Sýnir: Íþróttir og undirflokka
10.986 fréttir fundust
Síða 74 af 220
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Vaknaði við skilaboð frá nýja þjálfaranumBreytingar eru hjá Hannover 96, félagi Stefáns Teits Þórðarsonar, sem skipti um þjálfara í gær. Stefán, sem er fyrirliði liðsins, var á ferðalagi til Íslands og mun því ekki hitta þjálfarann fyrr en um miðjan næsta mánuð. Vísir Íþróttir Íþróttir
Infantino sendir frá sér bréf - Er opinn fyrir umbótumGianni Infantino forseti FIFA hefur lagt til að óháður utanaðkomandi aðili fari yfir stjórnarhætti FIFA og segist opinn fyrir umbótum. Infantino hefur sent aðildarsamböndum FIFA bréf þar sem hann leggur til tvennt. DV Íþróttir Íþróttir
Selfoss fær liðsstyrk frá PóllandiTrawczyńska er 29 ára gömul örvhent hægri skytta sem leikið hefur með pólsku liðunum Zagłębie Lubin, Piotrcovia og JKS Jarosław. Þá hefur hún einnig spilað í Ungverjalandi við góðan orðstír með liðunum DKKA og Alba Fehérvár. Sunnlenska Íþróttir
Þór og Selfoss fá erfið verkefniÞór Þorlákshöfn dróst á móti Valsmönnum á meðan Selfyssingar munu fá Stjörnuna í heimsókn. Þá mætir Laugdælir/Uppsveitir 1. deildarliði KV en Hamar heimsækir utandeildarlið Aftureldingar. Sunnlenska Íþróttir
Er miðvarðakrísa á Íslandi?„Verkefnið fyrir íslenskan fótbolta er að búa til miðverði og djúpa miðjumenn,“ segir Guðjón Þórðarson, fyrrum landsliðsþjálfari karlalandsliðsins í fótbolta. „Það gerist ekki á þessum árum sem Arnar Gunnlaugsson verður við völd, þetta verður að búa til í samfélaginu. Ruv Íþróttir Íþróttir
„Ætlum að halda í boltann og pressa þær“„Leikurinn leggst mjög vel í okkur og við erum klárar fyrir morgundaginn“, segir Þórdís Elva Ágústsdóttir, leikmaður Breiðabliks um Evrópuverkefnið sem er framundan. Breiðablik mætir pólsku meisturunum Czarni Sosnowiec í 2. umferð Evrópubikarsins. Fótbolti.net Fotbolti.net
Ætlaði aldrei til Manchester UnitedLewis Hall, bakvörður Newcastle United á Englandi, segir aldrei hafa verið spurning fyrir sig að skrifa undir nýjan samning frekar en að fara til Manchester United. Vísir Íþróttir Íþróttir
Gascoigne heimsótti æfingasvæði Tottenham og fór að hafa stórar áhyggjurPaul Gascoigne, fyrrverandi leikmaður Tottenham, segir að hann hafi áttað sig á því strax á síðasta tímabili að liðið gæti lent í miklum vandræðum. Tottenham situr á botni ensku úrvalsdeildarinnar eftir fyrstu fimm leikina, án sigurs og með aðeins tvö stig. DV Íþróttir Íþróttir
Ekki hægt að hrósa Aroni nóg - „Verður sárt saknað“„Ég er spenntur fyrir verkefninu, spenntur fyrir því að vera með strákunum svona lengi - þetta er frábær og góður hópur með góða dínamík. Þetta verða pottþétt líka einhverjar áskoranir en mikil tilhlökkun,“ segir Guðlaugur Victor Pálsson aðspurður um komandi landsleikjaverkefni í Þjóðadeildinni. Fótbolti.net Fotbolti.net
Svona eru 32-liða úrslitin í bikarkeppni í körfuBúið er að draga í 32-liða úrslit bikarkeppni karla og kvenna í körfubolta. Dregið var í höfuðstöðvum Körfuknattleikssambandsins í Laugardalnum í dag.17 lið voru skráð til leiks kvennamegin og því fóru 16 lið beint áfram í 16-liða úrslit.32-liða úrslit kvennaKeflavík B - FjölnirKeflavík B og… Ruv Íþróttir Íþróttir
Liverpool skoðar mjög áhugaverðan varnarmannLiverpool er sagt fylgjast grannt með Givairo Read, 20 ára hægri bakverði Feyenoord. Samkvæmt TeamTalk er enska félagið með hollenska U21-landsliðsmanninn á lista hjá sér, en samkeppnin um hann gæti orðið hörð. DV Íþróttir Íþróttir
