43.400 fréttir fundust
Síða 464 af 868
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Frá Liverpool og er mættur til Sádí ArabíuRichard Hughes hefur verið ráðinn í starf íþróttastjóra hjá Al-Hilal, aðeins degi eftir að hann lét af störfum hjá Liverpool. Hughes hafði ákveðið fyrr á árinu að yfirgefa Liverpool en hélt áfram fram yfir sumargluggann til að aðstoða félagið og nýja knattspyrnustjórann Andoni Iraola. DV Íþróttir Íþróttir
Haförn í KollafirðiJúlíus Garðar Þorvaldsson áhugaljósmyndari á Hólmavík náði þessari góðu mynd af haferni á flugi yfir Kollafirði á Ströndum í síðasta mánuði. BB.is - Fréttir Héraðsfréttir
28 milljarða tekjur af áfengisgjaldiÁætlaðar tekjur af áfengisgjaldi eru 28 milljarðar króna á næsta ári og tekjur af tóbaks- og nikótíngjöldum 9 milljarðar króna. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Trump telur Ísland tilheyra BandaríkjunumBirtingin vekur athygli í ljósi ítrekaðra yfirlýsinga Trump um Grænland undanfarin misseri. Forsetinn hefur ítrekað lýst því yfir að Bandaríkin þurfi að ná yfirráðum yfir Grænlandi og hefur meðal annars vísað til þjóðaröryggis og vaxandi umsvifa Rússlands og Kína á norðurslóðum. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Finnar ljúka 200 km girðingu við rússnesku landamærinFinnar hafa formlega lokið byggingu á 200 kílómetra girðingu meðfram landamærunum að Rússlandi. Tilgangurinn með girðingunni er að koma í veg fyrir að Rússar geti sent flóttamenn yfir landamærin til að láta reyna á innviði landsins, eins og brögð voru að fyrir tæpum þremur árum. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfDLangvarandi stöðnun, hátt verðlag, þungt regluverk og versnandi innviðir eiga stóran þátt í sögulegu fylgi AfD í Saxlandi-Anhalt, að mati íslenskrar athafnakonu sem hefur búið í Þýskalandi í rúm tuttugu ár. Hún segir of einfalt að skýra niðurstöðuna eingöngu með útlendingamálum. Vísir Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Trump þekur Ísland með bandaríska fánanumTrump hefur lagt fram svokallaða „Donroe-kenningu“, sem byggir á Monroe-kenningunni frá 19. öld, um að nágrannaríki heyri undir áhrifasvið Bandaríkjanna en ekki Evrópu. Nú virðist hann hafa skilgreint Ísland meðal þeirra. Heimildin Innlent Innlendar fréttir
„Launafólk er komið í meiri mínus“„Það á að vera ófrávíkjanleg skylda að fara vel með opinbert fé, en hallalaus fjárlög þjóna ekki tilgangi sínum ef niðurstaðan er aukin verðbólga, vaxandi atvinnuleysi og stöðnun, sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir efnahagslífið og samfélagið til langs tíma. “ MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hækkun kílómetragjalds hafi legið fyrir „í mörg ár“Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að hækkun kílómetragjalds í ár hafi legið fyrir frá því að gjaldið var kynnt fyrir ári. Hækkun gjaldsins umfram verðlag hafi þannig verið inni í fjármálaáætlun „í mörg ár“. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
30 vélmenni kölluðu eftir auknu regluverki um gervigreindPólsk stjórnvöld hafa þegar stigið skref í átt að auknu eftirliti. Karol Nawrocki forseti undirritaði í júlí lög sem innleiða gervigreindarlöggjöf Evrópusambandsins í Póllandi. Með lögunum var komið á fót innlendu stjórnvaldi sem hefur það hlutverk að framfylgja reglum sambandsins um gervigreind. Mannlíf - Erlent Erlendar fréttir
