utan 25 manna leikmannahóps Tottenham í ensku úrvalsdeildinni. DV Íþróttir Íþróttir
Jólahátíðin snýr aftur á EnglandiEnska úrvalsdeildin tilkynnti í dag að sjö leikir fari fram í deildinni á annan í jólum. Deildin sætti gagnrýni fyrir að dagskrásetja aðeins einn leik þann daginn í fyrra. Vísir Íþróttir Íþróttir
Steinhissa á vali fréttamanna - „Ég trúi þessu ekki, þetta er galið“Morgan Rogers gerði góðlátlegt grín að því að Cole Palmer skyldi vera valinn maður leiksins eftir 6-3 sigur Chelsea á Leeds í enska deildabikarnum. Chelsea var 2-0 undir í hálfleik en Rogers og Palmer komu báðir inn á í hálfleik og áttu stóran þátt í endurkomunni. DV Íþróttir Íþróttir
United aldrei í vandræðumManchester United vann 4-0 sigur á liði Sabah frá Aserbaídsjan í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta á Old Trafford í kvöld. Vísir Íþróttir Íþróttir
Vonar að nýi leikmaðurinn verði klárFemi Azeez gæti þreytt frumraun sína með Brighton gegn nýliðum Coventry á sunnudag. Þetta sagði Fabian Hürzeler, stjóri liðsins, í dag. Fótbolti.net Fotbolti.net
Bakverðir til bjargarJafnt var í tveimur fyrir leikjum dagsins í Meistaradeild Evrópu í fótbolta sem fram fóru í Istanbúl og Eindhoven. Bakverðir tryggðu liðum sínum stig í leikjunum tveimur. Vísir Íþróttir Íþróttir
James á leið aftur til KólumbíuJames Rodriguez er á heimleið til Kólumbíu eftir farsælan feril erlendis. Hann mun semja við Atlético Nacional en þetta segja kólumbískir miðlar. Fótbolti.net Fotbolti.net
Frakkar vilja Infantino burtFranska knattspyrnusambandið kallar eftir allsherjar breytingum hjá Alþjóðaknattspyrnusambandinu, FIFA, í yfirlýsingu sem birt var í dag. Lykill að því sé að fjarlægja Gianni Infantino af forsetastóli. Vísir Íþróttir Íþróttir
Deco: Gordon hentar Barcelona betur en RashfordDeco, íþróttastjóri Barcelona, segir að leikstíll Anthony Gordon henti Barcelona betur en stíll Marcus Rashford. Rashford skoraði fjórtán mörk í öllum keppnum þegar hann var á láni hjá Barcelona frá Manchester United en liðið vann spænska meistaatitilinn. Fótbolti.net Fotbolti.net
Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sínaSíðasta föstudag hófst heimsmeistaramót kvenna í körfubolta og hefur einn leikmaður stolið senunni. Kínverska körfuboltakonan Ziyu Zhang er hæsta körfuboltakona allra tíma og hærri en meðalleikmaður í NBA-deildinni. Vísir Íþróttir Íþróttir
Tvö íslensk hæfileikabúnt til MoldeNorska knattspyrnufélagið Molde hefur nú tryggt sér tvær af efnilegustu knattspyrnukonum landsins. Hin 17 ára Fanney Lísa Jóhannesdóttir kemur til félagsins frá Stjörnunni og hin 18 ára Sóley Edda Ingadóttir frá Val. Vísir Íþróttir Íþróttir
Sjö leikir á öðrum degi jólaEnska úrvalsdeildin hefur afhjúpað jóladagskrá sína en sjö leikir verða spilaðir 26. desember, á öðrum degi jóla. Aston Villa mætir Leeds í hádegisleik, fjórir leikir verða klukkan 15, Liverpool heimsækir Hull 17:30 og svo klukkan 20 um kvöldið etja kappi Newcastle og Mancheste City. Fótbolti.net Fotbolti.net
Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World TourRíkjandi Íslandsmeistarinn í golfi, Dagbjartur Sigurbrandsson, er í afar góðum málum fyrir lokahring úrtökumóts á fyrsta stigi fyrir Evrópumótaröðina, DP World Tour. Vísir Íþróttir Íþróttir
Jaissle telur sig fá ósanngjarna meðhöndlun dómaraMatthias Jaissle, stjóri Newcastle, segir skrítið að hann hafi fengið gult spjald fyrir hegðun á hliðarlínunni þegar aðrir stjórar sem hegða sér eins eru ekki spjaldaðir. Fótbolti.net Fotbolti.net
Fanney Lísa til Molde (Staðfest)Stjarnan og norska félagið Molde FK hafa náð samkomulagi um kaup norska félagsins á Fanneyju Lísu Jóhannesdóttur frá Stjörnunni. Fótbolti.net greindi frá því í vikunni að Fanney væri á leið í atvinnumennsku, fyrr í dag var svo sagt frá því að hún færi til Molde og talið að kaupverðið sé um sjö… Fótbolti.net Fotbolti.net
30 félög vildu leikmann sem valdi Liverpool - Svaf varla í margar vikurLiverpool hafði betur gegn Manchester United, Chelsea og fjölda annarra stórliða í baráttunni um hinn 17 ára gamla Samuel Martinez. Liverpool samdi við þennan sóknarsinnaða miðjumann sem kom frá Atletico Nacional í júlí fyrir 750 þúsund pund en hann gengur ekki formlega til liðs við félagið fyrr en… DV Íþróttir Íþróttir
Fyrirliði Aftureldingar framlengir daginn fyrir úrslitaleikinnFyrirliði Aftureldingar, Aron Elí Sævarsson, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning sem gildir út árið 2028. Þessi tíðindi eru tilkynnt á samfélagsmiðlum Aftureldingar daginn áður en liðið mætir Breiðabliki í úrslitaleik Mjólkurbikarsins. Fótbolti.net Fotbolti.net
Okafor mjög svekktur og gefur ekki kost á sér í landsliðiðNoah Okafor, leikmaður Leeds, hefur gefið út að hann muni ekki spila fyrir svissneska landsliðið í fyrirsjáanlegri framtíð. „Undir þessum kringustæðum þá get ég það hreinlega ekki lengur. Það gerðust hlutir sem snertu mig djúpt. Traustið var brotið," skrifar Okafor í færslu á samfélagsmiðlum. Fótbolti.net Fotbolti.net
„Vona að það verði enginn munur á vellinum“Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, segir að það muni kosta mikla vinnu að sjá til þess að völlurinn verði upp á sitt besta fyrir bikarúrslitaleik kvenna í fótbolta á laugardaginn. Vísir Íþróttir Íþróttir
Sjáðu afar umdeilda dómgæslu í Njarðvík sem margir eru brjálaðir yfirNjarðvíkingar vildu fá eitthvað fyrir sinn snúð þegar Þórhallur Ísak Guðmundsson í marki Þróttara óð út úr markinu og braut á sóknarmanninum Oumar Diouck í umspilsleik liðanna í gær. Um fyrri leik liðanna í undanúrslitum umspilsins um að fara upp í Bestu deildina var að ræða og vann Þróttur 0-1. DV Íþróttir Íþróttir
Arsenal að ganga frá nýjum samningi við ArtetaArsenal er að ganga frá nýjum samningi fyrir Mikel Arteta, stjóra liðsins. Viðræður hafa verið í gangi og allt stefnir í að Spánverjinn skrif undir endurnýjaðan samning. Fótbolti.net Fotbolti.net
Frakkland vill Infantino burt og umbreytingu á FIFA„Stjórnunarhættir FIFA standast ekki þá staðla sem fótboltinn stendur fyrir," segir Philippe Diallo, forseti franska fótboltasambandsins, í yfirlýsingu. Hann segir að endurskoða allt kerfi FIFA og vinna að umbótum, til þess þurfi að ræða við álfusambönd, aðildarlönd, leikmenn, stuðningsmenn og… Fótbolti.net Fotbolti.net