Leikmennirnir hans Ten Hag: 600 milljónir í hvað?Eftir að Sir Alex Ferguson hætti sem stjóri Manchester United þá hefur félagið eytt meira en milljarði punda í leikmannakaup. Það er ekki hægt að segja að mjög mörg þeirra hafi gengið upp. Fótbolti.net Fotbolti.net
„Stundum ertu með hálfvita sem þjálfara“Sean McVay, þjálfari Los Angeles Rams, gerði grín að sjálfum sér á blaðamannafundi eftir stórsigur á New York Giants í nótt. Rams svöruðu fyrir erfitt tap í fyrsta leik. Vísir Íþróttir Íþróttir
„Rosalega auðvelt að standa hérna og segja það“„Hópurinn er búinn að vera lengi saman og það er mikill þéttleiki innan hópsins. Við erum klárir í sextán daga saman,“ sagði Stefán Teitur Þórðarson í samtali við Fótbolta.net á liðshóteli landsliðsins fyrr í dag. Fótbolti.net Fotbolti.net
Landsliðsmenn glöddu unga aðdáendurÍsland tekur á móti Eistlandi á Laugardalsvelli á laugardaginn en þá hefja strákarnir okkar leik í C-deild Þjóðadeildarinnar. Svo koma leikir gegn Lúxemborg úti og Búlgaríu heima. Glugganum lýkur á öðrum leik við Eistland, þá á útivelli. Fótbolti.net Fotbolti.net
Jón Dagur ræðir dræma miðasölu - „Getum sjálfum okkur um kennt“„Ég held að við séum óhræddir að segja það að við ætlum okkur að vinna þennan riðil. Okkur langar ekki að vera í C-deild en það er staðan núna og við þurfum að byggja á því,“ sagði Jón Dagur Þorsteinsson í samtali við Fótbolta.net á hóteli landsliðsins fyrr í dag. Fótbolti.net Fotbolti.net
Myndasyrpa: Áritanir og æfing í LaugardalnumLandsliðsmenn Íslands hituðu upp fyrir æfingu dagsins á Laugardalsvelli með því að hitta unga aðdáendur og veita eiginhandaráritanir. Vísir Íþróttir Íþróttir
United mun tapa milljörðum ef JJ Gabriel fer frá EnglandiManchester United gæti orðið af milljónum punda ef JJ Gabriel yfirgefur félagið og heldur til útlanda. Gabriel er aðeins 15 ára en er talinn eitt mesta efni í akademíu United. Samkvæmt The Sun gæti félagið þó aðeins fengið um 300 þúsund pund í þjálfunarbætur ef hann semur við erlent félag. DV Íþróttir Íþróttir
Tónaði niður balkanska tuðið - „Pabbi tók mig harkalega eftir það"Keflvíkingurinn Stefan Alexander Ljubicic segist hafa hugsað sinn gang í sumar eftir að hafa tekið út leikbann vegna uppsafnaðra spjalda. Spjöldin fékk hann fyrir tuð í dómurum og segir hann að faðir sinn hafi farið vandlega yfir málin með honum þegar hann þurfti að taka út leikbann vegna framkomu… Fótbolti.net Fotbolti.net
Bjarki Steinn fótbrotinn og verður ekki meðBjarki Steinn Bjarkason var á hækjum á hóteli karlalandsliðsins í fótbolta í dag og tók ekki þátt á æfingu liðsins í morgun. Hann braut bein í fæti um helgina. Vísir Íþróttir Íþróttir
Bjarki Steinn á hækjum og verður ekki með landsliðinuLandsliðsmaðurinn Bjarki Steinn Bjarkason meiddist í leik með liði sínu Südtirol í ítölsku B-deildinni um helgina. Hann fór af velli í hálfleik í útisigri Südtirol á Arezzo. Hann er í landsliðshópnum sem er kominn saman og undirbýr sig fyrir leiki í Þjóðadeildinni. Fótbolti.net Fotbolti.net
Búinn að skrifa undir nýjan samning og fær verulega launahækkunMikel Arteta hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við Arsenal, samkvæmt frétt BBC Sport. Spánverjinn stýrði Arsenal til Englandsmeistaratitilsins á síðasta tímabili, þess fyrsta hjá félaginu síðan árið 2004, og hefur nú verið verðlaunaður með nýjum samningi. DV Íþróttir Íþróttir
