Sýnir: Íþróttir og undirflokka
10.975 fréttir fundust
Síða 184 af 220
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Flaug inn í úrslit á EM en telur sig eiga meira inniGuðrún Karítas Hallgrímsdóttir komst í kvöld í úrslit í fyrsta sinn á stórmóti þegar hún kastaði 70,31 m í fyrsta kasti á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í kvöld. Hún átti sjötta lengsta kastið í forkeppninni. Ruv Íþróttir Íþróttir
KR vann Fram í sjö marka Reykjavíkurslag18. umferð Bestu deildar karla lauk í kvöld með leik Fram og KR. Liðin voru í 2. og 3. sæti deildarinnar fyrir leikinn sem KR vann 5-2. KR-ingar byrjuðu með látum en Arnór Ingvi Traustason og Eiður Gauti Sæbjörnsson skoruðu tvö mörk á fyrstu sex mínútunum. Ruv Íþróttir Íþróttir
„Ég er bara ógeðslega sáttur með þetta“Einar Margeir Ágústsson náði bestum árangri íslenska sundfólksins á fyrsta degi Evrópumeistaramótsins í 50 metra laug í París þegar hann bætti sinn besta tíma í 100 metra bringusundi. Átta Íslendingar kepptu á fyrsta degi mótsins. Vísir Íþróttir Íþróttir
Náði ekki kasti sem hún var sátt meðElísabet Rut Rúnarsdóttir varð sjötta í A-riðli sleggjukastskeppni kvenna á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Birmingham í kvöld. Tólf komast í úrslit. Lengsta kast hennar var 67,50 metrar. Hún hefur litla trú á að það dugi henni í úrslit, enda var hún afar svekkt eftir keppni kvöldsins. Ruv Íþróttir Íþróttir
Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborðaEvangelos Marinakis, eigandi Nottingham Forest, hefur ákveðið að lögsækja Crystal Palace vegna borða sem stuðningsmenn þeirra afhjúpuðu og sýndi eiganda Nottingham Forest halda byssu að höfði miðjumannsins Morgan Gibbs-White. Vísir Íþróttir Íþróttir
Hilmar í úrslit í sleggjunniSleggjukastarinn Hilmar Örn Jónsson er kominn í úrslit á EM í frjálsum eftir góða frammistöðu í sínum riðli í Birmingham í morgun. Vísir Íþróttir Íþróttir
Højbjerg hafnaði NewcastleFyrirliði danska landsliðsins í fótbolta, Pierre-Emile Højbjerg, hefur hafnað samningi sem Newcastle bauð honum. Hann er búinn að vera hjá Marseille síðan 2024. Vísir Íþróttir Íþróttir