Sýnir: Íþróttir og undirflokka
10.986 fréttir fundust
Síða 76 af 220
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
„Betra að vera í Mónakó en Chelsea"Lamine Camara, miðjumaður Mónakó, var mikið í umræðunni eftir félagaskiptagluggan í sumar. Mónakó samþykkti 47 milljón punda tilboð Chelsea í þennan 22 ára gamla Senegala á lokadegi gluggans en Mónakó bakkaði út á síðustu stundu. Fótbolti.net Fotbolti.net
Hugsanlegt að önnur þung refsing bíði Southampton vegna njósnamálsinsTonda Eckert, stjóri Southampton, gæti verið dæmdur í bann í vikunni vegna njósnamálsins sem kostaði liðið sæti í úrslitaleik umspils ensku B-deildarinnar. Eckert var ákærður af enska knattspyrnusambandinu í júlí fyrir sinn þátt í því að Southampton njósnaði um æfingar Oxford United, Ipswich og… DV Íþróttir Íþróttir
De la Fuente stýrir spænska landsliðinu á EM 2032Spænska fótboltasambandið hefur náð samkomulagi við Luis de la Fuente, landsliðsþjálfara, um nýjan sex ára samning eftir að liðið vann HM í sumar. Hann mun því stýra liðinu á HM 2030 sem verður haldið á Spáni, Marokkó og Portúgal. Þá verður hann stjóri liðsins á EM 2028 og 2032. Fótbolti.net Fotbolti.net
Chivu bætti met MourinhoChristian Chivu, stjóri Inter, hefur byrjað vel með liðið en enginn stjóri í sögu félagsins hefur verið jafn fljótur að safna hundrað stigum í ítölsku deildinni. Fótbolti.net Fotbolti.net
Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óöruggaBrighton vann 3-0 stórsigur á ríkjandi Englandsmeisturum Arsenal um helgina. Margir héldu að liðið myndi fara í lægð eftir að hafa náð hátindi fyrir um fjórum árum en gengi liðsins virðist vera betra en þá. Vísir Íþróttir Íþróttir
Gætu reynt á ný í janúar - Kostar nú tvöfalt meiraTottenham íhugar að reyna á ný við Morgan Gibbs-White, miðjumann Nottingham Forest. Football Insider segir frá. Tottenham reyndi að kaupa Gibbs-White sumarið 2025 og ætlaði þá að virkja 60 milljóna punda riftunarákvæði í samningi hans. Það fór þó svo að leikmaðurinn skrifaði undir nýjan samning. DV Íþróttir Íþróttir
Sesko dregur sig úr landsliðshópnumBenjamin Sesko, framherji Man Utd, hefur dregið sig úr slóvenska landsliðshópnum vegna þrálátra meiðsla. Sesko var ekkert með á undirbúningstímabilinu vegna meiðsla á sköflung og var aftur fjarverandi gegn Fulham í gær en hann hafði spilað alla leiki á tímabilinu fram að því. Fótbolti.net Fotbolti.net
Stytta keppnir í Formúlu 1Alþjóðaakstursíþróttasambandið, FIA, hefur staðfest tillögu um að keppnir í Formúlu 1 verði styttar á næsta ári. Þetta er gert vegna skipulagðra breytinga á vélum í Formúlu 1 á næsta ári. Vísir Íþróttir Íþróttir
Carragher: Wirtz á ekki að vera í liðinu gegn Man CityFlorian Wirtz hefur ekki staðist undir væntingum eftir að hann gekk til liðs við Liverpool frá Leverkusen í fyrrasumar fyrir 116 milljónir punda. Hann kom að 17 mörkum í 49 leikjum á síðustu leiktíð og hefur lagt upp eitt mark í sex leikjum á þessari leiktíð. Fótbolti.net Fotbolti.net
Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hansSkotinn Sandy Scott tryggði sig um helgina á PGA-mótaröðina eftir að hafa unnið Nationwide Children’s Hospital Championship-mótið á Korn Ferry-mótaröðinni. Hann er þakklátur fyrir það að ná þessum árangri þar sem fyrr á ferlinum var hann ekki viss um að hann gæti spilað mikið golf. Vísir Íþróttir Íþróttir
Stuðningskveðjum rignir yfir knattspyrnumann eftir bílslysJordan Graham, fyrrum leikmaður liða eins og Wolves og Birmingham, liggur á sjúkrahúsi eftir alvarlegt bílslys fyrr í þessum mánuði. Samtök atvinnuknattspyrnumanna á Englandi greindu frá þessu í dag en hinn 31 árs gamli Graham er í sérhæfðri meðferð á sjúkrahúsi. DV Íþróttir Íþróttir
Amorim: Get ekki gert sömu mistök og hjá Man UtdRuben Amorim, stjóri AC Milan, segist ekki ætla að gera sömu mistök og hann gerði hjá Man Utd. Amorim tók við Milan í sumar eftir að hafa verið rekinn frá Man Utd í janúar. Hann er þekktur fyrir að spila með þriggja manna varnarlínu sem gekk ekki upp hjá Man Utd. Fótbolti.net Fotbolti.net
Segir að Amin Cosic gæti fengið kallið frá Bosníu í næsta gluggaFyrrum landsliðsmaðurinn Emir Spahic er yfirmaður fótboltamála hjá fótboltasambandi Bosníu og Hersegóvínu. Spahic sem lék m.a. með Sevilla og Leverkusen á sínum ferli hefur rætt við íslenska U21 landsliðsmanninn Amin Cosic. Fótbolti.net Fotbolti.net
Er Besta deildin í krísu?Nú fer fram hávær umræða um að breyta fyrirkomulagi Bestu deildarinnar. Umræðan virðist að mestu koma frá þjálfurum og álitsgjöfum. Helsta breytingin sem kallað er eftir er að fjölga liðum úr 12 í 14 og leika tvöfalda umferð, heima og að heiman. Fótbolti.net Fotbolti.net
Arsenal horfir til Þýskalands en fær samkeppni frá öðrum enskum stórliðumArsenal hefur sett Max Beier, sóknarmann Borussia Dortmund, á óskalista sinn eftir að félaginu mistókst að fá Julian Alvarez í sumar. Teamtalk heldur þessu fram. Útsendarar Arsenal hafa lengi fylgst með hinum 23 ára gamla Beier og eru sagðir mjög hrifnir af honum. DV Íþróttir Íþróttir
Segir félagið þegar hafa tekið út þunga refsinguÞað eru rúmir fjórir mánuðir síðan njósnaskandallinn í kringum Southampton var eitt helsta fréttamálið. Bið Tonda Eckert, stjóra Southampton, eftir því að fá dóm er næstum á enda. Málið verður tekið fyrir í þessari viku eftir að Eckert var ákærður. Fótbolti.net Fotbolti.net
Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennskuPaul Merson, sérfræðingur Sky Sports um ensku úrvalsdeildina, segir að Manchester City muni ekki verða Englandsmeistari haldi liðið áfram að spila eins og það hefur verið að gera hingað til í deildinni. Vísir Íþróttir Íþróttir
„Ég geri bara mitt og sé hvert það leiðir“Jóhanna Margrét var í miklum ham gegn Val á Ásvöllum í gærkvöldi. Hún bar höfuð og herðar yfir aðra leikmenn vallarins og skoraði 12 mörk í 28-24 sigri Hauka. Haukar hafa því unnið alla þrjá leiki sína í deildinni og eru á toppnum ásamt Fram og ÍR. Ruv Íþróttir Íþróttir