Klórar sér í kollinumVilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambands Íslands segist klóra sér í kollinum yfir fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár. Hann segir að við fyrstu sýn virðist frumvarpið gera lítið fyrir kjomandi kjaraviðræður, áhrif á persónuafslátt og barnabætur séu sérlega vond. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu?Dagana 22.–24. október 2025 var haldin norræn-baltísk ráðstefna í Reykjavík um neysluvatn, áhættumat og viðbúnað vegna mengunar og neyðarástands. Yfirskrift ráðstefnunnar var Drinking Water as Food and Critical Infrastructure – Strengthening Preparedness and Resilience. Vísir Skoðun Aðsendar greinar
Grænlendingar fá 29 milljarða pakkaUrsula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, tilkynnti í dag um 200 milljóna evra (um 29 milljarða íslenskra króna) pakka fyrir Grænland í heimsókn sinni til danska sjálfstjórnarsvæðisins, en hún hét því að styðja það í ljósi áhuga Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, á… MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Barton bak við lás og slá fram á nýtt árJoey Barton verður áfram í gæsluvarðhaldi í fangelsi í Liverpool fram á nýtt ár eftir að beiðni um lausn gegn tryggingu var hafnað. Barton var handtekinn þann 8. mars vegna ásakana um líkamsárás við vinsælan golfklúbb í Liverpool. Fótbolti.net Fotbolti.net
Húsnæðisliðurinn í neysluvísitölunniHvað gerist þegar húsnæðisliðurinn og verðtryggingin eru skoðuð saman? Ríkisstjórnin hefur boðað lagabreytingar sem eiga að draga úr vægi verðtryggingar í íslensku fjármálakerfi. Þetta er stórt skref, og það er ómögulegt að ræða það án þess að horfa á Blog.is - Umræðan Blogg
Talandi um meðal.Ég minnist þess þegar ég var í Sjómannaskólanum var læknir sem var með áfanga fyrir okkur sem til þess var fallinn að létta okkur læknisverk ef enginn alvörulæknir væri nálægt. Hann var gamansamur í meira lagi og sagði okkur að áður fyrr þá hefði arsenik Blog.is - Umræðan Blogg
Hafa ekki enn fengið útskýringu á því af hverju Balogun fékk að spilaBelgíska knattspyrnusambandið hefur enn ekki fengið greinileg svör hvers vegna Folarin Balogun fékk að leika gegn Belgíu á heimsmeistaramótinu í fótbolta í sumar. Belgía hefur beðið um að fjallað verði um málið á næsta FIFA fundi. Vísir Íþróttir Íþróttir
„Seilist enn á ný í vasa almennings“Í nýja frumvarpinu er boðuð dulin skatthækkun á almenning með því að láta persónuafslátt og skattþrep hækka minna en núgildandi reglur segja til um. Þessi breyting, sem stjórnvöld rökstyðja með vísan til styttri vinnuviku og minni framleiðniaukningar, á að skila ríkissjóði 3,1 milljarði króna í… Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
PISA 2022: Mesta fall frá upphafiÁrangur íslenskra barna í PISA-könnuninni sem var lögð fyrir 2022 þótti sérstakt áhyggjuefni. Þátttökuríki Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) lækkuðu á milli kannana en þó ekkert jafn mikið og Ísland. Alls tóku 3.356 grunnskólabörn í 10. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Ein eftirminnilegasta flugvél í sögu íslensks flugs rifin í tætlur„Einu sinni flaug hún um himinhvolfin í einu fallegasta litaskema sem gert hefur verið og bar með sér brot af norðurljósum Íslands um heiminn,“ skrifar Hendrik. Hann segir sorglegt að sjá vélina nú tekna í sundur og að jafnvel þekktustu flugvélar komist að lokum á endastöð. Mannlíf - Innlent Innlendar fréttir