Arteta á bara eftir að skrifa undirMikel Arteta hefur gert samkomulag við Arsenal um nýjan endurbættan samning. Núverandi samningur Spánverjans rennur út í lok þessa tímabils en viðræður um nýjan samning hafa staðið yfir í nokkra mánuði. Samkvæmt frétt BBC fær Arteta mikla launahækkun frá núverandi samningi. Fótbolti.net Fotbolti.net
Mamma Mbappé vildi að hann færi til LiverpoolKylian Mbappé var nærri því að ganga í raðir Liverpool frá Mónakó á sínum tíma. Mamma hans hvatti hann eindregið að fara til Bítlaborgarinnar. Vísir Íþróttir Íþróttir
„Forvitnilegt að sjá lið af þessari stærðargráðu spila hér á Íslandi"„Þetta leggst rosalega vel í okkur," segir Guðni Eiríksson, þjálfari kvennaliðs FH, um Evrópuverkefnið sem er framundan. FH mætir stórliði Eintracht Frankfurt frá Þýskalandi í 2. umferð Evrópubikarsins. „Það er gaman að mæta einu af sterkustu liðum Evrópu og kljást við þær aðeins," segir Guðni. Fótbolti.net Fotbolti.net
Vakti mikla athygli um helgina - Mætti með kærustuna sem er 38 árum yngriLothar Matthäus, fyrrverandi fyrirliði Þýskalands og goðsögn hjá Bayern München, vakti athygli á Oktoberfest í München um helgina þegar hann mætti með kærustu sinni, Theresu Sommer. Matthäus er 65 ára en Sommer er 27 ára, því munar 38 árum á parinu. DV Íþróttir Íþróttir
Aron Einar mun leggja landsliðsskóna á hilluna — slær hann metið?Landsliðsmaðurinn í fótbolta Aron Einar Gunnarsson hefur tilkynnt að komandi leikir í haust í Þjóðadeild Evrópu verði hans síðustu í treyjunni bláu. Aron tilkynnti þetta í færslu á samfélagsmiðlum sínum rétt í þessu. Ruv Íþróttir Íþróttir
Síðustu landsleikir Arons Einars framundanAron Einar Gunnarsson mun spila sína síðustu landsleiki með íslenska karlalandsliðinu í Þjóðadeildinni núna fyrir áramót. Vísir Íþróttir Íþróttir
Aron Einar: Þetta verður mín síðasta keppni með landsliðinuAron Einar Gunnarsson (1989) hefur gefið að Þjóðadeildin í ár verði hans síðasta keppni með íslenska landsliðinu. Framundan í landsleikjaglugganum eru fjórir leikir í Þjóðadeild C og riðlakeppninni lýkur í nóvember. Fótbolti.net Fotbolti.net
Erfið og leiðinleg staða fyrir Heimi að vera íPólitíkin og alþjóðamálin náðu að teygja anga sína í Besta sætið í dag. Ísraelar eru ósáttir með Heimi Hallgrímsson og pressa á Írlandi að landsliðið sniðgangi leiki sína við Ísrael í Þjóðadeildinni. Vísir Íþróttir Íþróttir
Innkastið - Siggi Lár og rígurinn rosalegiSérstök útgáfa af Innkastinu þar sem Sigurður Egill Lárusson, leikmaður Þróttar og leikmaður ársins í Lengjudeildinni, er sérstakur gestur. Rætt er um sigur Þróttar í 100 milljóna leiknum, lið ársins í Lengjudeildinni, ríginn rosalega milli KR og Víkings, sunnudagsleikina í Bestu og fleira. Fótbolti.net Fotbolti.net
Af hverju eru Ísraelar svona reiðir út í Heimi?Ísraelska knattspyrnusambandið hefur gagnrýnt Heimi Hallgrímsson harðlega vegna ummæla hans um Ísrael. Heimir stýrir Írum og þjóðirnar mætast í B-deild Þjóðadeildar Evrópu næstu daga. Sambandið sagði að Heimir sýndi heimsku og hræsni með ummælum sínum. Ruv Íþróttir Íþróttir
Giskaðu á ferilinn - Ný þraut á hverjum degiMeð nýrri síðu Fótbolti.net munum við gefa út nokkra skemmtilega fótboltaleiki sem verða eingöngu aðgengilegir fyrir áskriftarmeðlimi. Hins vegar verða þeir opnir öllum til að byrja með, svo allir fá að prófa. Fótbolti.net Fotbolti.net