13 ára sundundur raðar inn verðlaunum og bætir met13 ára gamla kínverska sundkonan Yu Zidi hefur slegið tvö mótsmet á Asíuleikunum í sundi og unnið sín fyrstu gullverðlaun. Þrátt fyrir það segir hún frammistöðuna hafa verið í besta falli allt í lagi. Vísir Íþróttir Íþróttir
FH fær unglingalandsliðskonu frá Selfossi (Staðfest)Sara Rún Auðunsdóttir er komin í FH sem fær hana frá uppeldisfélaginu Selfossi. Hún gengur formlega til liðs við FH 16. nóvember. Sara Rún er 15 ára unglingalandsliðskona sem skrifar undir þriggja ára samning í Kaplakrika. Fótbolti.net Fotbolti.net
Ósáttur Mourinho prentaði út myndir og mætti með á fréttamannafundJose Mourinho, stjóri Real Madrid, var mjög ósáttur við dómgæsluna í 2-1 tapleiknum gegn grönnunum í Atletico Madrid. Sá portúgalski mætti á fréttamannafund með útprentuð blöð með myndum af tveimur brotum úr fyrri hálfleik þar sem hann vildi rauð spjöld á andstæðingana. Fótbolti.net Fotbolti.net
Mourinho óttast það ekki að verða rekinn á næstu dögumJose Mourinho hefur gert lítið úr vangaveltum um framtíð sína hjá Real Madrid eftir 2-1 tap gegn Atletico Madrid um helgina. Real er nú í fjórða sæti La Liga, sex stigum á eftir toppliði Barcelona, en Mourinho telur nægan tíma til að snúa stöðunni við. DV Íþróttir Íþróttir
ÍBV spilaði í endurgerð af sögufrægum búningumÍBV spilaði í gær í hvítum treyjum með rauðum, hvítum og svörtum ermum sem minntu á 1998 treyju liðsins. Það ár varð liðið tvöfaldur meistari. Búið var að ákveða að selja treyjur sem væru í þeim stíl en það var svo tekin ákvörðun um að spila í treyjunum í leiknum gegn Val í gær. Fótbolti.net Fotbolti.net
Hefur fengið upp í kok af svona kjaftasögum eftir að hún eignaðist frægan unnustaEster Exposito, spænska leikkonan sem er í sambandi með Kylian Mbappe, hefur gagnrýnt harkalega þær sögusagnir sem hafa sprottið upp um einkalíf parsins. Exposito ræddi málið í viðtali við spænsku útvarpsstöðina Cadena SER og sagði það erfitt að verjast röngum upplýsingum sem dreifast hratt á… DV Íþróttir Íþróttir
„Sjokkerandi og vonbrigði ef hann verður rekinn“Martin O'Neill, hinn 74 ára gamli stjóri Celtic í Glasgow, segir að hann muni nota landsleikjahléið til að stokka spilin og skoða hvað betur megi fara eftir tvo tapleiki í röð gegn erkifjendunum í Rangers. Fótbolti.net Fotbolti.net
Eiði Smára ekki skemmtEiður Smári Guðjohnsen var ekki hrifinn af sínu gamla félagi Chelsea sem fékk 3-0 útreið gegn Brentford í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Vísir Íþróttir Íþróttir
Stórhrifinn af því sem Maresca hefur gert með CityAndy Dunn, íþróttafréttamaður Mirror, er stórhrifinn af byrjun Enzo Maresca í stjórastólnum hjá Manchester City. Nú þegar landsleikjahlé er gengið í garð er City á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með fullt hús, þremur stigum meira en ríkjandi meistarar Arsenal. Fótbolti.net Fotbolti.net
Formaður Fylkis: Heilmikið sem þarf að skoða á næstu dögumFylkir tapaði í úrslitaleik Lengjudeildarumspilsins á laugardag og verður því í Lengjudeildinni á næsta tímabili. Þróttur skoraði eina mark leiksins og fer upp í Bestu deildina. Fótbolti.net ræddi við Ragnar Pál Bjarnason sem er formaður fótboltadeildar Fylkis sem ber sig vel þrátt fyrir tapið. Fótbolti.net Fotbolti.net