Uppljóstra því hvað stóð á miðanum sem Alonso sendi inn á völlinnXabi Alonso, stjóri Chelsea, reyndi að breyta leik liðsins á lokamínútunum í 2-1 tapinu gegn Arsenal með því að senda taktísk skilaboð inn á völlinn. Alonso lét Danny Welbeck, sem kom inn á sem varamaður seint í leiknum, taka með sér samanbrotið blað til Reece James. DV Íþróttir Íþróttir
Furðulegustu félagaskipti sumarsinsFélögin í ensku úrvalsdeildinni settu nýtt met í sumar þegar eyðslan á félagaskiptamarkaðnum fór upp í 3,49 milljarða punda. Upphæðirnar sem félögin voru tilbúin að greiða fyrir nýja leikmenn voru hærri en nokkru sinni fyrr. Fótbolti.net Fotbolti.net
„Þetta var bara tímasóun"„Ef við værum með fjölmiðlafulltrúa í þessu félagi þá væri hann örugglega búinn að segja mér að segja 'no comment' á það," sagði Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvík, er hann var spurður út í kæru sem félagið fékk á sig á dögunum. Fótbolti.net Fotbolti.net
Skattarnir og gjöldin sem munu taka breytingumÝmsir skattar og gjöld munu hækka um 5,2% á næsta ári í takti við verðbólgu. Þá koma líka inn ný gjöld og skattar, meðal annars á banka, ferðamenn og lækkun á endurgreiðslu vegna virðisaukaskatts vegna byggingarkostnaðar. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Fjallabyggð tekur við rekstri skíðasvæðisins í SkarðsdalBæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt að hafna öllum umsóknum sem bárust um rekstur skíðasvæðisins í Skarðsdal. Sveitarfélagið mun því sjálft sjá um rekstur svæðisins á komandi vetri. Afgreiðslu málsins var frestað á fundi bæjarráðs 20. ágúst. Trölli.is - Fréttir Héraðsfréttir
Stjarnan og Valur í neðri hlutanum í fyrsta sinnTímabilið hjá Val og Stjörnunni hefur verið mikil vonbrigði. Í gær varð ljóst að bæði lið verða í neðri hlutanum í Bestu deildinni og er það í fyrsta sinn frá því að deildinni sem skipt er í efri og neðri hluta sem liðin eru í neðri hlutanum. Fótbolti.net Fotbolti.net
ESB eykur fjárfestingu á Grænlandi – meðal annars í fjarskiptumEvrópusambandið ætlar að setja 200 milljónir evra aukalega – jafnvirði 28 milljarða íslenskra króna – í fjárfestingar á Grænlandi næstu tvö árin. Þetta tilkynnti Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á blaðamannafundi í Nuuk í morgun. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Myndasöguhátíð Siglufjarðar haldin í þriðja sinn um næstkomandi helgiMyndasöguhátíð Siglufjarðar verður haldin dagana 11. til 13. september. Hátíðin, sem er líklega nyrsta myndasöguhátíð í heimi, snýr nú aftur í þriðja sinn. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá á nokkrum stöðum á Siglufirði. Trölli.is - Fréttir Héraðsfréttir
Samfélagið er ekki ókeypisÞað er undarlegt að fylgjast með umræðunni þegar nýtt fjárlagafrumvarp lítur dagsins ljós. Það er eins og mörgum yfirsjáist algjör grundvallarsannindi: Mannúðlegt og sterkt samfélag er ekki sjálfsprottinn hlutur sem verður til úr engu. Það er samkomulag Blog.is - Umræðan Blogg
Aldrei neitt vesen á þungarokkurum„Það er ekkert í gangi á þessum tíma. Ekki það að ég sé hræddur við samkeppni, alls ekki, ég þrífst í henni. En í byrjun febrúar er búið að vera myrkur lengi, það er kalt, þunglyndi skýst upp, því miður og jólin eru búin. Sunnlenska - Fréttir Héraðsfréttir
Hnúfubakur við ósa BlönduHnúfubakur lék listir sínar rétt við land við ósa Blöndu í morgunsárið. Að sjálfsögðu fangaði Róbert Daníel augnablikið eins og hans er von og vísa og gaf Feyki góðfúslegt leyfi til að birta myndir. Feykir.is Héraðsfréttir