Arteta að skrifa undir - Fær væna launahækkunMikel Arteta er nálægt því að skrifa undir nýjan langtímasamning við Arsenal. BBC segir viðræður hafa tekið góðum framförum að undanförnu. Núverandi samningur Spánverjans rennur út eftir níu mánuði en fullvissa ríkir hjá Arsenal um að hann framlengi. DV Íþróttir Íþróttir
Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennuÍslenska landsliðskonan Ída Marín Hermansdóttir greip svo sannarlega tækifærið þegar það gafst er hún spilaði sinn fyrsta leik fyrir sænska liðið Hammarby í gær og skoraði þrennu. Vísir Íþróttir Íþróttir
Vilhjálmur Bretaprins setur mikilvægt verkefni á laggirnarVilhjálmur Bretaprins hefur hrundið af stað nýju átaki sem snýst um að gera sjálfsvígsforvarnir að föstum hluta íþróttastarfs í Bretlandi. Verkefnið nefnist „On Your Side“ og að því standa yfir 70 samtök, þar á meðal enska knattspyrnusambandið og enska úrvalsdeildin. DV Íþróttir Íþróttir
Sterkust í 18. umferð - Elskar ÍslandAshley Brown Orkus er sterkasti leikmaður 18. umferðar Bestu deildar kvenna. Hún átti stórleik þegar Fram vann 2-3 endurkomusigur gegn ÍBV í Vestmannaeyjum. „Ég verð eiginlega að gefa Ashley þetta vegna þess að hún átti nokkrar frábærar vörslur í fyrri hálfleik sem hélt Fram inn í leiknum,"… Fótbolti.net Fotbolti.net
Nálgast endurkomu eftir 16 mánaða fjarveruDejan Kulusevski nálgast loksins endurkomu á völlinn eftir að hafa verið frá keppni í 16 mánuði vegna þrálátra hnémeiðsla. Þessi 26 ára gamli Svíi hefur ekki spilað síðan í maí 2025 og missti af öllu síðasta tímabili. DV Íþróttir Íþróttir
Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í EvrópudeildinaUm klukkan 21 annað kvöld ætti að koma í ljós hvort það verður Afturelding eða Breiðablik sem verður fulltrúi Íslands í 1. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar næsta sumar. Leið þess liðs inn í Evrópudeildina er orðin enn torfærari en áður en leið Íslandsmeistaranna virðist mun greiðfærari. Vísir Íþróttir Íþróttir
Rodri biðst afsökunar á því sem hann sagði við vin sinn: Var hreinlega hissaRodri, miðjumaður Barcelona og spænska landsliðsins, komst í fréttirnar á dögunum fyrir athyglisverð ummæli um Valencia þegar hann ræddi við samherja sína á bekknum. Barcelona var að vinna leikinn mjög sannfærandi og Rodri sagði við þá Raphinha og Pau Cubarsi að Valencia væri mjög veikt lið. Fótbolti.net Fotbolti.net
Þetta er ekki Davíð gegn GolíatÞað er óvenjuleg staða uppi fyrir úrslitaleikinn í Mjólkurbikar karla. Breiðablik, eitt af stærstu félögum landsins, mætir Aftureldingu sem hefur nýlokið við að vinna Lengjudeildina og tryggja sér sæti í Bestu deildinni á næsta tímabili. Breiðablik er í djúpri lægð. Fótbolti.net Fotbolti.net
Taarabt hættur - „Göturnar munu ekki gleyma“Adel Taarabt, hefur tilkynnt að hann sé hættur í fótbolta en hann er 37 ára gamall. Margir muna eftir því þegar hann lét ljós sitt skína með QPR og þótti gríðarlega skemmtilegur leikmaður. Hann var með mikinn sköpunarmátt og oft óútreiknanlegur þegar hann var með boltann. Fótbolti.net Fotbolti.net