Maðurinn sem United vill fá gæti orðið mjög eftirsóttur næsta sumarManchester United hefur áhuga á að fá Lewis Hall, vinstri bakvörð Newcastle, næsta sumar. Samkvæmt umfjöllun um félagið er Hall ofarlega á blaði hjá United, sem hefur verið gagnrýnt fyrir félagaskiptastefnu sína og þá ákvörðun að einbeita sér fyrst að miðju og sókn áður en varnarlínan verður… DV Íþróttir Íþróttir
Andri í fimmta sæti á alþjóðlegu heimsbikarmótiAndri Nikolyasson Mateev varð í 5. sæti á heimsbikarmóti í skylmingum um helgina. Mótið Sofia Cup 2026 fór fram í Búlgaríu og er það FIE World Cup Satellite mót. Með árangri á mótinu fást stig sem telja inn á heimslista og þannig er hægt að vinna sig inn á heimsmeistaramótið sjálft. Ruv Íþróttir Íþróttir
Myndaveisla: Stuð og stemning í uppseldu bakgarðshlaupiKristján Karl Björnsson sigraði í Bakgarðshlaupinu í Heiðmörk með 39 hringi. Hlaupið fór fram við góðar aðstæður þar sem að keppendur annað hvort hlupu til sigurs eða kepptust við að sigrast á sínum eigin markmiðum. Vísir Íþróttir Íþróttir
Lést í mótorhjólaslysi aðeins 29 ára gamallIndverski knattspyrnumaðurinn Rijohn Jose er látinn, 29 ára að aldri, eftir mótorhjólaslys í borginni Kozhikode á sunnanverðu Indlandi. Jose, sem lék með Calicut FC, var á ferð með liðsfélaga sínum Gani Ahmed Nigam þegar þeir lentu í árekstri við annað mótorhjól á sunnudagskvöld. DV Íþróttir Íþróttir
Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðunOmar Sowe er á leið frá ÍBV til KR þegar samningur hans rennur út í nóvember. Hann á aðeins eftir að gangast undir læknisskoðun í Vesturbæ. Vísir Íþróttir Íþróttir
Omar Sowe með samkomulag við KROmar Sowe mun samkvæmt heimildum Fótbolta.net að öllum líkindum ganga í raðir KR eftir tímabilið. Framherjinn var orðaður við KR í sumar, er með lausan samning eftir tímabilið og mun hann ganga í raðir KR ef hann stenst læknisskoðun hjá félaginu að tímabili loknu. Fótbolti.net Fotbolti.net
Wrexham hefur keypt barinn heimsfrægaEigendur fótboltafélagsins Wrexham tilkynntu í dag um kaup á hinni sögufrægu krá, The Turf, sem er alveg við heimavöllinn, Racecourse Ground. Fótbolti.net Fotbolti.net
Af hverju komust Blikar í stærsta íþróttaleik heims?Kvennalið Breiðabliks í fótbolta verður hluti af EA SPORTS FC, stærsta íþróttatölvuleik í heimi. Næsta útgáfa, EA SPORTS FC 2027, kemur út 25. september og þar verður hægt að stýra Öglu Maríu Albertsdóttur og Hrafnhildi Ásu Halldórsdóttur. Ruv Íþróttir Íþróttir
Faðir JJ Gabriel vill hann burt frá United af þessari ástæðuJJ Gabriel vill yfirgefa Manchester United þar sem fjölskylda hans telur félagið hafa dregist of langt aftur úr bestu liðum Evrópu. Þetta kemur fram í Daily Mail, sem segir að óánægja fjölskyldunnar með stöðu United frá því Sir Alex Ferguson hætti hafi verið stór þáttur í ákvörðuninni. DV Íþróttir Íþróttir