Göngin lokuð: Verið að draga bílHvalfjarðargöng eru lokuð eins og er, en verið er að draga bíl upp úr göngunum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Langvinnur hallarekstur stöðvaður„Ríkissjóður hefur verið rekinn með halla samfleytt í átta ár. Nú höfum við snúið þeim mínus í plús og fært ríkisfjármálin á traustari grunn. Þetta er mögulegt vegna þess að við erum að halda aftur af útgjaldavexti, bæta rekstur ríkisins og forgangsraða fjármunum í þágu velferðar og grunnþjónustu. Fréttatíminn - Innlent Innlendar fréttir
Sjóða þarf neysluvatn í Ólafsfirði vegna þrifa á vatnstankiÁ morgun, þriðjudaginn 8. september, verður vatnstankur í Ólafsfirði þrifinn. Af þeim sökum þurfa íbúar og fyrirtæki að sjóða allt neysluvatn frá kl. 20.00 á þriðjudagskvöld og til kl. 02.00 aðfaranótt miðvikudagsins 9. september. Trölli.is - Fréttir Héraðsfréttir
Ndiaye: Þú segir ekki nei þegar Man City hringirManchester City keypti hinn 26 ára gamla Iliman Ndiaye frá Everton á gluggadeginum og hann fór beint inn í byrjunarliðið í 1-0 sigrinum gegn Coventry um helgina. Ndiaye virtist vera á leið til Tottenham í lok gluggans en ekkert varð úr því þar sem Spurs mistókst að selja Richarlison. Fótbolti.net Fotbolti.net
Uggandi yfir breytingum á stjórn NorðurorkuAkureyrarbær á 98,2% hlut í Norðurorku. Aðrir eigendur eru Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Grýtubakkahreppur, Þingeyjarsveit og Hörgársveit. Á aðalfundi Norðurorku voru tillögur um breytingar á stjórn samþykktar. Þær þýða að minni sveitarfélögin missa áheyrnarfulltrúann. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Þjóðarhöll fær aukið fjármagnTil stendur að auka við hlutafé Þjóðarhallar ohf. í samræmi við fjárheimildina sem liggur fyrir á málefnasviði mennta- og barnamálaráðuneytisins vegna uppbyggingar á nýrri Þjóðarhöll í Laugardal. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Sex VMA-nemar í AFS-skiptinámi á Erasmus+ styrkÁ síðustu önn, vorönn 2026, fóru fimm nemendur VMA í 3-5 mánaða skiptinám til þriggja Evrópulanda, Belgíu, Tyrklands og Lettlands, á vegum AFS-skiptinemasamtakanna og í síðustu viku fór einn VMA-nemi til viðbótar í skiptinám á vegum AFS til Slóvakíu. Vikublaðið - Fréttir Héraðsfréttir
Mestu hækkanir síðan á tímum JóhönnustjórnarinnarBjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, SA, segir að skattahækkanir sem boðaðar eru á fjárlögum, sem ríkisstjórnin kynnti í morgun, séu þær mestu síðan á tíma Jóhönnustjórnarinnar svokölluðu. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Vinalegt andlit hægri öfgaflokksins: „Eins og góður félagi“Þýski hægriflokkurinn Alternative für Deutschland (AfD) vann sögulegan stórsigur í fylkiskosningunum í Saxlandi-Anhalt og fékk um 44 prósent atkvæða. Úrslitin eru þungt högg fyrir Friedrich Merz kanslara og Kristilega demókrataflokkinn CDU og gætu markað tímamót í þýskum stjórnmálum. Heimildin - Erlent Erlendar fréttir
Ástand hjá Fulham - Tveir lykilmenn eyða öllu tengdu félaginuMikil umræða hefur skapast um stöðuna hjá Fulham eftir að Alex Iwobi og Emile Smith Rowe virðast hafa fjarlægt efni tengt félaginu af Instagram-síðum sínum. Fulham hefur tapað öllum þremur deildarleikjum sínum undir stjórn Alvaro Arbeloa og fengið á sig sjö mörk. DV Íþróttir Íþróttir