43.360 fréttir fundust
Síða 715 af 868
TímiFyrirsögnMiðillFlokkurDagsetningSótt
Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáliSakborningar í umfangsmiklu fjárkúgunarmáli eru nú tíu talsins. Brotaþolar eru þrír en lögreglan hefur upplýsingar um að þeir kunni að vera talsvert fleiri og hvetur fólk sem kann að hafa orðið fyrir barðinu á svikurum að stíga fram. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Hinir miklu alvitringarSjálfskipaðir alvitringar flykkjast nú á ritvöllinn og hlaðvörpin, fylla samfélagsmiðla af hinum eina sanna sannleik sem þau hafa kokkað upp undir höfuðleðrinu. Þau stofna heilu samtökin, búin að sameinast um heilaþvottinn eingöngu til að fá þig til að krossa við af eða á, nei eða já þann 29.ágúst. Vísir Skoðun Aðsendar greinar
„Eins og að lenda í hryllingsmynd“Eftir mikil áföll ætlar Kolbrún María Garðarsdóttir að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu til minningar um móður sína og dóttur sem báðar létust fyrr á þessu ári. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Samband komst á en ekkert heyrðistNýjar upplýsingar úr prófunum Neyðarlínunnar benda til þess að símtalið eftir alvarlegt vinnuslys í Fljótsdal á þriðjudag hafi í raun borist Neyðarlínunni en símasamband verið svo slæmt að hvorki neyðarvörður né tilkynnandi heyrðu hvort í öðru. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Misjafnt gengi hjá Íslendingaliðunum í Evrópu í kvöldHollenska félagið Twente og danska félagið FCK Kaupmannahöfn eru bæði í frábærum málum í sínum einvígum í Sambandsdeildinni en það gekk ekki jafnvel hjá nokkrum öðrum Íslendingaliðunum á þessu Evrópukvöldi. Vísir Íþróttir Íþróttir
Óvenju margar fæðingar í júlíÓvenju mikið gekk á á fæðingardeild Landspítalans í júlímánuði en yfir 350 börn fæddust þar í liðnum mánuði. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Íslensku liðin í erfiðum málum í EvrópuBæði Víkingur og Valur eru í þröngri stöðu í Evrópu eftir leiki sína í kvöld. Víkingur tapaði 3-0 í Sviss fyrir Thun í fyrri leik liðanna í 3. umferð Evrópudeildarinnar. Ruv Íþróttir Íþróttir
Tefla undir dúndrandi teknótaktiLeikgleði skiptir meira máli en að vera góður í skák hjá Bad at Chess Club í Dortmund í Þýskalandi. Teflt er undir dúndrandi tónlist og hægt að fá sér bjór. Á bilinu fimmtíu til hundrað manns mæta á viðburði og mót hjá klúbbnum, The Bad Chess Club, í hverjum mánuði. Ruv Erlendar Fréttir Erlendar fréttir
Stíflan brast í kjölfar upplýsingaóreiðu á netinuUpplýsingaóreiða og falsfréttir á samfélagsmiðlum urðu kveikjan að því að tugþúsundir farandfólks streymdu til Ceuta í liðinni viku, sem er landsvæði í Norður-Afríku sem tilheyrir Spáni. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Sólmyrkvagleraugu á, af og aftur áÓafturkræfur skaði getur orðið á augum ef horft er beint í sólina og venjuleg sólgleraugu duga ekki til að verja augun fyrir skaðlegum geislum frá sólinni. Almyrkvi verður sjáanlegur frá vesturhluta landsins 12. ágúst. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvöldsÍbúi í Hamraborg þar sem niðurrif stendur yfir vegna byggingu nýs miðbæjar Kópavogs segir hávaðann óbærilegan. Hann sér nú ekkert út um gluggann nema viðarplötu. Annar íbúi segir að svo virðist vera sem það hafi hreinlega gleymst að fólk búi í Hamraborg. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Lokanir á Arnarnesvegi og við SundagarðaSundagarðar verða lokaðir milli Sundaborga og Sundabakka föstudaginn 7. ágúst. Til stendur að fræsa akrein ef veður leyfir. Framkvæmdir myndu þá standa yfir frá tólf á hádegi fram til fjögur síðdegis. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Varar við vindhviðum á VestfjörðumVeðurfræðingur Vegagerðarinnar varar vegfarendur í kvöld og á morgun við ákveðinni norðaustanátt með vindhviðum allt að 25 metrum á sekúndu í vindstrengjum á Vestfjörðum, þá einkum á fjallvegum. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Varað við vindhviðum á VestfjörðumVegagerðin varar við ákveðinni norðaustanátt í kvöld og á morgun með vindhviðum um 25 metra á sekúndu í vindstrengjum á Vestfjörðum, einkum á fjallvegum. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Innrammaði einstaka kvittun úr matvöruverslunVið þekkjum það öll sem verslum í matinn að vera boðið að taka kvittun fyrir kaupunum eða þurfa að prenta hana út sjálf ef við förum á sjálfsafgreiðslukassa. Margir taka aldrei kvittun og þeir sem taka hana henda henni fljótlega í ruslið. DV Pressan Erlendar fréttir
Fundu grunaða með hitamyndavélMaður, nákominn konu sem fannst örend í íbúð á eyju í skerjagarðinum úti fyrir sænsku höfuðborginni Stokkhólmi í fyrradag, hefur nú verið handtekinn, grunaður um að stytta henni aldur. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Náðu ekki í Neyðarlínu eftir alvarlegt slys í FljótsdalIlla gekk að ná sambandi við Neyðarlínuna þegar karlmaður slasaðist alvarlega í vinnuslysi í Fljótsdal á þriðjudag. Heimamenn segja farsímasamband hafa versnað í Fljótsdal eftir að fjarskiptakerfum var lokað í fyrra. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Evrópuherinn og hlutur ÍslendingaÍ kjölfar greinar undirritaðs, Evrópher, vígbúnaður og herskylda, í Morgunblaðinu 30. júlí sl. hefur orðið nokkur umræða á netinu og nú síðast í nýlegri grein Svans Sigurbjörnssonar hér á Vísi. Vísir Skoðun Aðsendar greinar
Tungumálið gæti flætt yfir bakka sínaSöngtextar á íslensku skipta gríðarlega miklu máli í varðveislu tungumálsins að mati Bubba Morthens, tónlistarmanns og ljóðskálds. MBL Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dagNeikvæð mynd er dregin upp af áhrifum aðildaviðræðna og mögulegri inngöngu Íslands í Evrópusambandið á landbúnað hér á landi, í nýrri skýrslu sem Búnaðarþing lét gera. Framkvæmdastjóri Bændasamtakanna telur að aðild fæli í sér valdaafsal og líkir málinu við sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á 19. öld. Vísir Innlendar fréttir Innlendar fréttir
Tveir erlendir leikmenn yfirgefa KeflavíkVængmaðurinn Halid Alghoul og markvörðurinn Mirsad Basic hafa báðir spilar sinn síðasta leik fyrir Keflavík í Bestu deild karla en félagið tilkynnti um brottför þeirra beggja í dag. Vísir Íþróttir Íþróttir
Var þetta kosningaloforðið?Það er búið að vera skrítið að fylgjast með ríkisstjórn undanfarið. Hún var kjörin næstum eingöngu til að lækka vexti og koma á efnahagslegum stöðugleika á ný, samt er bara búið að vera gera þveröfugt. Stýrivextir, sem voru á niðurleið hafa hækkað á ný. Vísir Skoðun Aðsendar greinar
Grunaður um að hafa myrt níu ára stúlkuHálffertugur maður kom fyrir sakadóm í Forfar í Austur-Skotlandi í gær þar sem hann var borinn þeirri sök að hafa myrt níu ára gamla stúlku eftir að hún fannst illa haldin á iðnaðarsvæði í Arbroth um á mánudaginn. MBL Erlendar fréttir Erlendar fréttir
Þorgerður krefst yfirráða yfir sjávarútvegi í ESB-viðræðumÞorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að íslensk stjórnvöld geri kröfu um „fullveldisyfirráð yfir öllum sjávarútvegi“ komi til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Þetta segir hún í viðtali við breska blaðið Financial Times sem birtist í dag. Ruv Innlendar fréttir Innlendar fréttir